Fréttablaðið - 20.05.2009, Síða 59
MIÐVIKUDAGUR 20. maí 2009 27
00.000
500.000.000
+1.270.000.000
Ekki gleyma að vera með,
fáðu þér miða fyrir klukkan
fjögur í dag á næsta sölustað
eða á lotto.is
Þrefaldur fyrsti vinningur stefnir í
500 milljónir og Ofurpotturinn
stefnir í 1270 milljónir.
ALLTAF Á MIÐVIKUDÖGUM!
MIÐINN GILDIR 20. MAÍ 2009
A. 12 14 17 21 41 48
B. 05 16 23 36 37 38
C. 07 09 13 22 34 38
D. 03 06 19 24 25 31
E. 11 19 21 25 38 42
F. 01 25 35 36 39 46
G. 18 19 20 23 28 46
H. 22 27 29 39 40 42
Þrefaldu
r
1. vinnin
gur
KÖRFUBOLTI Guðbjörg Sverrisdótt-
ir, leikmaður í Íslandsmeistara-
liði Hauka í vetur, hefur ákveðið
að spila með Hamari í Iceland
Express-deild kvenna næsta
vetur. Guðbjörg hittir þar fyrir
Ágúst Björgvinsson, sem þjálfaði
hana áður hjá Haukum.
„Ég er bara tilbúin að breyta
til. Það verður samt skrítið að
spila ekki fyrir Hauka því ég er
búin að spila fyrir þetta félag
síðan ég fæddist. Þetta verður
stór áskorun,“ segir Guðbjörg og
hún leynir því ekkert af hverju
hún ákvað að fara í Hamar.
„Ástæðan fyrir því er að Gústi
er í Hamari. Hann er besti þjálf-
arinn á landinu að mínu mati og
ég er að fara til að spila undir
hans stjórn,“ segir Guðbjörg. Hún
var með 7,8 stig og 4,6 fráköst að
meðaltali á 21,1 mínútu í leik með
Haukum í vetur.
„Ég hef ekki hugmynd hvaða
stöðu ég mun spila. Mér finnst
gaman að spila alls staðar á vell-
inum,“ segir Guðbjörg og hún er
bjartsýn á gengi liðsins. „Ég kem
með sigurhugarfarið úr Haukun-
um og það kemur ekkert annað til
greina en að reyna að berjast um
titlana,“ segir Guðbjörg. - óój
Guðbjörg Sverrisdóttir í Hamar:
Vill spila fyrir
besta þjálfarann
GUÐBJÖRG Lék með Íslandsmeisturum
Hauka í vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
FÓTBOLTI Steinþór Freyr Þorsteinsson er leikmaður 3.
umferðar Pepsi-deildar karla að mati Fréttablaðsins.
Hann hefur átt ríkan þátt í velgengni Stjörnunnar,
sem er í efsta sæti Pepsi-deildar karla með fullt hús
stiga og markatöluna 12-1. Hann átti stórleik þegar
Stjarnan vann 3-0 sigur á ÍBV í nýliðaslag deildar-
innar á sunnudagskvöldið.
Steinþór hefur átt þátt í níu af tólf mörkum Stjörn-
unnar. Hann hefur skorað eitt sjálfur, lagt upp fimm
önnur með stoðsendingum og átt stóran þátt í undir-
búningi þriggja marka þar að auki.
„Við höfum unnið þessa leiki á þeirri góðu stemn-
ingu sem ríkir í liðinu og vonandi höldum við áfram
á þeirri braut,“ segir Steinþór. „Aðrir áttu kannski
ekki von á því að við myndum skora svo mörg mörk
en það kemur mér ekki á óvart. Við skoruðum mikið
af mörkum í okkar leikjum í vetur en þá vorum við
einnig að fá mikið af mörkum á okkur. En eins og
staðan er í dag er vörnin okkar búin að standa sig
gríðarlega vel, rétt eins og sóknin. Þetta hefur smell-
passað hjá okkur.“
Stjarnan hefur unnið lið Grindavíkur, Þróttar og
ÍBV til þessa og fær verðugt verkefni í næstu umferð.
Þá mætir liðið Íslandsmeisturum FH í Kaplakrika.
„Við förum í alla leiki til að vinna. Þetta góða gengi
ætti að gefa okkur aukið sjálfstraust og það sýnir
okkur að við getum gert þetta. Þeir sem hafa litla trú
á okkur halda sjálfsagt að bólan muni springa gegn
FH og að byrjendaheppni okkar þverri. En ég hef
fulla trú á mínu liði og trúi því að við getum unnið
hvaða lið sem er ef við höldum rétt á okkar spilum.“
Steinþór hóf feril sinn í Breiðabliki og lék sinn
fyrsta leik með liðinu árið 2002 en hann verður 23 ára
gamall í sumar. Hann á samtals að baki 101 leik í deild
og bikar með Breiðabliki en kom yfirleitt við sögu á
síðasta tímabili sem varamaður. Bjarni Jóhannsson,
þjálfari Stjörnunnar, þjálfaði áður Breiðablik og fékk
Steinþór til að koma til Stjörnunnar.
„Ég er alltaf ánægður þegar þjálfarar sýna mér
það mikinn áhuga að þeir vilja fá mann í félagið sitt.
Bjarni þekkir mig og minn leikstíl vel og ég er því
mjög ánægður.“
Hann hrósaði einnig stuðningsmönnum Stjörnunnar,
sem hafa látið vel í sér heyra í síðustu leikjum.
„Þeir hafa verið framar mínum vonum. Áhorfend-
um hefur líka fjölgað eftir fyrsta leik, þegar okkur
byrjaði að ganga vel, og búin er að myndast klíka uppi
í stúku sem er hrópandi allan tímann. Mér skilst að
það sé nýtt hjá Stjörnunni. Ég er því afar sáttur við
stuðningsmennina og vona að þeir haldi þessu áfram.“
eirikur@frettabladid.is
Við getum unnið alla leiki
Steinþór Freyr Þorsteinsson er leikmaður 3. umferðar að mati Fréttablaðsins.
Hann hefur verið lykilmaður í liði Stjörnunnar sem trónir á toppi Pepsi-deildar
karla með markatöluna 12-1. Hann hefur sjálfur átt þátt í níu þessara marka.
FLIKK-FLAKK INNKÖSTIN Löngu innköstin hans Steinþórs hafa
þegar skilað tveimur mörkum í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Sænska úrvalsdeildin
AIK - LdB Malmö 1-2
Dóra Stefánsdóttir skoraði sigurmark Malmö sem
er á toppi deildarinnar ásamt Umeå.
Norska úrvalsdeildin
Sandefjord - Rosenborg 2-2
Kjartan Henry Finnbogason var á bekknum hjá S.
Þýska úrvalsdeildin
Hamburg - Gummersbach 32-24
Róbert Gunnarsson skoraði tvö mörk fyrir Gumm.
Kiel - Nordhorn 38-27
Ítalska úrvalsdeildin
Benetton Treviso - Bologna 85-77
Jón Arnór Stefánsson lék í fimm mínútur með
Benetton Treviso en komst ekki á blað.
ÚRSLIT
HANDBOLTI Íslenska kvennalands-
liðið í handbolta vann sinn annan
sigur í röð á Sviss þegar liðin
mættust á Selfossi í gær. Liðin
mættust fyrst í fyrrakvöld og
eigast svo við í dag klukkan 18.00
í íþróttahúsinu í Austurbergi.
Ísland hefur unnið báða leikina
til þessa með tveggja marka
mun, síðast í gær 31-29. Harpa
Sif Eyjólfsdóttir skoraði átta
mörk fyrir Ísland, Hrafnhildur
Skúladóttir sjö og Íris Ásta
Pétursdóttir fimm. - esá
Ísland mætti Sviss í gær:
Aftur sigur
HARPA SIF EYJÓLFSDÓTTIR Skoraði átta
mörk fyrir Ísland í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI