Fréttablaðið - 13.06.2009, Qupperneq 1
HELGARÚTGÁFA
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI13. júní 2009 — 139. tölublað — 9. árgangur
Grease fær fjórar
stjörnur
Sölufulltrúar Viðar Ingi Pétursson vip@365.is 512 5426 Hrannar Helgason hrannar@365.is 512 5441
Hvolsskóli á Hvolsvelli
leitar eftir skólastjóra
Leitað er að einstaklingi með mikinn metnað sem sýnt hefur árangur í störfum sínum og hefur vilja til að leiða skólastarf með áherslu á nýbreytni og samvinnu starfsmanna.
Hvolsvöllur er í Rangárþingi eystra sem er fallegt sveitarfélag í hjarta Suðurlands þar sem fjölskyldan er í fyrirrúmi. Sveitarfélagið nær frá Eystri-Rangá í vestri að Jökulsá á Sólheimasandi í austri og því er mikill skólaakstur við skólann. Í skólanum eru um 240 nemendur í 1. – 10. bekk úr öllu sveitarfélaginu og er öll aðstaða mjög góð. Í Hvolsskóla er framsækið og metnaðarfullt skólastarf. Einstak-lingurinn er í brennidepli og því er lögð mikil áhersla á fjölbreytta kennsluhætti, sveigjanleika og samstarf. Einnig er lögð áhersla á gott samstarf við Leikskólann Örk og framhaldsskóla í héraði með áherslu á sveigjanleg skil skólastiga.
Staða skólastjóra Hvolsskóla er laus
til umsóknar frá 1. ágúst 2009
Skólastjóri ber fag- og rekstrarlega ábyrgð á starfi skólans, stjórnar honum og hefur forgöngu um mótun faglegrar stefnu byggða á gildum Hvolsskóla.
Menntunarkröfur:
• Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla ásamt framhaldsmenntun í stjórnun.
Hæfniskröfur:
• Áhugi og reynsla til að leiða þróunarstarf og leita nýrra leiða í skólastarfi .
• Hæfni í mannlegum samskiptum ásamt góðum skipulagshæfi leikum.
• Reynsla af störfum á sviði stjórnunar ásamt reynslu af kennslu í grunnskóla.
Umsókninni skal fylgja greinargóð skýrsla um störf um-sækjanda, menntun og stjórnunar-reynslu ásamt öðru sem varpað getur ljósi á færni hans til að sinna starfi skólastjóra.
Sjá nánar á heimasíðu Hvolsskóla www.hvolsskoli.is og heimasíðu Rangárþings eystra www.hvolsvollur.isNánari upplýsingar gefur sveitarstjóri í símum: 488 4200 og 899 1776 eða í netpósti: elvar@hvolsvollur.is
Umsóknarfrestur rennur út mánudaginn 29. júní 2009. Umsóknir sendist til sveitarstjóra Rangárþings eystra.
Deildarstjóri innkaupadeildar
Við erum að leita að reyklausum einstaklingi til að leiða 6 manna hóp og hefur til að berafrumkvæði, yfirsýn og áhuga á að stuðla að umbótum á vinnuferlum.
– markviss dreifing –
Nánari upplýsingar um störfin veitir Vilborg Gunnarsdóttir, starfsmannastjórivilborg@distica.is. Umsóknarfrestur er til 29. júní nk.Umsóknir ásamt ferilskrá og nöfnumumsagnaraðila sendist á netfangið starf@distica.is. Farið verður með allar umsóknir semtrúnaðarmál og öllum umsóknum verður svarað.
Distica hf. sérhæfir sig í innflutningi, vörustjórnun og dreifingu á lyfjum, heilsuvörum,dýraheilbrigðisvörum sem og vörum fyrir heilbrigðisstofnanir og rannsóknarstofur.Fyrirtækið byggir á meira en 50 ára reynslu í starfsemi sinni og eru starfsmenn þesstæplega 70 talsins.
Hörgatúni 2, 210 Garðabæ, sími 412 7500, www.distica.is
Helstu verkefni
Sjá um pantanir í samvinnu við
markaðsdeildir
Tollafgreiðsla og verðútreikningar
Samskipti við erlenda og innlenda
viðskiptavini
Samskipti við flutningsaðila
Endursendingar / útflutningur
Menntun og reynsla
Stúdentspróf
Þekking á vörustjórnun
Góð færni í ensku og
Norðurlandamáli
Góð almenn tölvukunnátta
Starfsreynsla í sambærilegum
störfum
Helstu verkefni
Ábyrgð á ferlum er varða pantanir,flutning og geymslu á lyfjum
Gerð og rýni pantana
Stjórnun deildarinnar
Birgðahald og vörustjórnun
Framkvæmd umbótaverkefna
Samskipti við innri og ytri
viðskiptavini
Gerð rekstraráætlana
Samningar
Menntun og reynsla
Framhaldsnám á sviði
vörstjórnunar æskilegt
Þekking og reynsla af
stjórnun og
sambærilegum störfum
Mjög góð enskukunnátta
Góð færni í notkun helstu
tölvuforrita
Nákvæmni, sjálfstæði og
öguð vinnubrögð
vöru
i il r
Við leitum að dugmiklum, reyklausum einstaklingi til að leiða 6 manna hóp og hefur til að beraþekkingu, frumkvæði, yfirsýn, þjónustulund, hæfni í mannlegum samskiptum og áhuga á aðstuðla að umbótum á vinnuferlum.
Innkaupafulltrúi
Við leitum að reyklausum einstaklingi sem hefur til að bera þjónustulund,vandvirkni og áhuga á að leysa verkefni sjálfstætt og tileinka sér nýja þekkingu.
hæfni í mannlegumsamskiptum,
Aðstaða fyrir
ungmenni
Austurbæjarbíó verður í
sumar miðstöð fyrir ungt
fólk. BLS. 6
Fín fjölskylduíþrótt
Hulda Birna Baldursdóttir stundar golf
ásamt manni sínum og þremur
börnum. BLS. 2
ÍS
LE
N
SK
A
/S
IA
.I
S
/N
AT
4
40
74
1
0/
08
fjölskyldan
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FJÖLSKYLDUNA ]
júní 2009
ÍÞRÓTTIR 34
TÍSKA 46
SYNGJUM ÓVART
Á ALMANNAFÆRI
Jóhanna Guðrún og Unnsteinn
Manuel á Rökstólum VIÐTAL 32
KAFAÐ UMHVERFIS
KOLBEINSEY
LJÓSMYNDIR 30
ROKKARI SEM VARÐ
KRIMMAHÖFUNDUR
VIÐTAL 28
TVÖ SÉRBLÖÐ Í DAG
Kvennalandsliðið í
knattspyrnu leggur
allt í sölurnar
Herramaðurinn
snýr aftur
MENNING 42
MENNING Ástand Þjóðleikhússins
er svo slæmt að það þyrfti að loka
því í tvö ár til að ráðast í nauðsyn-
legar milljarðaendurbætur. Þá er
brýnt að byggja við húsið eigi að
koma í veg fyrir áframhaldandi
hallarekstur. Þetta kemur fram
í skýrslu sem sérfræðingar frá
þýska fyrirtækinu Gerling+Arendt
Planungsgesellschaft skilaði um
málið í ágúst 2006.
Í skýrslunni eru gerðar alvar-
legar athugasemdir við nánast allt
sem við kemur ástandi og aðbúnaði
leikhússins. Meðal annars kemur
fram að leikhúsið uppfylli ekki
alþjóðlega öryggisstaðla, bruna-
varnir séu hreinlega ekki til stað-
ar og að vinnuaðstaðan þverbrjóti
gegn lögum um vinnuvernd. Þetta
sé vegna þess að þeir staðlar sem
fylgt var þegar húsið var byggt
árið 1950 séu löngu orðnir úreltir.
Húsið sjálft er sagt allt að því
að hruni komið. Ekki aðeins sjáist
miklar skemmdir á múrklæðning-
um, heldur sé stálgrindin í burðar-
virki hússins tærð og steypan sjálf
sprungin og illa farin. Allt þarfnist
þetta mikillar endurnýjunar.
Enn fremur sé hljóð- og rakaein-
angrun ábótavant, sökkull hússins
sennilega laskaður og skipta þurfi
um alla glugga. Þá sé tækjabúnað-
ur hússins, sem er gríðarmikill,
að mestu orðinn ónothæfur sökum
aldurs. Hann skapi bæði hættu og
virki ekki sem skyldi.
Skýrsluhöfundar leggja áherslu
á að endurbæturnar verði gerðar í
einu vetfangi. Síðan skýrslan var
gerð hefur verið ráðist í endurbæt-
ur á ytra byrði hússins. Til hefur
staðið að endurnýja tæki og búnað
leiksviðsins og aðstöðu baksviðs,
ásamt því að reisa viðbyggingu til
austurs.
Í skýrslunni, sem er tæplega
þriggja ára, er gert ráð fyrir að
kostnaður við endurbæturnar nemi
um 30 til 40 milljónum evra. Vegna
þess að bæði þyrfti að greiða fyrir
innlenda þjónustu og búnað erlend-
is frá gera gengissveiflur erfitt að
spá fyrir um kostnaðinn í dag. Þó
er ljóst að hann hleypur á milljörð-
um króna. - sh
Loka þarf Þjóðleik-
húsinu í tvö leikár
Kolsvört skýrsla frá 2006 um ástand Þjóðleikhússins hefur verið gerð opinber.
Skýrslan leiðir í ljós að húsið er nánast að hruni komið og þjónar ekki lengur
hlutverki sínu. Loka þyrfti húsinu í tvö ár á meðan dýrar endurbætur færu fram.
TORGIÐ TYRFT Í BLÍÐUNNI Borgarfulltrúar hrintu í gær af stokkunum Björtu Reykjavík, verkefni sem er ætlað að fegra höfuðborgina. Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri
og Þorleifur Gunnlaugsson borgarfulltrúi voru samhent við þökulagninguna og borgarfulltrúarnir Dagur B. Eggertsson, Jórunn Frímannsdóttir, Sóley Tómasdóttir og Júlíus Vífill
Ingvarsson létu ekki sitt eftir liggja. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
VIÐSKIPTI Síminn þjónustar nú um
sjötíu skemmtiferðaskip um heim
allan. Samningarnir hafa tryggt
Símanum 90 þúsund viðskipta-
vini og um milljarð í tekjur. „Það
má segja að þetta sé afsprengi af
þjónustu okkar við íslensk fiski-
skip,“ segir Sævar Freyr Þráins-
son, forstjóri Símans. - jse / sjá síðu 12
90 þúsund viðskiptavinir:
Síminn semur
við sæfara
Sjá nánar á www.betrabak.is
Er von á gestum?
Svefnsófadagar í júní
Sjá nánar á www.betrabak.is
Er von á gestum?
Svefnsófadagar í júní