Fréttablaðið - 13.06.2009, Síða 80

Fréttablaðið - 13.06.2009, Síða 80
56 13. júní 2009 LAUGARDAGUR KÖRFUBOLTI Kvennalið Hamars fékk frábæran liðstyrk í gær þegar landsliðsleikmennirnir Kristrún Sigurjónsdóttir og Sigrún Ámunda- dóttir ákváðu að spila í Hveragerði næsta vetur. Kristrún og Sigrún hafa verið í fimm manna úrvalsliði ársins und- anfarin tvö tímabil og leiddu báðar sín lið til titla síðasta vetur. Krist- rún var fyrirliði Íslandsmeistara Hauka og Sigrún lék leiðtogahlut- verk hjá bikarmeisturum KR. Kristrún er 24 ára bakvörður. Hún hefur leikið með Haukum síðan haustið 2004 og hefur leik- ið síðustu 163 meistaraflokksleiki Haukaliðsins hér á landi. Kristrún var með 18,6 stig, 6,1 frákast, 3,6 stoðsendingar og 3,1 stolinn bolta að meðaltali í leik á síðasta tíma- bili. Kristrún hefur orðið Íslands- meistari með Haukum þrisvar sinnum á síðustu fjórum árum og er eini leikmaður liðsins sem var byrjunarliðsmaður öll árin sem liðið varð meistari. Spennandi áskorun „Mér fannst bara vera kominn tími til þess að breyta til og þetta er stór áskorun fyrir mig sem leik- mann. Ég var búin að vera fimm frábær ár hjá Haukum og vonandi taka nú við spennandi tímar hjá Hamri,“ segir Kristrún. Sigrún er 20 ára framherji. Hún hefur leikið með KR undanfarin tvö tímabil en þar á undan lék hún með Haukum í þrjú tímabil. Hún hefur leikið í lokaúrslitum um Íslandsmeistaratitilinn undanfar- in fjögur tímabil. Sigrún hefur náð þeim merkilega árangri að hækka meðalskor sitt fyrstu fimm tíma- bil sín í efstu deild en í vetur var hún með 16,2 stig, 9,4 fráköst, 2,3 stoðsendingar og 2,3 stolna bolta að meðaltali í leik. „Þetta er skemmtileg áskorun og ég held að ég muni bæta mig mikið sem leikmaður við það að fara í Hamar. Stefnan er klárlega að hjálpa liðinu að ná betri árangri en það hefur náð til þessa,“ segir Sigrún. Vilja ná skrefinu lengra Hamarsliðið er til alls líklegt í vetur undir stjórn Ágústs Björg- vinssonar en áður hafði Guðbjörg Sverrisdóttir ákveðið að leika með liðinu næsta vetur. Allar léku þær þrjár undir stjórn Ágústs þegar hann síðast þjálfaði kvennalið veturinn 2006-07. „Hamar hefur fært sig upp töfl- una síðustu ár og komst í úrslita- keppnina í fyrsta skiptið í sögu félagins í fyrra. Með komu þess- ara sterku leikmanna erum við að vonast til þess að geta nú tekið eitt skref í viðbót. Kristrún og Sigrún eru náttúrlega búnar að taka þátt í flestum þeim úrslita- leikjum sem hafa verið spilaðir hér síðustu ár og eru líka mjög vaxandi leikmenn sem hafa verið að bæta sig í flestum tölfræði- þáttum körfuboltans síðustu ár,“ segir Ágúst ánægður. - óój, óþ Hamar ætlar sér stóra hluti í Iceland Express-deildinni í körfubolta næsta vetur: Kristrún og Sigrún til Hamars ÖFLUG Kristrún hefur verið Íslands- meistari þrisvar sinnum á síðustu fjórum árum og er gríðarlegur liðstyrkur fyrir Hamarsliðið. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL *Verð í Evrópu miðast við gengi á evru 174 | Verð nú eru verð með 30% afslætti ECCO GOLFSKÓR Ný endursending af 2009 golflínunni komin í Ecco búðina KRINGLAN Gríptu tækifærið og fáðu þér golfskó á frábæru verði 3855355608 Stærðir: 36-41 Verð nú: 15.995 Verð í Evrópu: 26.100 CASUAL COOL 3825355605 Stærðir: 36-42 Verð nú: 17.995 Verð í Evrópu: 27.840 ACE 3825353357 Stærðir: 36-43 Verð nú: 17.995 Verð í Evrópu: 27.840 ACE Verð nú: 19.995 Verð í Evrópu: 31.320 3883355601 Stærðir: 36-41 Verð nú: 17.995 Verð í Evrópu: 27.840 CASUAL PITCH Verð nú: 23.995 Verð í Evrópu: 32.590 3840453859 Stærðir: 42-45 FLEXOR GTX 30% afsláttur af nýju línunni til 22. júní Verð nú: 19.995 3948453376 Stærðir: 39 -47 CASUAL COOL II 3948455619 Stærðir: 39 -47 CASUAL COOL II Verð í Evrópu: 31.320 Verð nú: 19.995 Verð í Evrópu: 29.580 39354 51052 Stærðir: 41-45 CLASSIC GTX Verð nú: 15.995 Verð í Evrópu: 24.360 3940453582 Stærðir: 39-47 CASUAL COOL II HANDBOLTI Ef Ísland vinnur Noreg á sunnudaginn verður farseðillinn á EM sem fer fram í Austurríki á næsta ári tryggður. Ísland mætti því tapa bæði fyrir Makedóníu og Eistlandi í síðustu tveimur leikj- um sínum. Íslandi gætu því dugað ellefu stig til að tryggja sig áfram. Það „versta“ sem gæti gerst er að bæði Makedónía og Noregur næðu einn- ig ellefu stigum. Þá myndi röðun liðanna í sæti ráðast af árangri í innbyrðisviðureignum. Þar stæði Ísland best að vígi. Makedónía þarf að vinna Noreg hinn 21. júní til að koma sér í ell- efu stig. Ef það tekst ekki er Ísland öruggt með annað sætið, svo lengi sem Ísland vinnur Eistland í loka- umferð riðlakeppninnar. Ef Ísland tapar fyrir Noregi á morgun sta nda þó ýmsar leið - ir liðinu enn til boða. Jafntefli gegn Makedóníu myndi tryggja þátttökurétt á EM á næsta ári, jafnvel þótt Ísland tapaði fyrir Eistlandi. Ef Ísland tapar bæði fyrir Noregi og Makedóníu flækj- ast málin. Ef Ísland tapar með ekki meira en tveggja marka mun fyrir Make- dóníu dugir sigur geg n Eist um til að tryggja sig áfram. Ísland mætti meira að segja tapa með þremur mörkum fyrir Makedón- íu ef liðið skorar minnst 27 mörk í leiknum. Þá myndi sigur á Eistum einnig duga til. Ísland mætti jafnvel tapa bæði fyrir Noregi og Makedóníu með óhag- stæðum markamun en yrði þá að vinna Eistland og treysta á að Makedónía ynni ekki Noreg á heima- velli. Norðmenn væru þó mjög líklega þá búnir að tryggja sér sæti á EM og hefðu því að litlu að keppa. Þess má einnig geta að ef Ísland vinnur Noreg í dag þarf bara að vinna annað hvort Makedóníu eða Eistland til að gulltryggja liðinu efsta sæti riðilsins. - esá Ísland mætir Noregi í afar mikilvægum leik í undankeppni EM 2010 í Laugardalshöllinni á morgun: Sigur gegn Noregi tryggir farseðilinn á EM GUÐJÓN VALUR Verður í eldlínunni gegn Noregi á morgun. FRÉTTTABLAÐIÐ/VILHELM TOPPBARÁTTAN Í 3. RIÐLI Undankeppni EM 2010 Ísland 5 4 1 0 171-127 9 Noregur 5 4 1 0 172-139 9 Makedónía 5 2 1 2 142-134 5 Leikirnir sem eru eftir: Makedónía - Belgía 13. júní Ísland - Noregur 14. júní Ísland - Makedónía 17. júní Noregur - Eistland 17. júní Makedónía - Noregur 21. júní Eistland - Ísland 21. júní FÓTBOLTI Dave Whelan, stjórnar- formaður Wigan, hefur staðfest að félaginu hafi borist kaup- tilboð frá Englandsmeisturum Manchester United í kantmann- inn knáa Antonio Valencia. „Við erum búnir að vera í sam- bandi við United út af Valencia í tvo til þrjá mánuði og þeir hafa mikinn áhuga á honum. Reynd- ar eru þeir þegar búnir að leggja fram kauptilboð og ég reikna með að við göngum að samningaborð- inu á allra næstu dögum,“ segir Whelan. Talið er að Wigan vilji fá í kringum sextán milljónir punda fyrir hinn 23 ára gamla landsliðs- mann Ekvador en Real Madrid var einnig orðað við leikmanninn. Áhugi Spánverjanna gæti þó hafa breyst eitthvað eftir að kauptil- boðinu í Cristiano Ronaldo var tekið. - óþ Dave Whelan hjá Wigan: Man. Utd hefur boðið í Valencia VALENCIA Líklega á förum til Manchest- er United á sextán milljónir punda. NORDIC PHOTOS/GETTY FÓTBOLTI Miklar vangaveltur hafa verið síðustu daga í fjölmiðlum út af framherjanum Zlatan Ibra- himovic, sem sagður er vilja tak- ast á við nýjar áskoranir og kom- ast burt frá Inter. Knattspyrnustjórinn José Mourinho er þó sannfærður um að kappinn verði áfram hjá Inter. „Ég veit hvernig leikmanna- markaðurinn virkar og hvernig umboðsmenn vinna og ég er því alveg rólegur yfir stöðu mála hjá Ibrahimovic. Ég trúi því að hann verði áfram hjá Inter á næsta keppnistímabili. Ég trúi því vegna þess að enginn er búinn að segja mér að það verði ekki þannig,“ segir Mourinho. - óþ Mourinho um Ibrahimovic: Er viss um að hann fari ekki HANDBOLTI Ísland mætir Noregi á morgun í afar mikilvægum leik í undankeppni EM 2010. Leik- ið verður í Laugardalshöllinni og hefst leikurinn klukkan 16.00. Með sigri nær Ísland að tryggja sér sæti á EM á næsta ári og setur sig í afar góða stöðu í baráttunni um efsta sæti riðilsins. Leikurinn er því lykilleikur upp á framhald- ið að gera. „Til þess að komast yfir þenn- an hjalla – að komast inn á EM – þá er stuðningur áhorfenda ómet- anlegur. Við erum ekki að spila á okkar sterkasta liði, því er enn mikilvægara að við fáum eins mik- inn stuðning og mögulegt er. Við erum því hreinlega að biðla alla sem geta komið að styðja við bakið á okkur.“ Það eru þó góðar fréttir fyrir íslenska liðið að Snorri Steinn Guðjónsson verður sennilega með á morgun. „Hann er búinn að vera duglegur í sinni endurhæf- ingu og honum hefur gengið vel í sinni meðferð hjá sjúkraþjálfurum landsliðsins. Við getum því aðeins vonað það besta en útlitið er nokk- uð gott.“ Einhver skakkaföll eru líka í norska liðinu en það vann engu að síður sannfærandi sigur á Make- dóníu fyrr í vikunni. „Það eru fáir veikir blettir í þeirra liði,“ sagði Guðmundur. „Við þurfum að passa að spila sterkan sóknar- leik enda eru þeir fljótir að refsa fyrir hver mistök með mörkum úr hraðaupphlaupum. En við þurfum líka að vera fastir fyrir í okkar varnarleik. Þeir eru með góða og fjölhæfa skotmenn, öflugan horna- mann og mjög erfiðan línumann, Frank Löke. Við töldum að hann fékk 20 línusendingar í leiknum gegn Makedóníu.“ Guðmundur segir að þó svo að liðið geti tryggt sér sæti á EM á morgun sé verkefninu ekki lokið með sigri á Norðmönnum. „Það lið sem nær efsta sæti rið- ilsins kemur inn í efsta styrkleika- flokk þegar dregið verður í riðla á EM. Hinir leikirnir skipta því gríðarlega miklu máli líka.“ Ísland mætir Makedóníu á mið- vikudaginn næstkomandi og svo Eistlandi ytra í lokaumferðinni. eirikur@frettabladid.is Stuðningur áhorfenda nauðsynlegur Ísland mætir Noregi á morgun í gríðarlega mikilvægum leik í undankeppni EM 2010. Mikil forföll eru í landsliðinu og segir Guðmundur Guðmundsson þjálfari að liðið þurfi mikið á stuðningi áhorfenda að halda. GOTT ÚTLIT MEÐ SNORRA STEIN Guðmundur Guðmundsson og Snorri Steinn Guðjónsson á æfingu íslenska landsliðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ALEKSANDAR DJOROVIC
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.