Fréttablaðið - 13.06.2009, Blaðsíða 71
LAUGARDAGUR 13. júní 2009 47
Nýtt skvísuilmvatn
Á hverju sumri er eitt ilmvatn sem slær rækilega í gegn og allar
tískupæjur verða hreinlega að eignast. Í fyrra var það Chloé frá
Chloé en nú er það óumdeilanlega ilmurinn Flora frá Gucci. Ilm-
vatnið var sérstaklega þróað til að laða að yngri kúnna Gucci-tísku-
hússins og notar, eins og nafnið gefur til kynna,
ferskar blómanótur eins og rósir og peony
ásamt kryddaðri angan af patchouli og sedrus-
viði. Flaskan er sexhyrnd og úr þykku gleri
sem minnir á Art Deco stíl þriðja áratugar-
ins og ekki skemmir fyrir að auglýsinga-
herferðinni var leikstýrt af Chris
Cunningham sem hefur meðal ann-
ars leikstýrt myndböndum fyrir
Björk. Fyrirsætan ástralska Abbey
Lee sést ganga um í Flora auglýsing-
unni á blómaakri við Donnu Summer
lagið „I feel love“.
- amb
MAFÍÓSI
Jakka-
föt, pels,
göngustafur
og hattur hjá
Alexander
McQueen
RAUTT Svöl
svört smók-
ingföt með
rauðum kraga
frá Burberry
Prorsum.
Snyrtivörufyrirtækið Mac er alltaf með skemmtilegar
nýjungar og djarfar litapallettur. Fyrir sumarið kemur
línan Style Warrior sem þeir segja innblásna af strand-
arlífi í Brasilíu. Litaskalinn er sérstaklega frísklegur og
klæðilegur með fallegu léttu meiki, sólarpúðri í bleik-
um og gylltum tónum, glimmeri og glans. Augn-
skuggarnir eru í fallegum dempuðum litum eins
og ólívugrænu, fjólubláu, gulu og apríkósulit
og varir eru í ferskjulitum og gylltum tónum.
Siðast en ekki síst má nefna að umbúðirnar
eru mjög svalar, með hlébarðadoppum í anda
sjötta áratugarins. - amb
Gylltir sólarlitir
Style Warrior-línan frá Mac
FERSKT OG FRAMANDI Nýja línan frá Mac skartar gylltum
tónum og pastellitum.
Opið frá 11-18 virka daga
Opið frá 13-17 sunnudaga