Fréttablaðið - 13.06.2009, Side 36

Fréttablaðið - 13.06.2009, Side 36
4 fjölskyldan SKEMMTISTA FYRIR FJÖLSKYL Hallormsstaðarskógur Hallormsstaðarskógur er sígildur áfangastaður fyrir fjölskyldur. Skógurinn er sá stærsti á landinu og í honum er að finna tvö tjaldsvæði, Atlavík og Höfðavík. Í Atlavík er hægt að leigja bát og þaðan siglir líka Lagarfljótsormurinn á fljótið. Hestaleiga er á svæðinu og hægt að fara í bæði stutta og langa reiðtúra. Margir göngustígar liggja um skóginn, sem gaman er að hjóla um, en hjólaleiga er á staðnum. Um næstu helgi, 20. júní, verður Skógardagurinn mikli haldinn í Hallormsstaðarskógi. Þá verður nóg um að vera, svo sem skógarhlaup, Íslandsmeistaramótið í skógarhöggi, söngur og ýmis skemmtiatriði. 5 Ferðaþjónusta sem tekur mið af smekk og þörfum barna fær sífellt veigameiri sess. Víðs vegar um landið er nú að finna staði sem gegna því mikilvæga hlutverki að gera líf barna skemmtilegra. Dýragarðar, risaleikvellir og ævintýrahús eru þar á meðal. Hér eru fimm hugmyndir að áfangastöðum sem eru líklegir til þess að falla í kramið hjá krökkum. Raggagarður í Súðavík Raggagarður er fjölskyldu- garður í ytri byggð Súðavíkur. Fjöldi skemmtilegra leiktækja er á svæðinu, sem mörg eru gerð til þess að þola þyngd bæði barna og fullorðinna. Leiktækin eru sérstök og heita skemmtilegum nöfnum, eins og snúningssveifla, sveiflu- staur og tvist. Fossatún í Borgarfirði Í Fossatúni í Borgarfirði geta lúnir foreldrar fengið sér kaffiveitingar og fylgst með krökkunum leika sér á leikjastéttinni undir umsjón starfsmann staðarins. Á leiksvæði staðarins er mínígolf, trampólín, risaleikkastali og fleiri leiktæki. Frítt er í leikaðstöðuna fyrir gesti veitingahússins á sunnudögum í sumar, frá 13. júní til 15. ágúst. Þá hefur verið settur upp söguvettvangur í Fossatúni sem gaman er af, bæði fyrir börn og fullorðna. Gengið er með leiðsögn um sögusvið sögunnar Tryggðatrölla. Þá fara þar reglulega fram svokallaðir skessuleikar fyrir gesti á tjaldsvæðinu. Keppt er í pörum í þremur leikjum; skriðkringlu, útikeilu og kúluspili. Á sumrin er einfalt fyrir fjölskyldur að finna sér eitt- hvað til gagns og gamans. Samverustundirnar eru líka oft meiri þar sem sumarfrí- in veita fólki svigrúm til að slaka á og skapa góðar minningar. Flestum krökk-um þykir sér-staklega gaman að fara í sund og er það tilvalin fjölskylduskemmt- un að svamla í lauginni og sóla sig. Einnig má setja gúmmísundlaug á svalirnar eða í garðinn ef fólk kýs að busla heima. Gaman getur verið að tjalda í garðinum og þá geta fjöl- skyldumeðlimir sinnt sínum hugðar- efnum í tjaldinu eða garðinum. Fjölskyldu- og húsdýragarður- inn nýtur mikilla vinsælda og á þessum árstíma er þar mikið af ungviði. Um þessar mundir er þar til að mynda nýfæddur kópur sem athyglisvert er að heimsækja. Ýmis konar útileikir eru til- valin dægradvöl og sniðugt er að kippa með í ferðalagið bolta, bad- mintonspöðum, krikk- etsetti eða öðru sem nýst getur í skemmti- lega leiki. Einnig er kjörið að hafa með fötu og skóflu ef farið er í fjöruferð. Göngu- ferðir eru heilsusam- leg og góð leið til að njóta náttúrunnar með börnum og ungl- ingum og einnig má kenna þeim ýmislegt um umhverfið í leið- inni. Þá er ekki úr vegi að hafa með sér gómsætt nesti og skreppa í lautarferð. Þá daga sem veðrið er ekki upp á marga fiska má nýta í alls konar föndur, lestur og jafnvel bakstur. Yngri kynslóðin veit fátt skemmti- legra en að stússast með foreldr- unum og læra af þeim hagnýt verk til gagns og gamans. - hs Ljúfar stundir Sólin leikur við fólk í Sundlaug Kópavogs. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA BÖRN ÞREYTAST FYRR en fullorðnir við að sitja í bíl. Gott ráð við því er að gera reglulega hlé á akstrinum og leyfa ungviðinu að teygja úr sér. Gengið verður í fótspor hins ástsæla barnabókahöfundar Jóns Sveinssonar, Nonna, á morgun en lagt verður af stað frá Nonnahúsi, Aðalstræti 54 á Akureyri, klukkan 14. Haraldur Þór Egilsson, sagnfræðingur og safnstjóri Minjasafnsins á Akureyri, leiðir gönguna en í henni verður farið stuttlega yfir lífshlaup Nonna, lesið upp úr bókum hans og staðir skoðaðir sem tengjast lífi hans og sögum. Nonni var hvað þekktastur fyrir Nonnabækurnar, sem urðu tólf talsins, en sú fyrsta kom út árið 1913. Þær hafa verið gefnar út á fjölmörgum tungumálum í milljónum eintaka. Gangan tekur um klukku- stund og er tilvalin fyrir fjölskyldur sem vilja gera sér glaðan dag ásamt því að verða sér úti um nokkra fróðleiks- mola. - ve Fjölskylduganga í fót- spor Jóns Sveinssonar Sumarfjör og leikir Gott nesti Nærumst og njótum ...

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.