Fréttablaðið - 13.06.2009, Blaðsíða 53
AÐIR
LDUR
Ævintýraland á Borgarfirði eystri
Gamla pósthúsið á Borgarfirði eystri hefur fengið nýtt hlutverk en
þar er nú komið ævintýraland fyrir börn sem hægt er að heimsækja
alla daga í sumar á milli klukkan 13 og 17. Ævintýralandið er
samstarfsverkerfni Kjarvalsstofu og safns í Bø í Noregi. Í því felst
að fyrir austan var byggður upp ævintýraheimur byggður á
norskum ævintýrum, á
meðan álfhóll með
borgfirskum álfum er
kominn til Noregs. Í
Ævintýralandi er hægt að
skoða kastala prinsessunn-
ar, helli drekans og heim
sæbúanna. Þar er líka hægt
að hlusta á ævintýrasögur
á iPod og fá lifandi
leiðsögn um landið.
REIÐHJÓL er góður fararkostur fyrir börn. Áríðandi
er að velja hjól sem hæfa aldri og þroska þeirra
ásamt því að vera með nægan öryggis búnað.
Dýragarðurinn í Slakka
Dýragarðinn í Slakka er að finna í Laugarási í Árnessýslu. Hann er
vinsæll hjá börnum jafnt sem fullorðnum og ekki síður erlendum
ferðamönnum, sem finnst mikið til þess koma að komast í nána
snertingu við dýrin. Í garðinum búa meðal annars hvolpar, kettling-
ar, kálfar, svín, kanínur,
stökkmýs, naggrísir,
stórir páfagaukar og
kalkúnar og brátt bætast
refir í hópinn. Í Slakka er
líka innidýragarður,
veitingasala og 800
fermetra golfhús með
mínígolfvelli og
púttvelli. Þar er líka að
finna tvö pool-borð,
billjardborð og ýmis
leiktæki.
HVAMMSVÍK
Fjölskyldufjör
í Hvammsvík!
Frístundasvæðið í Hvammsvík, Kjósarsýslu hefur opnað að nýju og
hefur aldrei verið ævintýralegra. Hvammsvík er aðeins steinsnar frá
höfuðborgarsvæðinu og þar getur öll fjölskyldan átt unaðslegar
stundir saman – og öllum finnst gaman!
Nánari upplýsingar
í síma 566 7023 og á www.hvammsvik.is
F
Í
T
O
N
/
S
Í
A
Þúsundum silunga hefur
verið sleppt í vatnið og
frábær veiðivon fyrir unga
sem aldna, reynda sem
byrjendur.
Silungsveiði
Golfvöllurinn er nú í
umsjón GR og hefur verið
endurbættur. Völlurinn
hentar vel fyrir alla
fjölskylduna, byrjendur
jafnt sem lengra
komna.
Golf
Taktu tjaldið með þegar þú
mætir í Hvammsvík.
Þar er fyrirtaks tjaldstæði,
grillaðstaðan alveg glimrandi
fín og umhverfið
undurfagurt.
Tjaldstæði
með frábærri aðstöðu