Fréttablaðið - 13.06.2009, Qupperneq 4
4 13. júní 2009 LAUGARDAGUR
KONUR
ERTU BÚIN
AÐ HLAUPA
Í 20 ÁR?
Hefur þú tekið þátt í Sjóvá Kvennahlaupi ÍSÍ frá upphafi?
Ef svo er þá langar okkur að kynnast þér. Vinsamlegast hafðu
samband við Jónu Hildi Bjarnadóttur, framkvæmdastjóra
Kvennahlaupsins, í síma 514 4000 eða á jona@isi.is.
SJOVA.IS
GENGIÐ 12.06.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
218,8064
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
127,71 128,31
210,15 211,17
179,1 180,1
24,05 24,19
20,11 20,228
16,673 16,771
1,3 1,3076
196,96 198,14
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
DÓMSMÁL Fernt hefur verið ákært
fyrir að ræna eldri hjón á Arnarnesi
í lok apríl. Tveir menn, 22 og 31 árs,
voru ákærðir fyrir að ryðjast inn í
húsið, ráðast á hjónin, halda þeim í
gíslingu og ræna þau, og tvær stúlk-
ur fyrir að leggja á ráðin um ránið
og bíða mannanna úti í bíl.
Mönnunum er gefið að sök að
hafa ruðst inn á heimilið við Máva-
nes á Arnarnesi. Þar mun annar
þeirra hafa tekið fyrir vit konunn-
ar, sem er á áttræðisaldri, og snúið
hana niður í gólfið, skipað henni
að taka af sér tvo hringa og síðan
slegið hana þrisvar af alefli í höf-
uðið þegar hún reyndi að komast á
fætur.
Hinum er gefið að sök að hafa
farið niður í kjallara og lagt hníf
að hálsi mannsins, sem er á nír-
æðisaldri, krafið hann um peninga
og hótað að stinga hann. Hann hafi
síðan hótað hjónunum báðum líf-
láti stöðugt á meðan félagi hans
fór ránshendi um húsið.
Áður en mennirnir fóru skáru
þeir á símalínur og hótuðu að
skjóta hjónin á færi ef þau hreyfðu
sig næstu tíu til fimmtán mínút-
ur.
Mennirnir höfðu á brott með sér
seðlaveski með fimmtíu þúsund
krónum, fartölvu, farsíma, vegg-
síma og skartgripi að andvirði rúm
milljón.
Barnabarn mannsins er ákært
fyrir að leggja til að farið yrði inn
á heimilið og benda á hvar verð-
mæti væri að finna. - sh
Fernt ákært fyrir hrottafengið rán á heimili eldri hjóna á Arnarnesi:
Hótuðu að skjóta hjónin á færi
Sigurður Ólason, sem nú situr
í gæsluvarðhaldi grunaður um
aðild að fíkni-
efnamisferli
og peninga-
þvætti, átti
ekki gúmmí-
bátinn sem not-
aður var til að
sækja rúm 100
kíló af fíkni-
efnum í skútu
austur af land-
inu í apríl, eins
og staðhæft var ranglega í blað-
inu í gær.
Sigurður Ólason er beðinn vel-
virðingar á þessari rangfærslu.
Fólkið er allt ákært fyrir húsbrot,
rán og brot gegn frjálsræði manna,
jafnvel þótt það hafi átt mjög
mismikinn þátt í brotinu. Þau eru öll
sökuð um að hafa tekið ákvörðun
um ránið í félagi hvert við annað, og
teljast því meðsek í málinu, að mati
ákæruvaldsins.
ÖLL ÁKÆRÐ FYRIR BROTIÐ
Ranghermi um bátseiganda:
Sigurður átti
ekki gúmbátinn
EFNAHAGSMÁL Stjórn Félags
íslenskra stórkaupmanna (FÍS)
sendi öllum þingmönnum bréf í
fyrradag þar sem þeir eru hvatt-
ir til að fjalla um Evrópumálin á
efnislegum forsendum. Eins að
þeir geri það með áherslu á hröð
og öguð vinnubrögð svo hægt
verði að hefja aðildarviðræður
við Evrópusambandið sem fyrst.
„Íslensk þjóð má ekki við því
að enn eina ferðina fari vikur og
mánuðir í þras um skipan nefnda
eða tæknilegar útfærslur sem er
til þess eins fallið að tefja grund-
vallarmál með tilheyrandi tjóni
fyrir almenning,“ segir í bréfinu.
- jse
Bréf frá FÍS til þingmanna:
Hvattir til að
láta af þrasi
SIGURÐUR ÓLASON
STJÓRNMÁL „Við munum efla emb-
ættið og væntanlega fjölga sak-
sóknurum,“ segir Steingrímur
J. Sigfússon fjármálaráðherra á
fundi forystumanna ríkisstjórnar-
innar með blaðamönnum í gær.
Steingrímur sagði að ákveðið
hefði verið að auka fjárframlag
til embættis sérstaks saksókn-
ara. Óljóst er hversu mikið fram-
lagið muni hækka. Aukningunni
er ætlað að tryggja viðunandi
aðstöðu rannsakenda og kemur í
kjölfarið á gagnrýni Evu Joly á
umgjörð rannsóknarinnar.
Greint var frá fyrirhuguðu
frumvarpi til laga um ráðgefandi
þjóðaratkvæðagreiðslu. Frum-
varpið felur í sér að Alþingi getur
með einföldum meirihluta boðað
til þjóðaratkvæðagreiðslu. Þá er
gert ráð fyrir að byggt verði á
núverandi kosningakerfi og engin
skilyrði um lágmarksþátttöku.
Einnig kom fram að gert er ráð
fyrir því að boðað verði til kosn-
inga með að minnsta kosti þriggja
mánaða fyrirvara.
Jóhanna Sigurðardóttir forsæt-
isráðherra greindi frá því að Hag-
fræðistofnun og Félagsvísinda-
stofnun Háskóla Íslands hafi verið
falið að vinna stöðumatsskýrslu
sem nær allt aftur til ársins 1990
og fram til dagsins í dag. Skýrsl-
unni er ætlað að meta árangur
efnahagsaðgerða á því tímabili.
Skýrslan á að vera tilbúin í sept-
ember á þessu ári.
Steingrímur greindi einnig frá
því að tillögur um eigenda- og
eignarhaldsstefnu á fyrirtækjum
í eigu ríkisins hafi verið kynntar
á ríkisstjórnarfundi. Tillögurn-
ar fela í sér að eignarhald ríkis-
ins á bönkum og fjármálastofn-
unum verði fært til sjálfstæðra
aðila sem fara með eignarhaldið
og eftir eigendastefnu ríkisins.
Frumvarp er væntanlegt í næstu
viku.
Áætlað er að aðgerðir í ríkis-
fjármálum verði kynntar í næstu
viku. Steingrímur telur ekki nauð-
synlegt að grípa til uppsagna hjá
hinu opinbera. Hugsanlegt er þó
að starfsfólki muni fækka þar
sem ekki verður ráðið í stöður
sem losna.
Greint var frá fyrirhuguðu
frumvarpi um kjararáð á vegum
ríkisins. Kjararáðinu er ætlað að
ákvarða laun æðstu stjórnenda
opinberra fyrirtækja. Engin laun
í opinbera kerfinu munu verða
hærri en laun forsætisráðherra.
Ákveðið hefur verið að fresta
þjóðlendukröfulýsingu ríkisins.
Stóð til að ljúka þeirri vinnu fyrir
2011. bjornthor@frettabladid.is
Fjárframlög aukin í
rannsókn á hruninu
Fjármagn til sérstaks saksóknara verður aukið og saksóknurum fjölgað. Frum-
varp til laga um ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu lagt fram í næstu viku.
Fjármálaráðherra segir engar uppsagnir hjá ríkinu en ekki ráðið í lausar stöður.
AÐGERÐIR KYNNTAR Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon greindu frá
fyrirhuguðu lagafrumvarpi um kjararáð sem mun ákvarða laun æðstu stjórnenda
opinberra fyrirtækja. Einnig var greint frá fyrirhuguðu frumvarpi um ráðgefandi þjóð-
aratkvæðagreiðslu. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
EFNAHAGSMÁL „Það hafa engar
konkret tillögur komið fram, ekk-
ert á pappír, ekkert konkret,“
segir Hannes G. Sigurðsson,
aðstoðarframkvæmdastjóri Sam-
taka atvinnulífsins. Hann var
inntur frétta af samráðsfundum
ríkisstjórnar og aðila vinnumark-
aðarins í Karphúsinu.
Hannes segir að úr ráðuneyt-
unum hafi einungis borist niður-
skurðarhugmyndir frá félags-
málaráðherra, og svo hafi verið
farið almennt yfir stöðuna í heil-
brigðisráðuneyti.
„Þetta er bara mjög erfitt
ástand. Það hafa ekki komið nein-
ar pólitískar áherslur um hvort
eigi að lækka eitt eða annað.
Enda þarf að lækka allt.“ - kóþ
Samráðsfundir í Karphúsinu:
Engar tillögur,
ekkert á pappír
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
28°
26°
20°
16°
23°
23°
26°
18°
18°
24°
22°
28°
27°
34°
14°
25°
18°
14°
Á MORGUN
Hæg breytileg átt.
MÁNUDAGUR
Vaxandi SA-átt S- og
V-til síðdegis.
11
11
10
11
9
6
8
8
10
5
12
3
2
3
2
1
4
2
2
3
6
3
12
9
10
10
11
12
11 11
12
10
SÍÐDEGISSKÚRIR
Helgin lítur
þokkalega út fyrir
fl esta landshluta
en mesta vætan
verður austanlands
í dag en annars
verður yfi rleitt
skýjað með köfl um
og úrkomulítið.
Seint á mánudag
kemur lægð upp
að landinu með
tilheyrandi vætu
og vind fyrst um
sunnan og vestan-
vert landið.
Elísabet
Margeirsdóttir
Veður-
fréttamaður
ÍRAN, AP Metkjörsókn var í for-
setakosningum í Íran sem fóru
fram í gær. Biðraðir voru svo
langar að
ákveðið var að
halda kjörstöð-
um opnum til
miðnættis, sex
klukkustund-
um lengur en
til stóð.
Kosningarn-
ar eru tald-
ar verða þær
mest spenn-
andi í langan
tíma, en val kjósenda stendur
aðallega á milli harðlínuforset-
ans Mahmoud Ahmadinejad og
Mir Hossein Mousavi, sem er
fyrrverandi forsætisráðherra
og aðhyllist aukið frelsi og nán-
ari samskipti við Vesturlönd.
Kosningabaráttan hefur verið
hörð og líkst að mörgu leyti
frekar kosningum í vestrænum
ríkjum en öðrum Mið-Austur-
löndum. - þeb
Kosningar í Íran í gær:
Metkjörsókn í
kosningum
MAHMOUD
AHMADINEJAD
STJÓRNMÁL Jónmundur Guðmars-
son, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi,
verður næsti
framkvæmda-
stjóri Sjálf-
stæðisflokks-
ins. Hann tekur
við af Grétu
Ingþórsdóttur
á næstunni, en
hún hefur gegnt
starfinu síðan
Andri Óttars-
son sagði af sér
í apríl vegna umræðunnar um
styrki til flokksins.
Jónmundur mun hætta sem
bæjarstjóri á Seltjarnarnesi
þegar hann tekur við starfinu.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins er ekki ákveðið hver
tekur við af honum. Þar kemur
tvennt til greina; annaðhvort
verður utanaðkomandi maður
ráðinn eða annar bæjarfulltrúi
flokksins tekur við starfinu. - sh
Nýr framkvæmdastjóri:
Jónmundur
stýrir Valhöll
JÓNMUNDUR
GUÐMARSSON