Fréttablaðið - 13.06.2009, Síða 6
6 13. júní 2009 LAUGARDAGUR
VIÐSKIPTI Heildarmat fasteigna
lækkar um 0,3 prósent á árinu
2010 samkvæmt nýju mati frá
Fasteignaskrá Íslands. Ný reikni-
aðferð var hins vegar tekin í gildi
fyrir árið 2010 og mætti áætla að
munurinn sé í raun 10 prósent, að
sögn Þorsteins Arnalds, aðstoð-
arframkvæmdastjóra mats- og
hagsviðs Fasteignaskrár Íslands.
Í gamla matinu hafi verið kerfis-
bundin skekkja.
Samkvæmt matinu, sem taka
ber með fyrirvara sökum nýrra
reikniaðferða, hækkar mat á íbúð-
arhúsnæði um 2,5 prósent. Fjöl-
býlishús hafa hins vegar lækkað
að raunvirði um 30 prósent frá því
snemma á árinu 2008, segir Þor-
steinn. Matið fyrir 2010 gerir ráð
fyrir að mat á atvinnuhúsnæði
lækki um 6 prósent, jarðir lækka
um 2,2 prósent og sumarbústaðir
lækka um 5 prósent.
Sveitarfélög mega innheimta
0,5 prósent af fasteignamati íbúða
í skatta og 1,32 prósent af öðrum
fasteignum. Fasteignaskattur
er aðskilinn útsvarinu. Tekjur á
þessu ári vegna skattsins skila um
41 milljarði. Fasteignamat hefur
einnig áhrif á holræsa-, vatns-, og
lóðarleiguskatt sveitarfélaganna.
Fasteignamatið 2010 er mun hærra
samkvæmt nýju reikinaðferðinni
en fyrir árið í ár. Það þýðir meiri
tekjur fyrir sveitarfélögin.
„Þetta er jákvætt fyrir sveitarfé-
lögin en neikvætt fyrir skattgreið-
endur,“ segir Þórólfur Matthíasson
hagfræðiprófessor. Nýja aðferð-
in er að hans mati betur til þess
fallin að gera verðmatið nákvæm-
ara. Hann telur jafnframt að veðr-
ými fasteigna aukist með háu fast-
eignamati.
Lækkun á fasteignamati hefur
óbein áhrif á verðbólgu í gegn-
um skattheimtu sveitarfélaganna.
Því meira sem fasteignamat lækk-
ar, því meira má gera ráð fyrir að
verðbólgan lækki.
Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæj-
arfulltrúi á Akureyri og stjórn-
armaður í Fasteignaskrá Íslands,
segir fasteignaskatt sveitarfélaga
vera stofn sem ekki hafi verið nýtt-
ur að fullu. Í Kópavogi er skattur-
inn 0,259 prósent af fasteignamati
íbúða, 0,268 prósent í Reykjanes-
bæ, 0,22 prósent í Garðabæ, 0,24
prósent í Hafnarfirði, 0,32 pró-
sent á Akureyri og 0,214 prósent
í Reykjavík.
Sigrún segir nýju reikniað-
ferðina, þar sem hver fasteign er
endurmetin árlega í ljósi kaup-
samninga sem gerðir eru um sam-
bærilegar eignir, mjög til bóta og
sýni betur markaðsvirði fasteigna.
Áður var fasteignaverð framreikn-
að frá ári til árs og mat fylgdi ekki
að fullu breytingum á markaðs-
verði.
Í nýju útreikningunum eru tekn-
ir inn eiginleikar sem hafa áhrif á
matið, eins og staðsetning, flatar-
mál og byggingarár. Staðsetning
getur haft mikil áhrif á fasteign-
ir. Þannig getur sama hús í Graf-
arvogi verið metið 54 prósent dýr-
ara í Suður-Þingholtunum. Ef hús
er flutt úr Suður-Þingholtum yfir á
Miklubraut mundi fasteignamatið
hins vegar lækka um 79 prósent.
Fasteignamat ársins 2010 mið-
ast við verðlag fasteigna í febrú-
ar 2009. Fasteignaskrá sendir í
næstu viku út tilkynningar til
fasteignaeigenda þar sem matið er
kynnt. „Matið berst í síðasta lagi á
fimmtudag,“ sagði Margrét Hauks-
dóttir, aðstoðarforstjóri Fasteigna-
skrár. vidirp@frettabladid.is
Fasteignamat lækkar
í raun um tíu prósent
Fjölbýlishús hafa lækkað um 30 prósent frá 2008. Ný reikniaðferð er notuð sem
gerir fasteignamat hærra. Jákvætt fyrir sveitarfélög, neikvætt fyrir skattgreið-
endur, segir prófessor. Bæjarfulltrúi segir fasteignaskatt ekki nýttan að fullu.
BLAÐAMANNAFUNDUR Þorsteinn Arnalds aðstoðarframkvæmdastjóri, Margrét
Hauksdóttir aðstoðarforstjóri og Sigrún Björk Jakobsdóttir, stjórnarmaður í Fasteigna-
skrá, kynna niðurstöður fasteignamats fyrir árið 2010 á blaðamannafundi í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Sveitarf. Breyting* á heildarmati**
Reykjavík -1,2%
Kópavogur -1,6%
Garðabær +1,3%
Hafnarfjörður -3,6%
Reykjanesbær +10,4%
Akureyri +0,4%
Vestm.eyjar 0%
Árborg 0%
*Taka ber útreikningum með fyrirvara sökum
nýrrar reikniaðferðar sem lögleidd var 1. janúar
2009.
** Inn í heildarfasteignamat reiknast íbúða-
verð, verð á atvinnuhúsnæði, sumarbústöðum
og jörðum.
BREYTING EFTIR
SVEITARFÉLÖGUM
Hverfi Matsbreyting*
Grafarvogur - norður -4,1%
Suður-Þingholt +31,5%
Hafnarfjörður - Vellir -16,2%
Laugarneshverfi/Vogar +2,5%
Hlíðar +2,9%
Kópavogur - vesturbær +2,7%
Meðaltal á höfuðb.svæðinu +1,25%
*Taka ber alla útreikninga með fyrirvara sökum
nýrrar reikniaðferðar sem lögleidd var 1. janúar
2009.
BREYTINGAR Á HÖF-
UÐBORGARSVÆÐINU
„Ég vil ekki hugsa til þess að börnin mín geti
verið skyldug til þátttöku í evrópskum her í
framtíðinni.“
Innan ESB eru heimildir fyrir Evrópusambandsher og umræða
fer nú fram innan ESB um nauðsyn þess að efla hernaðarmátt
bandalagsins þar sem aðildarþjóðir eru skyldugar til að verja
hver aðra.
Erla Margrét Gunnarsdóttir, byggingartæknifræðingur
Við erum ekki
hermenn!
Ertu sammála? Skráðu þig á www.heimssyn.is
LÖGREGLUMÁL Gúmmíbáturinn sem
notaður var til að sækja 109 kíló af
fíkniefnum út í Papey í apríl er í
eigu viðskiptafélaga Sigurðar Óla-
sonar, sem nú situr í gæsluvarð-
haldi grunaður um peningaþvætti,
tengsl við alþjóðlegan glæpahring
og aðild að fíkniefnasmygli.
Viðskiptafélaginn situr í stjórn-
um tveggja fyrirtækja í eigu Sig-
urðar og hefur tengst honum í
gegnum nokkur önnur fyrirtæki
sem nú eru farin í þrot.
Þessi sami viðskiptafélagi Sig-
urðar er auk þess endurskoðandi
fyrirtækisins Shark ehf., báta-
leigu sem stofnuð var af Jónasi
Árna Lúðvíkssyni og Árna Hrafni
Ásbjörnssyni. Jónas og Árni sitja
báðir í gæsluvarðhaldi vegna Pap-
eyjarsmyglsins svokallaða. Jónas
er grunaður um að vera annar af
höfuðpaurunum í málinu og Árni
Hrafn var handtekinn um borð í
skútunni Sirtaki á flótta undan
lögreglu.
Þá var einnig leitað í húsi í
eigu Sigurðar í Kaupmannahöfn í
tengslum við Pólstjörnumálið svo-
kallaða, sem kom upp á Fáskrúðs-
firði árið 2007. Þá var 40 kílóum af
fíkniefnum smyglað til landsins.
Ársæll Snorrason, góðvinur
Sigurðar, situr einnig í gæslu-
varðhaldi vegna málsins. Gæslu-
varðhald yfir þriðja manninum,
Gunnari Viðari Árnasyni, var
framlengt um viku í gær. - sh
Gúmmíbáturinn sem notaður var til að sækja fíkniefni í Papey í apríl:
Viðskiptafélagi Sigurðar átti bátinn
GÚMMÍBÁTURINN Viðskiptafélagi
Sigurðar er enn fremur stjórnarmaður í
fyrirtækinu sem auglýsti bátinn til leigu
fyrr á árinu. MYND/ÓLAFUR BJÖRNSSON
SJÁVARÚTVEGSMÁL Jón Bjarnason,
landbúnaðar- og sjávarútvegs-
ráðherra, heimsótti fiskmark-
að í Hull í Bretlandi á dögunum
og mun hafa verið á leið á kynn-
ingu á sjálfbærum sjávarútvegi
í íslenska sendiráðinu í Lundún-
um.
Sjávarútvegsráðherra skoðaði
uppboðsfyrirkomulag markað-
arins og tölvustýrða fiskverkun,
segir í frétt á Fishgate.com.
Í fréttinni
segir einnig að
íslensk stjórn-
völd séu að
kanna mögu-
leikann á því
að ganga í Evr-
ópusamband-
ið, til að létta á
efnahagserfið-
leikum vegna
kreppunnar.
„En sjávarútvegsráðherrann
dró ekki dul á andstöðu sína, og
síns flokks, við hugmyndina,“
segir í fréttinni.
„Ég trúi ekki á það að banka á
dyr sem maður hefur engin áform
um að ganga inn um,“ er haft eftir
ráðherranum.
Jón mun hafa verið í för með
Friðriki J. Arngrímssyni, fram-
kvæmdastjóra LÍÚ.
- kóþ
Sjávarútvegsráðherra á ferðalagi með framkvæmdastjóra LÍÚ:
Vill ekki banka á dyr ESB
JÓN BJARNARSON
Tvennt með fölsuð skilríki
Afganskur karlmaður og moldovísk
kona hafa verið dæmd í fangelsi í
mánuð fyrir að framvísa stolnum og
fölsuðum vegnabréfum við komuna
til landsins. Bæði játuðu brot sitt.
DÓMSMÁL
Tóku kannabis og lampa
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
upprætti í fyrrakvöld kannabisræktun
við húsleit í Kópavogi. Teknar voru um
100 kannabisplöntur og átta gróður-
húsalampar. Karlmaður á fimmtugs-
aldri, var handtekinn.
LÖGREGLUMÁL
Hanna Birna Kristjánsdóttir borgar-
stjóri tók í vikunni skóflustungu að
nýjum samreknum leik- og grunn-
skóla í Úlfarsárdal. Reiknað er með
um fjörutíu börnum á leikskólaaldri
á fyrsta starfsári og svipuðum fjölda
grunnskólabarna í 1. til 4. bekk. Áætl-
aður kostnaður við framkvæmdirnar
er 460 milljónir króna.
REYKJAVÍK
Eiga námslán að vera jafnhá
atvinnuleysisbótum?
Já 68%
Nei 32%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Myndirðu sakna verslunar Máls
og menningar af Laugavegin-
um?
Segðu skoðun þína á visir.is.
ÍRAK, AP Leiðtogi stærsta stjórn-
málaflokks súnní-múslima í
Írak var drepinn í gær.
Harith al-Obeidi og að
minnsta kosti fjórir til viðbót-
ar létust eftir að ungur maður
kastaði handsprengju að al-
Obeidi. Hann hafði nýlokið við
að halda predikun í mosku í
vesturhluta Bagdad og var fyrir
utan moskuna þegar árásin átti
sér stað.
Forsætisráðherrann Noui al-
Maliki varaði við því á fimmtu-
dag að ofbeldi myndi líklega
aukast í aðdraganda þingkosn-
inga, sem verða í janúar.
- þeb
Ofbeldi eykst í Írak:
Leiðtogi súnní-
flokks drepinn
REYKJAVÍK Ólafur F. Magnússon
borgarfulltrúi segir ósanngjarnt
af Þorleifi Gunnlaugssyni, fulltrúa
VG, að bendla
Ólaf við söluna á
Fríkirkjuvegi 11
í blaðinu í gær.
Sem borgar-
stjóri hafi Ólaf-
ur, líkt og VG í
landsstjórninni
núna, þurft að
„verka upp flór-
inn“ eftir fyrri
meirihluta.
„Ég átti engan kost á því að
slíta þeim skuldbindandi kaup-
samningi sem Sjálfstæðisflokkur,
Framsóknarflokkur og Samfylk-
ing, ásamt Margréti Sverrisdóttur,
höfðu gengið frá árið 2007,“ segir
Ólafur. Hann minnir á að hann
hafi barist gegn sölunni vorið
2006. - kóþ
Borgarfulltrúi F-lista:
Neyddist til að
skrifa undir
ÓLAFUR FRIÐRIK
MAGNÚSSON
KJÖRKASSINN