Fréttablaðið - 13.06.2009, Page 12
13. júní 2009 LAUGARDAGUR
FRÉTTAVIÐTAL: Forstjóri Símans
FRÉTTASKÝRING
JÓN SIGURÐUR EYJÓLFSSON
jse@frettabladid.is
Námsbraut á meistarastigi
Námsbrautir á grunnstigi
Vegna bilunar í vefvistunarkerfi
dagana 2. til 5. júní komust
umsóknir því miður ekki til skila.
Allir sem sóttu um nám hjá okkur þessa
daga eru því vinsamlegast beðnir að hafa
samband í síma 525 4444.
Fáir vita að Síminn sinnir
90 þúsund sjófarendum
um öll heimsins höf. For-
stjórinn sagði Fréttablað-
inu frá því og útrásinni í
Danmörku og Bretlandi en
einnig frá því að Síminn
hyggist hefja það sem kall-
að er fjarlækningar en þær
hefðu veruleg samfélagsleg
áhrif hér á landi.
Sævar Freyr Þráinsson útskrif-
aðist sem viðskiptafræðingur frá
Háskóla Íslands árið 1995. Í hálft
ár eftir það starfaði hann hjá litlu
tölvufyrirtækið en síðan lá leið
hans í Símann. „Satt að segja man
ég ekki alveg hvaða titil ég bar
fyrst,“ segir hann og brosir við.
Hann var síðan ráðinn forstjóri
Símans síðla árs 2007. „Þá fyrst
fékk ég skrifstofu og það tók smá
tíma að venjast því en sú aðlög-
un var kannski ekki það verkefni
sem var hvað mest aðkallandi en
strax á þessum tíma voru ein-
hverjar blikur á lofti um að efna-
hagsástandið væri að fara á verri
veg svo segja má að ég hafi aðeins
verið forstjóri í samdrætti.“ Það
kom sér vel að hafa verið „alinn
upp“ hjá Símanum eins og hann
kemst stundum sjálfur að orði því
guðspjall dagsins fyrir nýjan for-
stjóra var að sjá hvar mætti hag-
ræða og hvernig. Fljótlega eftir
hrun fór Síminn að endursemja við
byrgja líkt og önnur fyrirtæki og
síðan var farinn sú leið að lækka
launakostnað. „Við ákváðum að
lækka frekar en fækka. Sú leið var
farin til að slá skjaldborg um störf
okkar fólks. Þannig að við óskuð-
um eftir því að starfsfólk sem er
með 350 þúsund og yfir í mánað-
arlaun tæki á sig launalækkun og
allir skrifuðu sjálfviljugir upp á
það og ég er afar stoltur af því.“
Þegar líða tók á vetur var Teymi
yfirtekið sem þýddi að Síminn,
gamla ríkisfyrirtækið, var komið
í samkeppni við ríkið. Þar þykir
Sævari Frey óvægilega að Sím-
anum vegið. Hann hefur gagn-
rýnt það að skuldir Vodafone upp
á 4,5 milljarða væru afskrifað-
ar við yfirtökuna. „Þetta er svip-
að skuldahlutfall og hjá okkur og
við ráðum auðveldlega við okkar
skuldir, þeir ættu að gera það líka.
Þarna er því verið að fella niður
skuldir að óþörfu.“ Hann vildi að
Vodafone yrði látið standa á eigin
fótum þótt móðurfélagið yrði tekið
yfir. Hann hefur einnig gagnrýnt
það að Ríkiskaup hyggist taka
boði Vodafone í fjarskiptaþjónustu
við Landspítalann. Eiginfjárstaða
fyrirtækisins var neikvæð og því
stóðst það ekki útboðsskilyrðin,
segir Sævar Freyr. Ríkiskaup mat
það hins vegar ekki svo því að eig-
infjárstaðan yrði komin í samt lag
við undirritun samningsins.
Sinna 90 þúsund sjófarendum
En nú segir forstjórinn frá útrás
og miklum framtíðaráformum
sem minna á þá tíð þegar Sævar
Freyr var ekki kominn með
kontór. „Við erum búin að koma
upp GSM-þjónustu sem við köll-
um On Waves í skemmtiferða-
skipum um allan heim þannig að
bæði áhöfn og gestir geta notað
sinn síma hvort sem skipin eru
undan ströndum Evrópu eða Asíu.
Símtalið fer í gegnum gervihnött,
síðan hingað til Íslands og er með-
höndlað eins og venjulegt GSM-
símtal hér á landi. Það má segja
að þetta sé afsprengi af þjónustu
okkar við íslensk fiskiskip. En
með því að nýta þessa þekkingu
höfum við náð að búa til vissa sér-
stöðu og með þessu móti erum við
komin með aðgengi að tæplega 90
þúsund notendum um öll heims-
ins höf.“ Síminn hóf þessa útrás
í maí 2007. Hann hefur nú gert
samninga við um fjörutíu skip og
nema tekjurnar um einum millj-
arði króna.
Útrás í Danmörku og Bretlandi
Sævar Freyr segir að síðustu
árin megi líta á talsímann, gagna-
flutninga og farsímann sem þrjár
meginstoðir fyrirtækisins. En nú
er hugmyndin að bæta tveimur
stoðum við. „Síminn býður upp
á þjónustu sem kölluð er Vist en
hún gengur út á það að samtvinna
þjónustuna fyrir fjarskiptatækni
og upplýsingatækni. Fyrirtæki
sem nýta sér þetta fá því þjónustu
fyrir síma, sjónvarp, tölvukerfi
sitt og fleira í einum pakka. Það
þýðir gríðarlega hagræðingu fyrir
viðkomandi fyrirtæki,“ útskýrir
Sævar Freyr. Síminn á dótturfyr-
irtæki í Danmörku, Síminn DK,
sem býður upp á þessa þjónustu og
hefur um 1,5 milljarða í tekjur af
henni. „Við erum einnig vel á veg
komin með að bjóða upp á þetta
í Bretlandi en þeir eru aðeins
aftar á merinni í þessum efnum
en Danir svo það er aðeins sein-
legra að koma þessu af stað þar.
En við teljum að það verði innan
þriggja ára.“
Herja á heilbrigðisgeirann
Fimmtu stoðinni er hins vegar
ætlað að hafa mikil samfélags-
leg áhrif hér á Íslandi. „Sím-
inn hefur unnið að því um langa
hríð að skapa sér sérstöðu í heil-
brigðisgeiranum,“ segir Sævar
Freyr. „Það er að segja að bjóða
upp á fjarlækningar og þjónustu
í kringum þær. Ekki svo að segja
að við ætlum að fara að binda um
sár á fólki heldur að nýta okkur
fjarskiptin og upplýsingatæknina
til að tryggja fullkomnustu lækn-
isþjónustu hvar sem fólk er statt
hverju sinni. Rannsóknardeildin
okkar hefur verið í umfangsmiklu
verkefni í eitt og hálft ár sem
miðar að því að vinna að lausn-
um á þessu sviði. Við höfum verið
í samvinnu við nokkur af stærstu
fjarskiptafyrirtækum Evrópu
og fáum greitt frá þeim fyrir að
þróa lausnir fyrir fjarlækningar
almennt.“
Útfærslan er á þá leið að sjúk-
lingar geti verið með þráðlaus-
an búnað við höndina til að mæla
blóðþrýsting, hjartslátt, öndun og
blóðsykur svo dæmi séu tekin.
Upplýsingarnar færu síðan sjálf-
virkt í gegnum GSM-síma yfir
í netþjón sem býr til skýrslur
úr gögnunum og kemur þeim til
lækna. „Það yrði augljós samfé-
lagslegur hagnaður af þessu því
þessi tækni gerði fólki oft kleift að
fara fyrr heim en ella af spítölum
og sjúkrastofnunum og halda ekki
dýrum plássum uppteknum. Fólk
getur þá verið heima hjá sér án
þess að vera komið úr beinni lækn-
isumsjá. Síðast en ekki síst gæti
þetta orðið til þess að gera eldri
borgurum kleift að vera lengur í
eigin húsnæði. Þetta miðar nefni-
lega einnig að því að hægt sé að
hafa skynjara inni hjá fólki sem
myndu þá gera viðvart ef viðkom-
andi dytti eða ef hann væri ekki
kominn fram úr á ákveðnum tíma
og svo framvegis. Við munum
stíga okkar fyrstu skref í þessu
nú þegar á þessu ári en það gæti
tekið okkur allt að áratug að gera
þetta að okkar fimmtu stoð.“
Fá Arsenal-leikinn í farsímann
Það verður greinilega ekki hjá
því komist að forstjórinn tak-
ist á loft og svífi á vit framtíðar-
drauma þegar hann hefur litið við
hjá rannsóknardeildinni. „Það er
freistandi að gleyma sér svolít-
ið við það sem rannsóknardeild-
in er að vinna við og sjá fyrir sér
hvernig hægt verði að nýta sér
tæknina sem vissulega er til stað-
ar en enn er verið að vinna að því
að koma henni á markað. Ég sé
til dæmis fram á að innan fárra
ára geti maður flutt sjónvarps-
efni úr imbakassanum og yfir í
farsímann. Það sjá flestir karl-
menn í hendi sér hvílíkir kostir
fylgja slíku, segjum sem dæmi að
um 20 mínútur séu eftir af Ars-
enal leiknum þegar konan rekur
á eftir manni því fermingarveisl-
an er að hefjast. Þá er hægt að
færa leikinn yfir í farsímann og
fylgjast með leiknum á leiðinni og
mæta svo sæll og glaður í ferm-
ingarveisluna.“
En áður en þetta verður mögu-
legt á Arsenal örugglega eftir að
leika allnokkra leiki.
Sækja kúnnann á sjó
■ Sævar Freyr Þráinsson er fæddur árið 1971 og er því 38 ára gamall.
■ Hann lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla Vesturlands og útskrifaðist
úr Háskóla Íslands árið 1995 sem viðskiptafræðingur.
■ Sama ár hóf hann starfsferil sinn hjá Símanum.
■ Hann er kvæntur Hafdísi Hannesdóttur geislafræðingi og eiga þau börn-
in Arnar Frey, Katrínu Helgu og Helenu Rós.
HVER ER MAÐURINN?
FORSTJÓRINN OG TÆKNIMENNIRNIR Tæknimennirnir sem þarna sjást hafa þann starfann að ráða úr vanda viðskiptavina í
gegnum símann. Sævar Freyr hefur einnig fengið ýmis úrlausnarverkefni inn á sitt borð síðan hann settist í forstjórastólinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR