Fréttablaðið - 13.06.2009, Blaðsíða 39
LAUGARDAGUR 13. júní 2009 3
„Ég hef alltaf haft gaman af að
klæða mig og á alveg ógrynni
af fötum,“ segir Margrét Jústa
Pétursdóttir, sem heldur úti vef-
síðunni blog.central.is/odyr-flott-
fot þar sem hún selur föt af sér og
öðrum fjölskyldumeðlimum.
„Ég fór reglulega með föt í Kola-
portið en ákvað að opna vefsíðu í
febrúar eftir að vinkona mín hafði
gert hið sama með góðum árangri,“
útskýrir Margrét, sem hefur safn-
að saman fötum af systur sinni,
mömmu, kærastanum og jafnvel
ömmu sinni. Hún hefur einnig
verið dugleg að breyta gömlum
fötum en þannig hafa margar púka-
legar flíkur orðið að tískuklæðum
að sögn Margrétar.
Þótt Margrét hafi mikinn áhuga
á tísku og kaupi mikið af fötum á
sjálfa sig segist hún ekki vera þræll
tískunnar. „Ég hef minn eigin stíl
enda er tískan þannig í dag að fólk
er ekki allt steypt í sama mót held-
ur hefur hver sinn eigin stíl,“ segir
Margrét. Hún játar því að salan
hafi gengið vel í gegnum vefsíð-
una. „Ég byrjaði með mjög lítið en
vegna mikillar eftirspurnar fór ég
að setja meira af eigin fötum á síð-
una og fór líka að fá föt hjá kær-
astanum og hinum í fjölskyldunni,“
segir Margrét glaðlega en vill ekki
meina að hún muni standa eftir
fatalaus. „Ég á nóg af fötum. Kær-
astinn minn er orðinn þreyttur á
fatamagninu, enda er næstum eins
og við rekum stórmarkað á heimil-
inu,“ segir Margrét hlæjandi.
Þar sem Margrét sá fram á lít-
inn tíma til að sinna vefsíðu sinni
í sumar ákvað hún að halda fata-
markað á heimili sínu í Drápuhlíð
47 á jarðhæð laugardaginn 13. júní
milli klukkan 12 og 18. Þar verða
til sölu föt fyrir alla aldurshópa,
karla jafnt sem konur. Margrét
segir hægt að gera reyfarakaup en
ódýrustu flíkurnar eru á 500 krón-
ur en þær allra dýrustu á tíu þús-
und og segir Margrét ekki mikið
um slík klæði.
Hún segir öllum velkomið að
koma og skoða það sem í boði er
og gera góð kaup.
solveig@frettabladid.is
Selur föt frá sjálfri sér
Margrét Jústa Pétursdóttir hefur í nokkra mánuði haldið úti vefsíðu þar sem hún selur notuð föt. Hún
heldur fatamarkað á heimili sínu á laugardag þar sem hún selur föt sín og annarra í fjölskyldunni.
Margrét Jústa Pétursdóttir í fatahafi á heimili sínu en þar heldur hún fatamarkað á laugardaginn milli klukkan 12 og 18.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Verslunin Ilse Jacobsen sem flutt
var í Litlatún í haust er komin
aftur á gamla staðinn á Garða-
torgi.
„Það er alveg æðislega gott að
vera komin hingað og hefur komið
okkur á óvart hvað kúnnarnir
okkar eru glaðir yfir að við séum
komnar aftur á gamla staðinn,“
segir Ragnheiður Óskarsdóttir,
annar eigandi verslunarinnar
Ilse Jacobsen, sem var flutt aftur
á Garðatorg í vikunni. „Við flutt-
um af Garðatorgi síðasta haust en
þá stóðu fyrir dyrum breytingar á
miðbæ Garðabæjar og mikið rask
hefði fylgt því. Nú hefur þeim áætl-
unum verið frestað og því ákváð-
um við að koma heim aftur,“ segir
Ragnheiður glaðlega. Hún bendir
á að bæjaryfirvöld hafi nú tekið
við sér og Garðatorg sé óðum að
verða viðkunnanlegt á ný en það
hafi látið á sjá. „Til dæmis á, held
ég, að opna hönnunarsafnið í hús-
næði Hagkaupa og gaman verð-
ur að taka þátt í þeirri spennandi
gerjun sem er í gangi á hönnunar-
og listasviðinu,“ segir Ragnheið-
ur og bætir við að á Garðatorgi
muni verða lögð áhersla á listir og
menningu.
Ragnheiður hefur rekið verslun-
ina ásamt dóttur sinni Ástu Ólafs-
dóttur frá árinu 2005. Þar selja
þær vörur frá Ilse Jacobsen; skó,
töskur, gúmmístígvél og fjölbreytt-
an fatnað. - sg
Ilse Jacobsen flytur
aftur á Garðatorg
Mæðgurnar Ragnheiður Óskarsdóttir og Ásta Ólafsdóttir í verslun sinni sem var
opnuð á ný á Garðatorgi. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA