Fréttablaðið - 13.06.2009, Síða 46
13. júní 2009 LAUGARDAGUR10
Sparisjóðabankinn hf.
Auglýsing um innköllun til skuldheimtumanna.
Með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur 23. mars 2009 var Sparisjóðabankanum hf. kt. 681086-1379, Rauðarárstíg 27,
Reykjavík, veitt heimild til greiðslustöðvunar til 15. júní 2009. Samkvæmt ákvæði til bráðabirgða II í lögum nr. 44/2009
um breytingu á lögum nr. 161/2002 hefur héraðsdómur Reykjavíkur skipað bankanum slitastjórn sem hefur meðal annars
með höndum meðferð krafna hendur bankanum meðan greiðslustöðvun stendur og eftir að slitameðferð hefst að lokinni
greiðslustöðvun.
Frestdagur er 15. desember 2008. Upphafsdagur kröfumeðferðar miðast við gildistöku laga nr. 44/2009 og er 22. apríl
2009, sbr. nánar 1. mgr. og 2. málslið 3. mgr. 102.gr. laga nr. 161/2002, sbr. 6. gr. laga nr. 44/2009.
Með innköllun er birtist fyrra sinni í Lögbirtingablaði sem út kom 3. júní 2009 var skorað á alla þá er telja til hvers
kyns skulda eða annarra réttinda á hendur Sparisjóðabankanum hf. eða eigna í umráðum bankans að lýsa kröfum sínum
skrifl ega fyrir slitastjórn bankans innan fjögurra mánaða frá þeirri auglýsingu. Kröfulýsingarfrestur rennur samkvæmt
því út 3. október 2009. Kröfulýsingar skulu sendar bréfl ega til slitastjórnar bankans að Rauðarárstíg 27, 105 Reykjavík
og skal efni þeirra vera í samræmi við fyrirmæli 2. og 3. mgr. 117. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl . nr. 21/1991. Vegna
áðurnefndra ákvæða 1. mgr. og 2. málsliðar 3. mgr. 102. gr. laga nr. 161/2002, sbr. 6. gr. laga nr. 44/2009, er því beint til
kröfuhafa að í kröfulýsingu komi fram staða kröfu þann 22. apríl 2009.
Kröfum í erlendri mynt skal lýst í viðkomandi mynt. Kröfuhöfum frá aðildarríkjum Evrópska efnahagssvæðisins eða
Fríverslunarsamtaka Evrópu er heimilt að lýsa kröfum á tungumáli heimalands síns. Slíkum kröfulýsingum skal fylgja
íslensk þýðing, en þó er heimilt að lýsa kröfum á ensku án þess að þýðing fylgi. Aðrir kröfuhafar geta lýst kröfum sínum
á ensku.
Sé kröfu ekki lýst innan framangreinds frest gilda um það sömu réttaráhrif og um vanlýsingu kröfu samkvæmt 118. gr.
laga um gjaldþrotaskipti o.fl . nr. 21/1991 og telst hún þá fallin niður gagnvart Sparisjóðabankanum hf. nema undantekn-
ingar í 1.-6. tölulið lagagreinarinnar eigi við.
Sérstaklega er áréttað að með því að lýsa kröfu sinni telst kröfuhafi hafa fallist á brottfall þagnarskyldu (bankaleyndar) að
því er varðar viðkomandi kröfu.
Í áðurnefndri auglýsingu í Lögbirtingarblaðinu er boðað til kröfuhafafundar og verður hann haldinn í fundarsal Spari-
sjóðabankans hf. að Rauðarárstíg 27, 2. hæð, Reykjavík, föstudaginn 23. október 2009 kl. 10.00. Rétt til setu á fundin-
um eiga þeir sem lýst hafa kröfu á hendur bankanum. Á fundinum verður fjallað um skrá yfi r lýstar kröfur og afstöðu
slitastjórnar að því leyti sem hún liggur þá fyrir. Skrá um lýstar kröfur verður aðgengileg þeim sem lýst hafa kröfum á
hendur bankanum að minnsta kosti viku fyrir framangreindan fund.
Nánari upplýsingar um kröfulýsingar og meðferð krafna munu gerðar aðgengilegar á heimasíðu bankans,
www.sparisjodabankinn.is Beinir slitastjórn þeim tilmælum til kröfuhafa að þeir upplýsi um tölvupóstfang sitt
eða umboðsmanns síns í kröfulýsingu til að auðvelda miðlun upplýsinga.
Reykjavík 12. júní 2009
Í slitastjórn Sparisjóðabankans hf.
Andri Árnason hrl.
Berglind Svavarsdóttir hrl.
Tómas Jónsson hrl.
Innkaupaskrifstofa
Framkvæmda- og eignasviðs
Reykjavíkurborgar:
Ýmsar smærri endurbætur á gatnamótum
– útboð I.
Útboðsgögn á geisladiski verða seld á kr. 3.000,
frá kl. 09:00 þriðjudaginn 16. júní 2009, í síma- og
upp¬lýsingaþjónustu Ráðhúss Reykjavíkur.
Opnun tilboða: 1. júlí 2009 kl 10:00, í Ráðhúsi
Reykjavíkur.
12291
Ýmsar smærri endurbætur á gatnamótum 2009
– útboð II.
Útboðsgögn á geisladiski verða seld á kr. 3.000, frá
kl. 09:00 þriðjudaginn 16. júní 2009, í síma- og
upp¬lýsingaþjónustu Ráðhúss Reykjavíkur.
Opnun tilboða: 30. júní 2009 kl 10:00, í Ráðhúsi
Reykjavíkur.
12292
Nánari upplýsingar er að fi nna á
www.reykjavik.is/utbod.
Barnaverndarstofa
Hefur þú áhuga á að
gerast fósturforeldri?
Barnaverndarstofa leitar að þeim sem eru
reiðubúnir að taka barn í tímabundið fóstur. Sérstök
þörf er á þeim sem eru fúsir að taka að sér unglinga
sem eiga við tilfi nningalega erfi ðleika að stríða.
Æskilegt er að fósturheimili séu í eða í námunda við
þéttbýli.
Ýmis reynsla og menntun getur komið að góðu
gagni einkum á uppeldissviði.
Nánari upplýsingar veita starfsmenn
Barnaverndarstofu í síma 530 2600
Grunnskóli Seltjarnarness
Mýrarhúsaskóli – Valhúsaskóli
Óskum eftir að ráða
smíðakennara í 50% starf
(unglingastig)
Upplýsingar veitir: Helga Kristín Gunnarsdóttir
Sími: 5959250, Netfang: helgakr@seltjarnarnes.is
Á Seltjarnarnesi eru um 600 nemendur í
heildstæðum grunnskóla. Skólinn er rekinn
í tveimur starfsstöðvum; Mýrarhúsaskóla
fyrir nemendur í 1. - 6. bekk og Valhúsaskóla
fyrir nemendur í 7. - 10. bekk.
www.grunnskoli.is
S E L T J A R N A R N E S B Æ R
Innkaupaskrifstofa
F.h. Framkvæmda- og eignasviðs
Reykjavíkurborgar:
Leikskólinn Úlfarsbraut 118 – 120 - uppsteypa og
fullnaðarfrágangur.
Útboðsgögn á geisladiski verða seld á kr. 3.000 í
síma- og upp¬lýsingaþjónustu Ráðhúss Reykjavíkur.
Opnun tilboða: 2. júlí 2009 kl 10:00, í Ráðhúsi
Reykjavíkur.
12280
Nánari upplýsingar er að fi nna á
www.reykjavik.is/utbod.
Verslunarhúsnæði til leigu við
Laugaveg 83 Stærð 140 m2
Upplýsingar í síma 693 0203
Ráðgjöf
til fyrirtækja
Firma Consulting, Þingasel 10, 109 Reykjavík.
Símar: 820-8800 og 896-6665. Fax 557-7766
info@firmaconsulting.is, www.firmaconsulting.is
Tilkynningar
Útboð
Auglýsingasími
– Mest lesið