Fréttablaðið - 13.06.2009, Page 54
6 fjölskyldan
34%
74%
Fr
ét
ta
bl
að
ið
M
or
gu
nb
la
ði
ð
Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18-49 ára. Könnun Capacent í febrúar 2009 – apríl 2009.
Fréttablaðið er með 117% meiri lestur en Morgunblaðið
Allt sem þú þarft...
Blaðberinn bíður þín
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 8-17.
sköpum og skemmtum …
Hið fornfræga Austurbæjar-bíó var formlega opnað sem Hús unga fólksins þriðju-daginn 9. júní með göngu,
grillveislu og tónleikum. „Hér er
ungu fólki boðið upp á aðstöðu og
aðstoð við að framkvæma fjöl-
breyttar hugmyndir sínar. Fólki
sem annars sér fram á aðgerðaleysi
í allt sumar,“ lýsir Hreiðar Már til-
gangi miðstöðvarinnar. Hann segir
starfsemina munu byggjast á fólk-
inu sjálfu og segir sköpunarkrafta
þess meðal annars nýtast við and-
litslyftingu á húsinu.
Hreiðar Már býst einkum við
fólki á aldrinum 16 til 25 ára en
segir þó engum vísað frá. „Ég geri
ráð fyrir að aðrir sjái um úrræði
fyrir grunnskólaaldurinn en þeir
sem standa að þessu verkefni,“
segir hann.
Talandi um aðstandendur er rétt
að koma því að að þeir eru Rauði
krossinn í Reykjavík, Samfélagið
Frumkvæði (www.frumkvaedi.is),
Hitt húsið, Lýðheilsustöð og Sam-
band íslenskra framhaldsskóla-
nema. Agnar Jón Egilsson, leikari
og leikstjóri, hefur verið ráðinn
verkefnastjóri og hann sér um að
skipuleggja dagskrána. En hvern-
ig starfsemi sér Hreiðar Már fyrir
sér? „Við setjum enga skilmála um
hvers eðlis verkefnin eigi að vera,
hvenær fólk eigi að mæta né hvað
það eigi að gera. Forvarnarsjóð-
ur Reykjavíkurborgar veitti fimm
milljónum til verkefna í húsinu og
fólk getur því sótt um smástyrki.
Oft er samt hægt að finna ein-
hvern sem á eitthvað sem vantar
og við viljum leiða fólk saman. Við
erum að reyna að útvega fólk til að
halda námskeið, plötusnúðanám-
skeið, í brjóstsykursgerð og öllu
milli himins og jarðar. Húsnæð-
ið er stórt og býður upp á enda-
lausa möguleika. Við erum með
bíósalinn, gamla Silfurtunglið á
efri hæðinni og kjallara þar sem
fólk er þegar byrjað að koma sér
fyrir. Við göngum út frá því að
hvert rými í húsinu verði fjölnýtt,“
útskýrir hann. „Aðalatriðið er að
skapa vettvang þar sem ungt og
drífandi fólk getur komið saman
og lagt krafta sína í eitthvað upp-
byggilegt.“ - gun
Miðstöð ungs fólks
Austurbær við Snorrabraut verður í sumar miðstöð ungs fólks sem vill virkja krafta sína í
hvetjandi umhverfi. Hreiðar Már Árnason er einn af eldhugunum þar á bæ.
Forkólfur Hreiðar Már er í Samfé-
laginu Frumkvæði sem er meðal
aðstandenda að Húsi unga fólksins.
BÖRN með ljósmynda áhuga
á aldrinum tíu til sextán ára
ættu að geta fengið útrás á
sumarnámskeiðum Krissý
ehf. í Kópavogi.
Margt í boði Plötusnúðanámskeið er eitt af því sem er í bígerð í Austurbæ, húsi unga fólksins við Snorrabraut.
Fjölskyldumeðferð nefnist ný
námsbraut á meistarastigi sem
hefst í haust við Endurmenntun
Háskóla Íslands.
„Þetta er bæði fræðilegt og
verklegt nám sem fólk hefur
hingað til þurft að sækja út fyrir
landsteinana. Hugsunin bak við
það er sú að styrkja þá mikil-
vægu stoð sem fjölskyldan, þar
sem hver einstaklingur verður
fyrir áhrifum af því sem gerist í
lífi annarra í sömu fjölskyldu,“
segir Helga Þórðardóttir,
félagsráðgjafi og fjölskylduþer-
apisti. Hún verður kennslustjóri
hinnar nýju brautar sem hún
telur eiga eftir að hafa áhrif til
góðs í samfélaginu því þörf sé á
sérfræðiþekkingu í fjölskyldu-
fræðum, ekki síst í því árferði
sem nú ríkir.
Um þverfaglegt nám er að
ræða. Það er ætlað fólki með
BA-gráður í heilbrigðis-, félags-
eða fræðslugreinum svo sem
félagsráðgjöfum, sálfræðingum,
hjúkrunarfræðingum, geðhjúkr-
unarfræðingum og prestum.
Umsækjendur þurfa líka að vera
búnir að starfa í tvö til þrjú ár til
að komast inn.
Helga segir nám í fjölskyldu-
meðferð í boði alls staðar í
kringum okkur og hún finnur fyrir
áhuga hér. „Þeir sem hafa þegar
sótt um eru búnir að bíða lengi
eftir þessu námi hér á landi.“ - gun
Mikilvæg stoð styrkt
Helga Þórðardóttir er kennslustjóri
hinnar nýju námsbrautar.
FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
frumkvöðlafyrirtæki ársins - fiskvinnsla frá árinu
466 1016
www.ektafiskur.is
Gullkistunni
Okkar víðfrægu saltfisksteikur (Lomos)
ásamt með hefðbundna
íslenska þurrkaða saltfiskinum í gjafaöskju
fást nú einnig í verslunum Hagkaupa!
ÚTSALA
YFIR 1000 VÖRUNÚMER Á LÆKKUÐU VERÐI
einfaldlega betri kostur
laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18 mánudaga - föstudaga 11-19
s: 522 4500 www.ILVA.is
Animal. Barnamyndir. Ýmsar gerðir.
14 x 14 cm. Verð 1.490,- NÚ 990,-
30 x 30 cm. Verð 3.490,- NÚ 2.490,-
990,-
SPARAÐU 500,-
Bjóðum uppá
vaxtalaust lán til
6 mánaða
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/R
Ó
SA
N
O
RD
IC
PH
O
TO
S/
G
ET
TY
tómstundir