Fréttablaðið - 13.06.2009, Page 57
LAUGARDAGUR 13. júní 2009 33
Unnsteinn: „Ég myndi velja Árna
Vill, söngvarann í FM Belfast.
Hann myndi vera fínn flugdólgur,
myndi grilla í farþegunum án þess
að vera eitthvað erfiður. En ann-
ars tók ég ekki eftir þessari frétt,
enda fylgist ég minna með fréttum
núna en ég gerði áður. Það var bara
orðið allt of mikið af vondum frétt-
um í sjónvarpinu. Svo hvarf bróð-
ir minn að heiman einn daginn og
þá var alltaf slökkt á sjónvarpinu.
Okkur pabba fannst það svo fínt að
við hentum því bara. Ég er mjög
ánægður með það.“
Jóhanna: „Það er nú enginn sem
ég gæti ímyndað mér sem væri
skárri en aðrir til að vera með ein-
hver læti í flugi. Það er það sama
með mig, ég horfi mjög lítið á sjón-
varp, ég hef eiginlega engan tíma
fyrir það. Ef ég hlusta á fréttir er
það frekar í útvarpinu í bílnum. Ég
eyði mjög miklum tíma í bílnum.“
Unnsteinn: „Ég hlusta hins vegar
aldrei á útvarp í bílnum, því ég er
aldrei í bíl. Ég er ekki einu sinni
með ökuskírteini.“
Menntun, matur og bensín
Skattahækkanir og niðurskurður
í ríkisútgjöldum hefur verið mikið
í umræðunni. Hvar finnst ykkur
að skera megi niður? Og hvar
alls ekki? Finnið þið mikið fyrir
kreppunni?
Jóhanna: „Ekki hækka bensín
meira! Mér er alveg sama þótt það
verði lagður aukinn skattur á kók,
nammi, sígarettur og áfengi. Það
eru munaðarvörur sem enginn
þarf og eru hvort sem er óhollar.
En þetta er Ísland, ekki Danmörk.
Við getum ekki bara hjólað út um
allt. Ég keyri mjög mikið, eins og
flest venjulegt fólk á Íslandi, og
bensínkostnaðurinn er ótrúleg-
ur. Svo má alls ekki skera niður í
menntun.“
Unnsteinn: „Ég veit ekkert um
bensínverð, því ég er ekki einu
sinni með bílpróf. En ég er sam-
mála með menntunina. Annars
hef ég helst fundið fyrir verð-
hækkunum í útlöndum. Ég fer oft
til útlanda, til dæmis í kórferðir,
og venjulega eru allir mikið að
versla. Nú síðast fór ég til Noregs
og það var frekar skrýtið að geta
alls ekki leyft sér neitt, allt var svo
dýrt. Við þurftum meira að segja
bara að labba framhjá hljóðfæra-
verslunum og gátum ekkert keypt
fyrir hljómsveitina.“
Jóhanna: „Já, ég fann fyrir þessu
þegar ég fór út að keppa í Eurov-
ision. Það var sparað eins og hægt
var hjá okkur, sem var auðvitað
eðlilegt því það er fáránlegt að
eyða miklum peningum í eitthvað
svona núna. En það var ótrúlegt
að sjá hvað margar þjóðir voru að
spreða í þetta. Fimm stjörnu hótel,
tveir stílistar, sérfólk í hári, förð-
un og öllu og alls konar óþarfi í
gangi.“
Drekka hvorki né reykja
Þið eruð bæði á kafi í tónlistinni.
Hefur hún alltaf verið aðalmál-
ið í ykkar lífi? Hvernig gengur að
tvinna saman námið og tónlist-
ina?
Jóhanna: „Alveg frá því ég var lítil
var ég ákveðin í að láta tónlistina
ganga fyrir. Ég fór í Flensborg og
var þar í tvö ár en hætti þegar var
orðið of mikið að gera í tónlistinni.
En þegar það hefur verið rólegt
hjá mér inni á milli hef ég farið
að læra. Ég hef til dæmis verið í
Söngskólanum í Reykjavík og svo
fór ég líka í söngskóla í Noregi þar
sem ég lærði klassíska tækni.“
Unnsteinn: „Ég hef líka alltaf
haft mestan áhuga á tónlist. Það
er mömmu að þakka. Ég flutti til
Íslands frá Portúgal þegar ég var
fimm ára gamall. Mamma mín er
frá Angóla og pabbi er frá Íslandi.
Mamma ákvað að láta okkur bræð-
urna í tónlistarskóla til öryggis,
svona til að hafa annað nám ef hitt
gengi ekki nógu vel. Við í hljóm-
sveitinni erum öll í MH. Það getur
stundum verið skrýtið að vera í
námi og vinnu saman. Til dæmis
þegar við vorum að spila á Airwa-
ves síðast gátum við aldrei farið í
eftirpartíin, því maður var kannski
að halda fyrirlestur um Njálu dag-
inn eftir. En þetta heldur manni
svolítið niðri á jörðinni.“
Jóhanna: „Þetta er ekkert vanda-
mál fyrir mig. Ég drekk ekki, reyki
ekki og ég fer ekki einu sinni á
djammið því mér finnst það bara
leiðinlegt.“
Unnsteinn: „Ég reyndar drekk ekki
heldur og reyki ekki heldur. En ég
vinn á djamminu og mér finnst
það ótrúlega gaman. Ég hef alveg
drukkið en mér finnst skemmti-
legra að vera edrú. Ég ákvað bara
að drekka ekki af því ég vildi sjá
lífið hreint.“
Ávextir frekar en grænmeti
Nú eru allar fjölskyldur með sinn
eigin martjurtagarð. Ræktið þið
eitthvað? Ef þið gætuð fengið hvað
sem er úr ykkar matjurtagarði,
hvað mynduð þið rækta?
Unnsteinn: „Mamma er einmitt
komin með massífa framleiðslu í
garðinum núna. Hún hefur reynd-
ar alltaf verið að rækta kryddjurt-
ir og svona því hún er kokkur. En
núna er eitthvað miklu meira í
gangi, verið að rækta kartöflur og
alls konar grænmeti. Mamma bjó
sko í miðbænum en flutti í Laugar-
dalinn til þess að hún gæti fengið
stærri garð.“
Jóhanna: „Það langar mig líka að
hafa þegar ég kaupi mér eitthvað
fyrir mig sjálfa. Ég bý í Hafnar-
firði núna en seinna ætla ég að
kaupa mér eitthvað í sveitinni,
kannski 40 mínútur frá bænum.
Ég er ekkert borgarbarn.“
Unnsteinn: „Þetta er öfugt við mig.
Ég hef alltaf búið í miðbænum. Ég
bjó á Barónsstíg þegar ég var lítill.
Við götuna var leikskóli, grunnskóli,
fæðingardeild og líkhús. Maður
þurfti ekkert annað. Ég ætla að ala
mín börn upp í miðbænum, þótt það
geti verið að maður leiti einhvern
tímann í friðinn í Þingholtunum.“
Jóhanna: „En ef ég ætti svona
töframatjurtagarð myndi ég vilja
rækta þar alla ávextina í heimin-
um, mangó, jarðarber, appelsínur,
epli …“
Unnsteinn: „Á ég að segjast vilja
rækta andann? Nei, það er of klisju-
kennt. En ég er sammála Jóhönnu.
Það er örugglega frekar svekkjandi
að bíða í heilt sumar eftir því að
eitthvað komi upp úr garðinum og
svo koma kannski bara gulrætur.“
Destiny‘s Child Cover Band
Gætuð þið hugsað ykkur að vinna
saman? Hvað mynduð þið kalla
samstarfið?
Jóhanna: „Ja, það mætti alveg
skoða það.“
Unnsteinn: „Ég er til í það. Getur
verið að þú hlustir á Destiny‘s
Child? Ég er mikill aðdáandi þeirra
og spila þær alltaf þegar ég er að
dj-a. Ég væri til í að búa til Dest-
iny‘s Child Cover Band.“
Jóhanna: „Það kemur alveg til
greina. Ég yrði þá Beyoncé, þú
yrðir Kelly, en hver ætti að vera sú
þriðja?“
Unnsteinn: „Ég held að Rósa í
Sometime gæti verið flott í þetta,
hvað segirðu um það?“
Jóhanna: „Já … eða kannski Reg-
ína? Hún hefur ótrúlega flotta
rödd …“
e s t a b l i s h e d 1 9 3 4
Nú tæplega 100 árum eftir að fyrstu
Andersen & Lauth jakkafötin voru sniðin
á verkstæðinu á Vesturgötunni þá fylgjum
við enn gömlu klæðskeragildunum þegar við
framleiðum okkar jakkaföt.
Jakkafatadagar
í herraverzlun okkar að Laugavegi 7
Fram að 17.júní þá bjóðum
við 25 % afslátt af jakkafötum
Andersen & Lauth 1965
Andersen & Lauth 2009
Unnsteinn kennir krökkum að
spila á gítar en Jóhanna kennir
krökkum að syngja.
Jóhanna hefur leikið Madonnu á
sviði og Unnstein langar að leika
Michael Jackson.
Unnsteinn er fæddur árið 1990 og
Jóhanna líka.
Jóhanna á tvo hunda en Unn-
steinn á einn og hálfan.
Unnsteinn dáir hljómsveitina Dest-
iny‘s Child. Það gerir Jóhanna líka
en finnst Beyoncé standa upp úr.
Jóhanna fer í ræktina sex sinnum
í viku en Unnsteinn er í lyftinga-
klúbbi.
Vissir þú að …