Fréttablaðið - 13.06.2009, Síða 58
34 13. júní 2009 LAUGARDAGUR
E
vrópumótið hefur verið
gulrótin mín alveg síðan
ég meiddist,“ segir Greta
Mjöll Samúelsdóttir, leik-
maður Breiðabliks. Greta
hefur unnið sleitulaust að
því að ná sér góðri af meiðslum síðan
hún sleit krossbönd í júlí á síðasta
ári, og er reyndar í miðjum klíðum í
sjúkraþjálfun þegar blaðamaður hefur
samband. „Ég hef verið mjög dugleg og
gert allt eftir bókinni, en samt stífnaði
hnéð upp eftir æfingu í gær. En von-
andi er þetta allt að koma, því ég ætla
svo sannarlega að gera allt sem ég get
til að komast í leikmannahópinn sem
fer til Finnlands.“
Greta var á fótboltastyrk í Háskóla
í Bandaríkjunum en dvaldi á Íslandi
í vetur vegna meiðslanna. Hún snýr
aftur til Boston á fullum styrk, fær
greidd skólagjöld, húsnæði og uppi-
hald, fyrir að leika með skólaliðinu.
„Ég er að nema fjölmiðlun, eða blaða-
og fréttamennsku, í Bandaríkjunum
og finnst það virkilega skemmtilegt,“
segir Greta. Hún hlær þegar blaðamað-
ur hefur orð á að hún hafi ekki langt að
sækja þann fjölmiðlaáhugann, enda er
faðir hennar Samúel Örn Erlingsson,
landskunnur íþróttafréttamaður til
margra ára. „Ég fékk bakteríuna þegar
ég lýsti Skólahreysti í sjónvarpinu í
vetur, en þó hef ég ekki hug á því að
verða íþróttafréttamaður þegar fram
í sækir. Eins og staðan er núna hef
ég meiri áhuga á dagskrárgerð ýmiss
konar. Til að mynda gæti verið gaman
að sjá um matreiðsluþætti, enda er það
eitt skemmtilegasta sem ég veit að búa
til góðan mat. Ég býð sko aldrei upp á
pitsu,“ segir hún og skellir upp úr.
Spurð um eftirlætis knattspyrnu-
menn og -konur í gegnum tíðina seg-
ist Greta ávallt verða hálf vandræða-
leg þegar hún fær slíkar spurningar.
„Staðreyndin er sú að ég fylgist lítið
sem ekkert með knattspyrnu fyrir
utan það sem snertir mig beint. Ég hef
spilað fótbolta síðan ég var þriggja og
hálfs árs gömul, en hjá mér er þetta
meira verklegt en bóklegt. Reyndar
finnst mér Messi, leikmaður Barce-
lona, hrikalega góður og hef heillast
af honum. Að sama skapi þoli ég ekki
Ronaldo. Hann er glataður og plokk-
ar á sér augabrúnirnar. Það liggur við
að hann sé meiri kona en ég! Af knatt-
spyrnukonum finnst mér hin þýska
Birgit Prinz standa upp úr. Ég lék
gegn henni í Evrópukeppninni og það
var mikil upplifun að fara öxl í öxl við
slíka stjörnu. Reyndar var það frek-
ar eins og öxl í mjöðm, því hún er svo
hávaxin.“
Greta nefnir einnig móður sína,
Ástu B. Gunnlaugsdóttur, sem mikla
fyrirmynd. „Mamma lék fyrsta lands-
leik kvennalandsliðsins árið 1981 og
skoraði. Minn fyrsti landsleikur árið
2005 var hundraðasti leikur liðsins, og
í honum skoraði ég. Við erum sem sagt
fyrstu mæðgurnar sem spilum lands-
leiki fyrir Íslands hönd og ég er nokk-
uð stolt af því,“ segir Greta Mjöll Sam-
úelsdóttir.
Flutti sextán ára á mölina
„Það er nóg um að vera þessa dagana,“
segir Embla Grétarsdóttir, leikmað-
ur Vals, enda á kafi við undirbúning
fyrir próf í tölfræði. Embla stundar
nám í sálfræði við Háskóla Íslands,
en í sumar starfar hún sem féhirðir í
Landsbankanum.
Áður en hún settist á skólabekk í
Háskólanum hafði Embla lokið þremur
önnum í sálfræði í Memphis í Banda-
ríkjunum, þar sem hún dvaldi á fót-
boltastyrk. „Mig hefur alltaf langað
til að verða sálfræðingur, nánast frá
því ég man eftir mér. Þetta er spenn-
andi fag og ég hef gaman af því að
vinna með fólki,“ segir Embla. „Svo er
ég auðvitað svo rosalega góð í kjaftin-
um,“ bætir hún við og hlær.
Embla ólst upp á Höfn í Hornafirði,
þar sem vinkona hennar dró hana
á fyrstu fótboltaæfinguna átta ára
gamla. „Ég hafði strax mjög gaman af
þessu og lék mér í fótbolta daginn út
og inn, bæði með stelpum og strákum.
Það tekur sumar langan tíma að finna
íþrótt sem hentar þeim, en ég fann mig
strax í knattspyrnunni.“
Embla sýndi snemma ótvíræða hæfi-
leika og var fengin yfir á mölina ein-
ungis sextán ára gömul af Helenu
Ólafsdóttur, þáverandi landsliðskonu
og þjálfara 2. flokks KR. „Það var bæði
spennandi og erfitt að flytja burt frá
fjölskyldunni strax eftir 10. bekk. En
ég fékk að búa hjá góðu fólki, fyrst
hjá frænku minni og svo hjá vinkonu
hennar mömmu. Eftir tvö ár í Reykja-
vík fór ég svo að leigja með vinkonu
minni. Ég vildi taka skref fram á við
og til þess var nauðsynlegt að komast
í betri aðstöðu og spila með betri leik-
mönnum, án þess að ég vilji á nokkurn
hátt gera lítið úr þeim sem ég ólst upp
með í Sindra á Hornafirði.“
Að sögn Emblu ríkir mikil spenna
Við leggjum allt í sölurnar
Kvennalandsliðið í knattspyrnu vann eitt stærsta afrek íslenskrar íþróttasögu með því að komast í úrslitakeppni Evrópumótsins
sem fram fer í Finnlandi í september. Kjartan Guðmundsson ræddi við þær Gretu Mjöll Samúelsdóttur, Emblu Grétarsdóttur,
Katrínu Jónsdóttur og Söndru Sigurðardóttur og komst að því að mikil samkeppni ríkir um að komast í endanlegan leikhóp.
UMKRINGD BÖRNUM Greta Mjöll vinnu í hálfu
starfi sem leiðbeinandi á leikjanámskeiði fyrir börn
á vegum Breiðabliks í sumar. Í haust heldur hún
áfram námi sínu við fjölmiðlun í Boston.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
LÆRT AF KAPPI Mikið er lagt upp úr tölfræði ýmis
konar í tengslum við knattspyrnuumfjöllun. Embla
glímir þó einnig við tölfræðina í Háskóla Íslands,
þar sem hún stundar nám í sálfræði.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
VIÐ STÖRF Á LANDSPÍTALANUM Í FOSSVOGI Fyrir-
liðinn Katrín nam bæði knattspyrnu og læknisfræði
í Noregi. Hún hlakkar til æfingaleikjanna gegn
Englandi og Danmörku í júlí, sem og lokakeppni
EM í Finnlandi í september. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
STÓRKOSTLEGUR ÁRANGUR Landsliðskonurnar fagna sigrinum mikilvæga gegn Írum á Laugardalsvellinum, sem tryggði
sætið í lokakeppninni í Finnlandi. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
og samkeppni meðal þeirra sem eiga
möguleika á að komast í leikmanna-
hópinn sem fer til Finnlands, en end-
anlegur hópur verður tilkynntur í byrj-
un ágúst. „Þetta er ekkert grín. Allar
leggjum við allt í sölurnar til að kom-
ast með. Það þarf að hafa mikið fyrir
þessu og það er gott. Ég tel sjálfa mig
eiga jafn mikla möguleika og aðra til
að komast í hópinn, ef ég spila af eðli-
legri getu í sumar,“ segir Embla Grét-
arsdóttir.
Erfitt að toppa sigurinn á Írum
„Þessa dagana einbeiti ég mér fyrst og
fremst að deildinni hér heima. Spenn-
an eykst væntanlega þegar við spil-
um æfingaleiki við England og Dan-
mörku í júlí. Þetta eru sterkar þjóðir
sem eru báðar með á EM og eru ofar
en við á styrkleikalista FIFA. Þá gefst
gott tækifæri til að sjá hvar við stönd-
um, uppgötva veikleika sem við getum
bætt, og annað slíkt,“ segir Katrín
Jónsdóttir, leikmaður Vals og fyrirliði
kvennalandsliðsins.
Katrín menntaði sig sem læknir í
Noregi og starfar sem slíkur á húð-
og kynsjúkdómadeild Landspítalalans
í Fossvogi. Spurð hvort ekki fylgi því
mikið álag að vera í fullri vinnu auk
þess að leika í Pepsi-deild kvenna, með
tilheyrandi æfingum, og gegna hlut-
verki fyrirliða landsliðsins segist Katr-
ín ekki kvarta. „Það var enn þá meira
álag á mér þegar ég vann sem heim-
ilislæknir hjá heilsugæslunni í Graf-
arvogi og Efra-Breiðholti. Ég komst
aldrei heim á réttum tíma úr því starfi,
en það breyttist til batnaðar þegar ég
hóf að vinna hér. Auðvitað fylgir þessu
starfi mikil ábyrgð, en hér eru margir
sérfræðingar sem hjálpa mér mikið.“
Katrín bjó um hríð í Noregi sem
barn og það var þar sem fyrstu skref-
in á knattspyrnuvellinum voru tekin.
„Þegar ég bjó á Íslandi vissi ég ekki
einu sinni að konur spiluðu fótbolta. Í
Noregi var ég dregin á æfingu af vin-
konu minni og fannst fljótlega mjög
gaman. Ég uppgötvaði að minnsta
kosti strax að hæfileikarnir voru meiri
í boltanum en fimleikunum, sem ég
hafði stundað fram að því.“
Aðspurð segir Katrín eftirminnileg-
ast á ferlinum vera sigurinn á Írum á
gaddfreðnum Laugardalsvellinum,
sem varð þess valdandi að landsliðið
komst á Evrópumótið. „Innan hópsins
höfum við sett okkur ákveðið markmið
sem við viljum ná í mótinu. Ætlunin er
auðvitað alltaf að vinna næsta leik, og
þannig hugarfar verður að vera ríkj-
andi, sérstaklega í þessum erfiða riðli
sem við munum spila í,“ segir Katrín
Jónsdóttir.
Markvörður sem skorar
„Síðustu tvö ár eða svo hef ég orðið vör
við mun meiri áhuga á kvennaknatt-
spyrnunni en verið hefur. Aðsóknin að
leikjum landsliðsins hefur stóraukist,
umfjöllun fjölmiðla hefur stóraukist
og svo er fullt af ungum og efnilegum
stelpum að koma upp úr yngri flokkun-
um úti um allt land. Þannig að framtíð-
in er björt,“ segir Sandra Sigurðardótt-
ir, markvörður Stjörnunnar.
Sandra segir hina miklu samkeppni
um sæti í landsliðshópnum eiga eins við
markverði og útileikmenn. „Við erum
mjög heppin með það hér á Íslandi að
eiga mikinn og stóran hóp af góðum
markvörðum. Samkeppnin skilar sér
væntanlega í betri frammistöðu í deild-
inni, sem er bara hið besta mál.“
Sandra þreytti inntökupróf í sjúkra-
þjálfunardeild Háskóla Íslands í síð-
ustu viku. „Inntökuprófið tekur í raun
tvo heila daga og felur það í sér að ég
þurfti að rifja upp það sem ég lærði í
menntaskóla fyrir þremur árum. Ég
get ekki neitað því að ég var orðin
pínulítið ryðguð í fræðunum,“ segir
Sandra og hlær. Hún segist alltaf hafa
haft áhuga á þessum málum. „For-
eldrar mínir starfa báðir í heilbrigð-
isgeiranum og því liggur þetta dálítið
beint við. Ef ég kem til með að starfa
við sjúkraþjálfun í framtíðinni hef ég
hug á að tengja hana knattspyrnu á ein-
hvern hátt. Eins og þú heyrir er fótbolt-
inn númer eitt, tvö og þrjú hjá mér.“
Sandra bjó í Garðabæ fyrstu fjögur
ár ævinnar. Þá fluttist fjölskyldan til
Siglufjarðar og þar ól Sandra manninn
þar til hún sneri aftur í Garðabæinn
átján ára gömul, vegna fótboltans eins
og gefur að skilja. „Siglufjörður er lítið
samfélag og ekki um margar íþrótta-
greinar að velja. Mér er minnisstætt
þegar ég var í fjórða flokki og liðið
mitt var að vinna einhvern leik 17-0
eða svo. Þá fannst mér tilvalið að yfir-
gefa markið og taka þátt í sóknarleikn-
um, sem endaði með því að ég skoraði.
Það fannst mér geðveikt. Reyndar end-
urtók ég svo leikinn í bikarleik í fyrra
þegar Stjarnan fékk víti í leik sem við
vorum að vinna 4-0. Máni þjálfari kall-
aði á mig og sagði mér að taka vítið, og
auðvitað skoraði ég,“ segir Sandra að
lokum og skellir upp úr.
Aðsóknin
að leikjum
landsliðsins
hefur stór-
aukist, um-
fjöllun fjöl-
miðla hefur
stóraukist og
svo er fullt
af ungum og
efnilegum
stelpum að
koma upp úr
yngri flokk-
unum úti
um allt land.
ÆFINGIN SKAPAR MEISTARANN Sandra skellti
sér á æfingu á Stjörnusvæðinu eftir inntökupróf í
Háskóla Íslands sem tók heilan dag.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON