Fréttablaðið - 13.06.2009, Síða 62
13. júní 2009 LAUGARDAGUR
timamot@frettabladid.is
Guðir og goðsagnir eru í brennidepli sýningar Baltas-
ars Samper sem nú stendur yfir í Gerðarsafni. Um árabil
hefur listamaðurinn velt fyrir sér líkindunum með goð-
sögum og helgisögnum ólíkra menningarheima. „Þegar ég
kom fyrst hingað til Íslands varð ég hrifinn af ytra borð-
inu og fór því að mála landslag og hesta. Svo þegar ég
kynntist sálinni í fólkinu fór ég að lesa þjóðsögur, því þær
voru einfaldar og léttar. Þegar ég gat lesið Eddukvæðin
fannst mér ég fyrst vera kominn að kjarnanum. Í fram-
haldi af því fór ég að hugsa um hvaðan þetta kemur allt
saman. Það leiddi mig út í að vinna með allt það sem er
líkt með íslensku goðafræðinni og öðrum og mun eldri
goðsögum og helgisögnum.“
Á neðri hæð safnsins er að finna sýninguna Sjö orð
Krists á krossinum, sem upphaflega var sett upp í Hall-
grímskirkju. „Ég hafði lengi hugsað mér að gera verk út
frá Jesú á krossinum. En ekki út frá kristinfræði heldur
goðafræði. Ég vildi sýna Jesú þegar hann er eins og við
hin. Á krossinum brutust fram í honum margar mannleg-
ar tilfinningar, eins og að efast,“ segir Baltasar. Sýning-
in samanstendur af sjö stórum og áhrifamiklum andlits-
myndum af Jesú. Hver þeirra er unnin út frá einu versi úr
Passíusálmum séra Hallgríms Péturssonar. Verkin voru
sett upp sem kross í Hallgrímskirkju en á sýningunni nú
er hægt að skoða þau í návígi.
Greinilegt er að trúmál hreyfa við listamanninum.
„Ég er alinn upp í trú eins og allir Spánverjar. Ég gekk í
jesúítaskóla þegar ég var lítill og trúin hjálpaði mér tölu-
vert í mínu eigin drama. Ég ætlaði að verða munkur en
prestur sem þekkti mig betur en ég þekkti mig sjálfur
sannfærði mig um að ég ætti að verða listamaður. Ég hef
mínar efasemdir, eins og Hann, en fyrir mér er trúin ekki
annað en leið til að skilja sjálfan sig og heiminn og gera
eitthvað póetískt úr tilverunni. En trúna er best að búa sér
til sjálfur. Það hefur oft farið í taugarnar á mér sem hér
er svo oft sagt: „Ég hef mína barnatrú.“ Í því felst engin
leit. Það er mikið betra að lesa sér sjálfur til, helst um alla
guðina, og finna sína leið.“
Öll verkin á sýningunni, um fjörutíu talsins, málaði
Baltasar á undanförnum tveimur árum. Sjálfur býr hann
til blindrammann, strekkir, grunnar og býr sjálfur til
litina. „Ég vil nota allan líkamann þegar ég mála, það
nægir mér ekki að nota úlnliðinn,“ segir Baltasar. Hann
er skriðinn yfir miðjan aldur en lætur það þó ekki stoppa
sig við listsköpun sína. Þvert á móti segir hann listina
halda honum gangandi, en hann vinnur frá sex upp í tíu
tíma á dag. „Ég verð miklu þreyttari af því að liggja í
sófa,“ segir hann.
Merkilegt er að ganga með Baltasar um sýninguna og
heyra hann lýsa verkum sínum. Greinilegt er að hann
gjörþekkir hverja sögu að baki myndunum. Á sýningunni
er þeim stillt upp eftir þema. Í sýningarskránni eru nöfn
sögupersónanna sem prýða verkið en ekki frekari upplýs-
ingar. Það er með vilja gert, því listamaðurinn vill vekja
áhuga fólks á sögunum. „Ég vil að gestirnir fari heim og
gúggli þetta.“
Á morgun, sunnudag, klukkan þrjú mun Baltasar ganga
um sýninguna ásamt Árna Bergmann og gefst öllum sem
vilja kostur á að fylgja þeim og heyra þá lýsa verkum sýn-
ingarinnar. holmfridur@frettabladid.is
BALTASAR SAMPER: SÝNIR Í GERÐARSAFNI
Málar með
líkamanum
BALTASAR SAMPER Mýtur og táknmyndir heitir sýning listmálarans
Baltasar Samper sem nú stendur yfir í Gerðarsafni. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
EYJÓLFUR KONRÁÐ JÓNSSON
FÆDDIST ÞENNAN DAG ÁRIÐ
1928.
„Mergurinn málsins er
sá, að íslenzka þjóðin vill
ekki, að örfáir auðmenn
ráði yfir öllum hennar at-
vinnurekstri.“
Eyjólfur Konráð var lögfræð-
ingur og ritstjóri Morgun-
blaðsins. Hann sat á Alþingi
fyrir Sjálfstæðisflokkinn frá
1979 til 1995.
Okkar ástkæri
Kristján Guðmundsson
ökukennari
er látinn.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hólmfríður Kristjánsdóttir.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim er
sýndu okkur samúð og hlýhug vegna and-
láts og útfarar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Kristíönu Hólmgeirsdóttur
Dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri.
Sérstakar þakkir til þeirra sem léttu henni lífið síðustu
æviárin.
Valgerður E. Valdemarsdóttir Baldur Guðvinsson
Þórhildur S. Valdemarsdóttir Þorsteinn Þorsteinsson
Hólmgeir Valdemarsson Birna S. Björnsdóttir
Baldvin Valdemarsson Vilborg E. Sveinbjörnsdóttir
Sigrún B. Valdemarsdóttir Ingólfur Ingólfsson
barnabörn og langömmubörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna andláts og
útfarar elskulegs eiginmanns, sonar, föður,
tengdaföður og afa,
Steins Hlöðvers Gunnarssonar
Andarhvarfi 11b, Kópavogi.
Þökkum sérstaklega öllu því starfsfólki Landspítalans
sem annaðist hann.
Björk Níelsdóttir
Bergþóra Skarphéðinsdóttir
Gunnar Hlöðver Steinsson Sissel Espedal
Ragnar Níels Steinsson Margrét Silja Þorkelsdóttir
Guðmundur Steinn Steinsson
og barnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra er veittu
okkur samúð og hluttekningu vegna
andláts
Lárusar Ellerts
Kristmundssonar
bónda, Efri-Brunnastöðum,
Vatnsleysuströnd.
Guð blessi ykkur öll.
Gísli Scheving
Eggert Kristmundsson
Elín Kristmundsdóttir
Anna Scheving
Hallgrímur Kristmundsson
Skarphéðinn Scheving Einarsson
og aðrir aðstandendur.
Kær sonur minn,
Hilmar Harðarson
Móabarði 34, Hafnarfirði,
lést á heimili sínu þann 12. maí sl. Útförin hefur farið
fram í kyrrþey. Starfsfólki sjúkrahúsa LSH, félagsþjón-
ustu Hafnarfjarðar, vinum og vandamönnum færum
við alúðarþakkir fyrir stuðning og hlýhug í hans garð
og okkar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ásrún Ingadóttir.
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Þóra Erlendsdóttir
Vatnsholti 12, Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þann 26. maí.
Útförin fór fram í kyrrþey 3. júní frá Keflavíkurkirkju
að ósk hinnar látnu. Innilegar þakkir til allra þeirra
sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
hennar.
Guðbrandur Þorsteinsson,
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Inga Lára Ingadóttir
frá Neskaupstað, síðast til heimilis að
Hrafnistu, Hafnarfirði,
lést þann 28. maí sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu. Hugheilar þakkir til starfsfólks
Hrafnistu Hafnarfirði fyrir góða umönnun. Þökkum
auðsýnda samúð.
Ingi T. Björnsson Brynhildur Friðriksdóttir
Rúnar Björnsson Ásta Björk Björnsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Geirþrúður Guðrún
Kjartansdóttir
Hraunhólum 9, Garðabæ,
lést á Líknardeild Landspítala Landakoti fimmtudag-
inn 4. júní. Útför hennar mun fara fram mánudaginn
15. júní kl. 13.00 frá Vídalínskirkju í Garðabæ.
Starfsfólki L5 á Landakoti eru færðar hjartans þakkir
fyrir einstaka umönnun og einlæg samskipti síðustu
vikur.
Hreinn Jóhannsson
Kjartan Hreinsson Sigríður Árný Sævaldsdóttir
Guðrún Hreinsdóttir Steinþór D. Kristjánsson
Sturla Jóhann Hreinsson Guðrún Helga Hamar
og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og vináttu við andlát og útför eiginmanns
míns, föður okkkar, tengdaföður og afa,
Jóns J. Haraldssonar
Barrholti 11, Mosfellsbæ.
Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar E11 Landspítala
við Hringbraut fyrir alla umhyggjuna.
Edda Dagbjartsdóttir
Hrannar Jónsson Kristín Þórðardóttir
Helga Jónsdóttir Sigurjón Jónsson
barnabörn.
MOSAIK