Fréttablaðið - 13.06.2009, Blaðsíða 66
42 13. júní 2009 LAUGARDAGUR
menning@frettabladid.is
Grease er sérkennileg afurð: verk-
ið er samið sem leikrit upphaflega
um 1970 – líklega sprottið úr sömu
jörð og Hárið. Við það bætast síðan
sönglög sem voru einhvers konar
kópíur af kunnum rokklögum frá
sjötta áratugnum. Það var þannig
frumsýnt 1972, um líkt leyti og
George Lucas er að taka upp Ameri-
can Graffiti. Gangur sýningarinnar
verður síðan verulegur í New York
á þeim misserum þegar sjónvarps-
serían Happy Days verður til. Allt
er þetta endurlit, flótti samfélags
sem vildi endurlifa hina góðu gömlu
daga því stjórnmálalíf var að snúast
til hægri, uppreisnin og umbreyt-
ingarnar sem einkenndu sjöunda
áratuginn urðu undir. Nixon var
sestur í Hvíta húsið og bjartsýni
fór dvínandi um bandarískt samfé-
lag. Grease var í frumgerð sinni eitt
margra dæma um áhuga á kúltúr
hvítra lágstétta: sýningin var gróf,
þar var tæpt á mörgum efnum sem
voru ekki í hámæli, unglingakyn-
lífi, drykkju í dyngjum dætra, ungl-
ingagengið kom aftur inn á sviðið,
hafði reyndar gert sig heimakomið
þar 1958 í West Side Story. Það er
raunar harla lítill munur á Þotunum
þar og T-Birds í Grease.
Þessi þriðja sviðsetning á réttum
áratug í íslensku atvinnuleikhúsi
passar vel inn í umhverfi sitt. Stóra
svið Borgarleikhússins hentaði ekki
undir þennan litla söngleik, til þess
hefði þurft þar meiri skara á svið,
stærri dansatriði.
Það eru reyndar dansatriðin, sá
þáttur sviðsetningar þeirra Björns-
dætra, sem heppnast best í þetta
sinn. Sviðið er svo grunnt að atrið-
in eru bara á sviðsbrúninni, kraft-
urinn smitar beint í salinn þó að
dansarnir teljist ekki frumlegir
en rýmið er vel nýtt og framlínan
skipuð ágætum kröftum: Þorleifi
Einarssyni, Aðalsteini Kjartans-
syni, Hjördísi Lilju, Ástu Bærings
og Álfrúnu Örnólfsdóttur, sem gerir
reyndar gott betur í leik. Leikararn-
ir bjargast í dansinum þótt Unnur
Ösp taki það á snerpu og sterkri
taktkennd.
Ég er ekki frá því að þetta sé
besta sviðsetning á Grease til þessa,
sem er skrýtið því það er heildin
sem kemur vel út. Sóló partarnir eru
missterkir þó, Bjartur Guðmunds-
son og Ólöf eru til að mynda veikari
hér en Walter Geir og María Þórðar.
Sigurður Þór og Ævar Þór debútera
hér í fínum samleik. Allur leikurinn
er ýktur og í endurliti var sýning-
in öll dálítið trekkt, það var sjaldan
slegið af. Mönnum tókst misvel upp
í söng: Ólöf bar þar af og Unnur Ösp
náði að sýna fleiri hliðar en töffara-
skapinn í sínu litla lagi. Samsöng-
ur var kröftugur en undirleikurinn
eins einfaldur og hægt var. Maggi
Jóns var öruggur og slísí, Friðrik
Ómar mun deila hlutverki tánings-
stjörnu með Jónsa og Jógvan, en
hann var flottur þetta kvöld.
Selma hefur unnið afskaplega
vel með þau efni sem gáfust, það
er pepp í sýningunni allri og birta,
leikrýminu er skynsamlega fyrir-
komið og útgangar á réttum stöðum
þótt nýting hennar á brú verði nær
alltaf til málamynda. Hana gæti
hún ekki klætt að gagni nema hafa
32 en ekki 16 í hóp.
Og áhorfendur skemmtu sér
vel, kannski vilhallur hópur, en ég
held að þessi sýning verði vinsæl
og flestum líki hún sem þægileg
afþreying. Hún gefur ekki kost á
tilfinningalegu róti en byggir á ein-
lægni sem virkar. Efnið og erindið
er tekið af fullri alvöru – sem skil-
ar sér þótt það sé raunar soldið feik
– en heimur söngleikja byggist á
því samkomulagi milli flytjenda og
áhorfenda. Feikið virkar.
Páll Baldvin Baldvinsson
Roknarafmagnsstraumur
LEIKLIST Ólöf Jara Skagfjörð syngur
frábærlega, er einlæg og geðfelld, en
Sandy hennar er óttalega lítið sjarmer-
andi. MYND/LOFTKASTALINN-JORRI
LEIKLIST
Grease eftir Jim Jacobs og War-
ren Casey.
Þýðing: Veturliði Guðnason.
Leikstjóri: Selma Björnsdóttir.
Leikmynd: Brian Pilkington.
Búningar: María Ólafsdóttir.
Lýsing: Jón Þorgeir Kristjánsson.
Tónlistarstjórn: Þorvaldur Bjarni.
Hreyfing: Selma, Guðfinna og Birna
Björnsdætur.
★★★★
Velheppnuð og kraftmikil sviðsetning
á einfaldri sögu.
Danshöfundarnir Steinunn Ket-
ilsdóttir og Brian Gerke héldu af
stað hinn 8. júní í sýningarferða-
lag til Tékklands. Á ferðalaginu
munu þau sýna verðlaunaverkið
„Love Always, Debbie and Susan“,
en Steinunn og Brian hlutu fyrstu
verðlaun fyrir verkið í danshöf-
undakeppninni Danssolutions sem
fram fór í Kaupmannahöfn í sept-
ember á síðasta ári.
Steinunn og Brian kynntust í
New York árið 2004 og hafa unnið
saman að ýmsum verkefnum síðan.
„Love Always, Debbie and Susan“
er annar dúettinn í trílógíu þeirra
sem fjallar um ástina, kynlíf og
sambönd. Fyrsta verkið þeirra,
„Crazy in Love with Mr. Perfect“,
var frumsýnt á Reykjavík Dance
Festival árið 2007 og voru þau til-
nefnd til Grímunnar fyrir verk-
ið. Lokaverkið í trílógíunni, „The
Butterface“, var frumsýnt í Danse-
scenen í Kaupmannahöfn í febrúar
2009 við góðar undirtektir.
Verkið „Love Always, Debbie
and Susan“ verður sýnt á Tanec
Praha sem er stór og virt danshá-
tíð í Tékklandi. Steinunn og Brian
munu sýna verkið í fjórum borgum:
sýndu í Olomouc á miðvikudag, en í
Divadlo Barka-leikhúsinu í Brno í
gærkvöld. 14. og 15. júní sýna þau í
Ponec-leikhúsinu í Prag og síðasta
sýningin verður svo í Moving Stat-
ion í Plzen hinn 17. júní.
Í maímánuði voru þau einnig
á sýningarferðalagi um Evrópu:
sýndu í Vilnius, Lúxemborg, Zag-
reb og Osijek.
Hafa þau Steinunn og Brian ferð-
ast víða með verkin sín síðastliðin
tvö ár, meðal annars til New York,
London, Kaupmannahafnar, Ítalíu,
Edinborgar og Dublin. Fram undan
eru sýningar í Rússlandi, á Ítalíu
og á Íslandi, en dansparið mun
setja upp sýningu með verkunum
þremur hér á landi á haustmán-
uðum. Þess má geta að einungis
fyrsta verkið, „Crazy in Love with
Mr. Perfect“, hefur verið sýnt hér
á landi.
Steinunn og Brian vinna nú að
nýju verki fyrir íslenska dansara
og starfa bæði hjá Listdansskóla
Íslands. - pbb
Dansarar í Tékklandi
LEIKLIST Úr verki Steinunnar og Brians.
kl. 15
Sumarjazz á Jómfrúnni hefur nú göngu sína
fjórtánda árið í röð. Þaulreynt tríó Björns
Thoroddsen hækkar í mögnurum og tekst á
við fjölbreytt úrval óvæntrar innlendrar og
erlendrar tónlistar frá Shadows til Sextetts Óla
Gauks. Björn Thoroddsen: gítar, Jón Rafnsson:
kontrabassi, Jóhann Hjörleifsson: trommur.
Brynjólfsmessa Gunnars Þórðar-
sonar var flutt hinn 6. júní í Geth-
semane-kirkjunni í Prenzlauer
Berg-hverfinu í Berlín. Gunnar
var viðstaddur flutninginn og var
ánægður með að heyra verk sitt
á ný á erlendri grund. „Þetta var
frábær konsert,“ sagði hann, „full
kirkja og viðtökur voru fínar. Það
voru tvö hundruð manns á svið-
inu, hundrað manna þýskur kór,
Skálholtskórinn, fjörutíu barna
þýskur kór og fjörutíu manna
hljómsveit.“
Í sólóhlutverkum voru þýsk-
ir og finnskir kraftar, Maria
Schröder sópran og tenórinn Olli
Rantaseppä.
Næst bíður Gunnars að heyra
stóran flutning á sönglögum úr
sinni stóru söngvabók, en Sin-
fóníuhljómsveit Íslands helg-
ar honum tónleika sem verða í
Háskólabíói hinn 26. júní. Dís-
ella Lárusdóttir, KK, Margrét
Eir, Páll Óskar, Páll Rósinkranz,
Ragnar Bjarnason og Svavar
Knútur syngja en hljómsveitar-
stjóri er Benjamin Pope.
Miðasala er hafin.
Gunnar á ferðinni
TÓNLIST Flytjendur Brynjólfsmessu í Berlín.
IsNord er tónlistarhátíð sem er
haldin í Borgarfirði og verður hún
haldin nú um helgina í fimmta sinn.
Listrænn stjórnandi og ábyrgðar-
maður IsNord er Jónína Erna Arn-
ardóttir píanóleikari, en dagskrá-
in hefst í dag í Borgarneskirkju.
Þar flytja þær Guðrún Ingimars
sópran og Jónína Erna íslensk og
norræn sönglög. Guðrún er búsett
í Þýskalandi og hefur komið fram
víða um Evrópu við ýmis verk-
efni en 2008 kom út geisladiskur
með söng hennar hjá Íslenskri tón-
verkamiðstöð. Jónína og Guðrún
eru báðar Borgfirðingar.
Á morgun, sunnudag, verða kl.
16 sérstakir tónleikar í hinni róm-
uðu Paradísarlaut í Norðurárdal.
Þar syngur Kársneskórinn undir
stjórn Þórunnar Björnsdóttur
íslensk lög undir berum himni.
Á þriðjudag kl. 21 verður dag-
skrá til heiðurs Böðvari Guð-
mundssyni sjötugum. Böðvar
hefur samið ógrynni af textum og
lögum en verk hans spanna allt frá
eldheitum baráttusöngvum upp í
óperutexta og trúarlega texta við
tónlist J.S. Bach og verða flestum
hliðum hans sem höfundar gerð
skil á tónleikunum.
Á tónleikunum koma meðal ann-
ars fram Kristín Ólafsdóttir, Diddi
fiðla, Kammerkór Vesturlands,
Barnakór Hvítsíðinga, Gunnar
Ringsted og Jónína Erna Arnar-
dóttir. - pbb
Tónlist í Borgarfirði
4
10
4
0
0
0
|
l
an
d
sb
an
ki
nn
.is
161 / SAUÐÁRKRÓKUR