Fréttablaðið - 13.06.2009, Qupperneq 70
46 13. júní 2009 LAUGARDAGUR
OKKUR
LANGAR Í
…
utlit@frettabladid.is
DAÐRAÐ VIÐ TÍSKUNA
Anna Margrét Björnsson
MAC SNYRTIVÖRUR vörur
sem fullkomna húðina- und-
irfarði, meik og hyljari frá
ofurmerkinu Mac.
RAY BAN WAYFARERS
Ray Ban-sólgleraugun
hafa alltaf rokkað og eru
klárlega svölustu brillurnar í sumar.
CLINIQUE SNYRTIVÖRUR
gullin húð sem
verður aldrei
appelsínugul
með þessu nýja
brúnkukremi frá
Clinique.
Þegar litið er á herratískuna fyrir næsta haust og
vetur má sjá að hönnuðir sækja stíft í klassískar
hefðir. Tískuhús líkt og Burberry, Dolce & Gabbana
og Alexander McQueen voru með jakkaföt í gráum
tónum og notuðu kaskeiti og hatta við. Snillingur-
inn Alexander McQueen var með blöndu sem minnti
í senn á ítalska mafíósa og kvikmynd Kubricks A
Clockwork Orange. Hér gefur að líta sýnishorn af
herratísku næsta vetrar. - amb
JAKKAFÖT OG OSCAR WILDE-STÍLL KOMA STERK INN
Herramaðurinn snýr aftur
KLASSÍSKT Falleg aðsnið-
in jakkaföt og mjótt bindi
frá Dolce og Gabbana
fyrir næsta haust.
HÁLSSLAUFA
Burberry Prorsum
sýndi gamaldags
hnýttar skyrtur við
frakka og teinóttar
buxur.
BRJÓSTHLÍF Þessi
múndering frá Alexander
McQueen minnir helst á
teiknimyndapersónu.
GAMALDAGS
Flott jakkaföt
með vesti í stíl
og pípuhattur
frá Alexander
McQueen.
Þegar mig vantar einhvers konar innblástur í fataskápinn þá leita ég
sjaldnast í tískutímaritin. Að sjálfsögðu er gaman að blaða í flott-
um tímaritum en þegar allt kemur til alls sækja fyrirsæturnar í dag
og fatnaðurinn oftast innblástur til fyrri tíma. Þess vegna finnst mér
skemmtilegra að fletta upp myndum af fólki og stemningu á fyrri ára-
tugum og sjá hvort það er ekki ein-
hver fatasamsetning, hárgreiðsla
eða förðun sem gæti verið alveg
það sem ég er að leita að þessa
stundina. Fólk sækir sér innblást-
ur til mismunandi áratuga, hvort
sem það er strákaleg tíska þriðja
áratugarins, elegans hins fjórða
og fimmta, kynþokki og kven-
leiki hins sjötta eða hippastemning
hins sjöunda. Líkt og með tónlist-
ina þá endurtaka góðir hlutir sig
reglulega og ástæðulaust að þurfa
endilega að vera alltaf að finna
upp hjólið þegar maður getur sótt
innblástur í snilld sem var fund-
in upp fyrir nokkrum áratugum. Tískudívurnar sem ég persónulega
dýrka eru sixtís-skvísur eins og Jane Birkin,Jane Fonda, Anita Pallen-
berg, Nico og auðvitað hin guðdómlega Bardot en allar hafa þær verið
fyrirmyndir ótal kvenna í gegnum árin. Charlotte Gainsbourg dóttir
Birkin, fyrirsætur eins og Claudia Schiffer og Kate Moss og söngkon-
ur eins og Leslie Feist eru allar eins og klónar fyrrnefndra kvenna.
Ég hef sterkan grun um að sixtís „psychadelia“ sé á leiðinni inn aftur
og því er um að gera að klippa á sig topp eins og Pallenberg og Birkin,
skella sér í mínikjóla, indversk vesti og stóra pelsa og vera hress og
hippalegur. Hins vegar spyr maður sig hvar þessar tískufyrirmynd-
ir eru eiginlega allar í dag. Ég get ekki ímyndað mér að eftir þrjátíu
ár muni ungar stúlkur fletta upp myndum af Paris Hilton eða Jennifer
Lopez en hver veit. Það er margt skrýtið í kýrhausnum.
Að finna sér tískufyrirmynd
SIXTÍS SVALHEIT Fyrirsætan og grúppían
Anita Pallenberg með Keith Richards.
> BECKHAM AFTUR Á BRÓKINNI
Tískuhúsið Emporio Armani var að birta nýju
auglýsingaherferð sína með David Beckham þar
sem fótboltakappinn smámælti sýnir sig aftur
í nærbuxum einum fata. Þúsundir aðdáenda
þyrptust að búðargluggum Selfridges í London
til að líta dýrðina augum.
Verð kr. 265.000.-
Hrein fjárfesting ehf
Dalbraut 3 105 reykjavík • rainbow@rainbow.is
Sími verslun 567 7773 . kvöld og helgar 893 6337
www.rainbow.is
Rainbow
Bjóðum nokkrar Rainbow á 186,000
Eða gömul Rainbow upp í nýja tilboð 155,000
Eigum einnig notaðar yfi rfarnar rainbow
með ábyrgð verð 80.000 tilboð 58.000
meðan byrgðir endast.