Fréttablaðið - 13.06.2009, Síða 74

Fréttablaðið - 13.06.2009, Síða 74
 13. júní 2009 LAUGARDAGUR sumarferdir.is Verð á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn 87.400 kr.frá Fjölskylduherbergi með hálfu fæði - hlaðborð! Hotel Gala Ferðaskrifstofa Leyfishafi Ferðamálastofu Tenerife 17. júní - 1. júlí 2 vikna ferð Söngleikurinn Grease var frumsýndur við glimrandi undirtektir á fimmtudaginn var. Leikhúsgestir skemmtu sér kon- unglega á frumsýningu þessa vin- sæla söngleiks, en þetta er í þriðja sinn sem hann er settur á svið hér á landi. Þau Ólöf Jara Skagfjörð og Bjartmar Guðmundsson fara með hlutverk Sandyar og Dannys og þóttu standa sig með prýði. Valgeir Skagfjörð, faðir Ólafar Jöru, var að sjálfsögðu viðstaddur frumsýn- inguna og var afar stoltur af dótt- ur sinni. „Fagnaðarlátunum ætl- aði aldrei að linna og Ólöf Jara var alsæl. Það var mikil pressa á henni, enda ung að árum, en mér fannst hún standa sig mjög vel. Sýningin er fjörug og skemmtileg og ég er viss um að hún muni slá í gegn.“ Meðal annarra frumsýningar- gesta voru til að mynda Páll Óskar Hjálmtýsson. Leikstjórinn Selma Björnsdóttir sat spennt úti í sal ásamt eiginmanni sínum, Rúnari Frey Gíslasyni, en þau léku ein- mitt í fyrstu Grease-uppfærslunni. Vesturportsleikararnir Nína Dögg Filippusdóttir og Björn Thors voru einnig meðal gesta og þá mætti borgarstjórinn Hanna Birna Kristj- ánsdóttir og naut sýningarinnar í botn. - sm PABBI SANDY STOLTUR VINKONURNAR Yrpa, Aníta, Ástrós og Fjóla höfðu gaman af sýningunni. SUMARSTEMNING Þær Viktoría, Jóhanna, Halldóra og Kristjana skemmtu sér vel á söngleiknum, enda lífleg sýning. SÖNGVARINN PÁLL ÓSKAR sagði sýninguna hafa slegið í gegn hjá áhorfendum, hér sést hann ásamt ljósmyndaranum Oddvari Hjartarsyni. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL GREASE ER ORÐIÐ! Þær Anna, Katrín og Margrét voru á meðal frumsýningargesta. SKEMMTU SÉR STÓRVEL. Ragnhildur Magnúsdóttir útvarpskona ásamt Kristínu Unu og Silju Björk. Lindsay Lohan og plötusnúðurinn Samantha Ronson eru byrjaðar saman að nýju og segir slúðurpressan að Lindsay hafi sést með trúlof- unarhring á fingri. Er dvölin ekki löng í para- dís frekar en fyrri daginn hjá stúlkunum og eru þær strax farnar að rífast að nýju. Lindsay og Samantha hættu saman í apríl, en Lindsay sagði í þætti Ellen DeGeneres stuttu síðar að þær stöllur væru að ræða málin en hún forðaðist sambönd að svo stöddu. Hún sagðist þó elska Samönthu og vonaðist til að þær næðu saman að nýju, þegar þær væru báðar á réttum stað í lífinu til þess. Svo virðist sem sú stund sé núna, en Lindsay og Samantha eyddu þó nokkr- um tíma í eltingarleiki um helstu klúbba London, áður en þær flugu til Los Angeles saman á miðvikudaginn. Skartaði Linds- ay þá glæsilegum trúlofunarhring og skrif- aði á Twitter að hún „færi frá London með uppáhalds ferðafélaga sínum og kannski með frábærar fréttir í farteskinu“. En fljótt skipast veður í lofti og skömmu eftir að lent var voru stelpurnar farnar að rífast að nýju, sem endaði með því að Linds- ay rauk á dyr, nú án demantshrings- ins fína. Sama kvöld neitaði Samantha að hafa beðið Lindsay og keypt handa henni hring. Faðir Lindsay, Michael Lohan, er hins vegar hinn bjartsýnasti og trúir því nú, þvert á fyrri skoðanir, að sambandið sé dóttur hans gott. Hann sagði breska tíma- ritinu Mirror að hann væri ánægður að sjá að „á meðan þær voru í London þá gerði Lindsay sitt og Samantha sitt án nokkurra vandræða. Við sjáum hvað setur.“ SÆLLEG Á NÝ Lindsay vann hjarta Samönthu á ný eftir talsverðan elting- arleik í London. NORDICPHOTOS/GHETTY Lohan og Ronson rífast „Þetta er einn stærsti viðburður sem Norræna húsið hefur lagt í og er í fyrsta skipti sem við erum með fókusinn á annað land en eitthvert Norðurlandanna,“ segir Ilmur Dögg Gísladóttir, kynningarfulltrúi fyrir 101 Tokyo snerting við Japan. Dag- skráin hefst á morgun og stendur til 13. júlí. Á dagskrá verður tón- list, fyrirlestrar, bíósýningar, lista- smiðjur og námskeið þar sem fólki býðst meðal annars að kynna sér sushi-gerð, japanska tesiði og læra blekmálun og tauþrykk. „ Þrátt fyrir landfræðilega fjar- lægð við Japan eigum við Íslending- ar margt sameiginlegt með Japönum, svo sem þjóðsögur, sterka tilfinningu fyrir nátt- úruöflum og sveiflur í efna- hagslífi,“ útskýrir Ilmur. „Fólk frá götutískumerk- inu Theatre Products og textílfyrirtækinu Nuno er að undirbúa sýningar og listasmiðju. Sjö sauma- konur hafa saumað 80 fermetra skrautlegt bútasaumsteppi úr bútum frá Japan og Epal sem þátttakendur í lista- smiðju geta sniðið sín eigin föt úr.“ Nánari upplýsingar um dagskrána má nálgast á www .101tokyo.is. - ag Japönsk menning beint í æð SUSHI ÚR ÍSLENSKUM FISKI Matreiðslumeistarinn Yoshida Kensaku verður með námskeið í sushigerð í Norræna húsinu. Hann er í stjórn félags sushigerðarmanna í Japan.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.