Fréttablaðið - 13.06.2009, Blaðsíða 86
62 13. júní 2009 LAUGARDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
PERSÓNAN
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8
1 Björn Bergsson.
2 Ómar Stefánsson.
3 80 milljónir punda.
Hið fornfræga hús Hljómskálinn fær nýtt hlut-
verk á þjóðhátíðardag íslenska lýðveldisins eins og
kom fram í Fréttablaðinu í gær. Marentza Poul-
sen, veitingakona með meiru, ætlar þá að opna
kaffihús sem verður opið í allt sumar. Kaffihúsið
hefur hlotið nafnið Kaffi Hljómskálinn. „Mér þykir
gaman að geta nýtt krafta mína í verkefni eins og
þetta. Það þarf að sinna miðbænum svolítið betur
og glæða hann lífi,“ segir Marentza, en hún mun
meðal annars bjóða gestum sínum upp á ljúffengar
samlokur, ýmiss konar bökur og sérútbúnar nestis-
körfur til að hafa með sér í lautarferðina.
Marentza segir að maturinn verði einfaldur en
góður. „Í Hljómskálanum er að sjálfsögðu ekkert
eldhús, þannig að við getum ekki verið með flókna
rétti á boðstólum,“ segir hún og hlær. Hægt verður
að sitja inni í skálanum sjálfum og úti verða borð
og stólar fyrir þá sem vilja njóta veðurblíðunnar.
Svo eru það auðvitað „pikknikk“-körfur og teppi
fyrir þá sem vilja heldur setjast út á grasið. - sm
Lautarferðir og ljúffengar kökur
MARENTZA Veitingakonan ætlar að leggja sitt af mörkum til að
glæða miðbæinn lífi í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Mikill áhugi er hjá norrænum sjónvarps-
stöðvum á sýningu á Næturvaktinni.
Þetta kom í ljós eftir kynningu á þáttun-
um í Hollywood á dögunum. Tökum á þriðju
þáttaröðinni, Fangavaktinni, lauk í gær og
þar kom sjálfur Bubbi Morthens töluvert við
sögu.
Skarphéðinn Guðmundsson, dagskrár-
stjóri Stöðvar 2, segir að kynningin á þátt-
unum hafi gengið vel. Þættirnir voru á
undan bandarísku þáttunum, sem sýnir
glöggt hversu forvitnir Norðurlandabúarnir
voru. „Fulltrúar frá norskri stöð voru nán-
ast búnir að ákveða að þeir ætluðu að kaupa
þáttinn og það var líka mikill áhugi frá
sænska ríkissjónvarpinu. Finnar voru mjög
heitir og ætla að endurgera þáttinn.“
Eins og kom fram í fjölmiðlum í gær
hefur framleiðslufyrirtækið Reveille Prod-
uction tryggt sér réttinn á að búa til banda-
ríska útgáfu af Næturvaktinni. Samningur-
inn er til fimm ára, sem þýðir að fyrirtækið
hefur þann tíma til að ljúka við verkið. Á
meðal annarra þátta sem Reveille hefur
framleitt eru hinir vinsælu The Office.
Skarphéðinn segir að Norðurlandabúarn-
ir hafi hrifist mjög af Næturvaktinni, það
hafi verið merkilega mikið hlegið. „Maður
hafði áhyggjur af því að þessi íslenski
húmor myndi ekki skila sér í enska text-
anum,“ segir hann. Ekki skildu þeir samt
allan húmorinn og hnutu meðal annars um
brandara tengdan Ólafi Ragnari um dag-
skrárgerðarmanninn Ásgeir Kolbeinsson.
„Ég sagði þeim að þessi týpa [Ólafur] byði
upp á lókal skírskotanir í smástjörnudýrk-
un. Hann léti sig dreyma um skjótfengið fé
og að vera „inn“ og þess vegna væri hann
mikið að kasta fram þekktum nöfnum.“
- fb
Næturvaktarmenn hinir nýju útrásarvíkingar
ÓLAFUR OG GEORG Sjónvarpsþættirnir um Næturvakt-
ina virðast ætla að slá í gegn bæði í Hollywood og á
Norðurlöndunum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Ása Hauksdóttir
Aldur: Fædd 10.10.1959 og fólk
reikni svo.
Starf: Deildarstjóri menningarmála
hjá Hinu húsinu.
Stjörnumerki: Vog.
Búseta: 101 Reykjavík.
Fjölskylda: Sambýlismaður, tvær
blómarósir og heimilistíkin Ljóska.
LÁRÉTT
2. íþrótt, 6. ryk, 8. skrá, 9. pfn., 11.
komast, 12. hlutdeild, 14. uppskafn-
ingsháttur, 16. snæddi, 17. þrí, 18.
grús, 20. innan, 21. tigna.
LÓÐRÉTT
1. gufuhreinsa, 3. pot, 4. jarðbrú, 5.
skáhalli, 7. kynding, 10. kjaftur, 13.
hvíld, 15. kroppa, 16. kerald, 19. tveir
eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. golf, 6. im, 8. tal, 9. mig,
11. ná, 12. aðild, 14. snobb, 16. át, 17.
trí, 18. möl, 20. út, 21. aðla.
LÓÐRÉTT: 1. eima, 3. ot, 4. landbrú,
5. flá, 7. miðstöð, 10. gin, 13. lot, 15.
bíta, 16. áma, 19. ll.
„Jájá, það er einhver djöfullinn
danskur í gangi,“ segir Stefán
Máni rithöfundur. Sem ekki getur
kvartað undan viðtökum þeim
sem bók hans Skipið er að fá um
þessar mundir úti í Danmörku.
Í dag birtist opnuumfjöllun um
Stefán Mána og viðtal í stórblað-
inu Politiken. Og í glænýjum dómi
í Jyllands-Posten fær Skipið fimm
stjörnur af sex mögulegum. „Den
syvende krimi fra Stefán Máni er
sublim,“ skrifar Lars Ole Sauer-
berg.
Enda kvartar Stefán Máni ekki
í samtali við blaðamann Frétta-
blaðsins því þótt Skipið hafi feng-
ið góða dóma á Íslandi þá er hún
kom út virðast Danirnir ekki
síður kunna að meta ritið: „Jájá,
þetta er rosa flottur dómur. Bókin
virðist vera að falla í kramið. Ekki
slæmt að fá svona flott start í Dan-
mörku. Bókin kemur út í Svíþjóð
í haust og þetta hjálpar öllu öðru.
Þetta er fínn skandinavískur með-
byr.“ Og svo enn sé vitnað í Sau-
erberg: „Stefán Máni har skrevet
en fandenivoldsk sømandsskrøne,
der kombinerer den moderne act-
ion-genre med gamle tekster.“
Stórblaðið Politiken gerir svo
Stefáni hátt undir höfði með opnu-
grein sem birtist nú í dag. Þar er
mynd af Stefáni vígalegum við
skurðarborðið en fyrirsögn við-
talsins er „Fra fiskefileterer“.
Tine Maria Winther skrifar og
greinir frá því í undirfyrirsögn
að þegar Skipið kom út á Íslandi
hafi þau rætt við hann um það
hvernig það væri að skrifa blóð-
ugar glæpasögur í landi þar sem
glæpatíðnin væri lág. Hvað var
það sem danski blaðamaðurinn
vildi vita er spurt og Stefán segir
pollrólegur að það hafi bara verið
„same old“. Hann vill ekki meina
að spurningar Danans hafi verið
frábrugðnar því sem hann á að
venjast á Íslandi. „Ég man þetta
varla. Það er örugglega ár síðan
hún kom og tók þetta viðtal. Þetta
er mér ekki í fersku minni. Það
hefur verið á ís. Svo hef ég verið
í netsambandi við hana meðan
hún var að ganga frá þessu núna.
Hvaðan ég kem og hvað ég er að
pæla.“
Stefán Máni skilaði nýverið inn
til útgefanda næstu bók sinni sem
væntanleg er í haust. Titill þeirr-
ar bókar er Týndir dagar. Hvað
sem verður því Stefán segir að
það kunni að breytast. Sú bók er
nú í hakkavél forleggjarans. Stef-
án segist eiga eftir að fá hana
aftur í hausinn með athugasemd-
um. jakob@frettabladid.is
STEFÁN MÁNI: OPNUUMFJÖLLUN Í POLITIKEN Í DAG
SKIPIÐ SLÆR Í GEGN Í DK
Eggert Skúlason, sérlegur
talsmaður knattspyrnukappans
Eiðs Smára á Íslandi, mun hafa
sést á hlaupum í Nettó á fimmtu-
dag. Hann mun þó ekki hafa
vantað neitt í búrið sem var svo
knýjandi heldur rauk hann beint
að blaðarekkanum og keypti sér
eintak af nýjasta Séð og
heyrt en þar mun vera
að finna myndir af
Eiði og félögum úr
landsliði Íslands úti
á galeiðunni.
Enda fyrirsögn
Séð og heyrt-
manna af dýru
tegundinni að
þessu sinni:
„Djúsaðir á
djamminu!“
Spaugarar í auglýsingageiranum
segja: Simbabve fór á hausinn og
þeir fengu Angelinu Jolie en Ísland
fer á hausinn og við fáum Evu Joly
– hvað er það? En áhöfn Icelandair,
þeirri sem flaug með Evu Joly áleið-
is til síns heima á Saga Class, mun
ekki hafa verið slíkt spaug ofarlega
í huga þegar hún tók
sig til og afhenti
Evu á bakka
áritað kort. Þar var
henni, fyrir hönd
þjóðarinnar, þakk-
að framlag sitt
til endur reisnar
fjármála-
kerfisins.
Magnús Geir Þórðarson hefur
fengið nýja hægri hönd í Borgar-
leikhúsinu. Sú gamla, Sváfnir Sig-
urðsson, hefur ákveðið að yfirgefa
stól markaðsstjóra leikhússins eftir
gott starf og hyggst víst setjast
á skólabekk. Sú sem tekur við
starfinu heitir Lára Aðalsteinsdóttir
og hefur unnið að markaðsmálum
fyrir Eymundsson. Hennar fyrsta
verk var að senda út
fréttatilkynningu
um væntanlega
útrás Vesturports
til Danmerkur
með Woyzeck.
- jbg, fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
DANIR HRIFNIR
Stefáni Mána er hrósað í hástert í Jyllands
Posten fyrir bókina Skipið. Danska stórblað-
ið Politiken er ekkert síður hrifið en Stefán
hefur skilað inn handriti að nýrri bók sem
heitir Týndir dagar.
www.17juni.is
DAGSKRÁ ÞJÓÐHÁTÍÐAR Í REYKJVÍK
30% AFSLÁTTUR ALLA
DAGA AF ÖLLUM PIZZUM Á
MATSEÐLI HJÁ DOMINO’S
EF ÞÚ SÆKIR OG GREIÐIR
MEÐ KORTINU