Fréttablaðið - 25.06.2009, Side 36
25. JÚNÍ 2009 FIMMTUDAGUR8 ● fréttablaðið ● blóm í bæ
Sögusýning íslenskrar garðyrkju
verður á garðyrkju- og blómasýn-
ingunni Blóm í bæ á innisvæðinu í
íþróttahúsinu. Þar má finna verk-
færi sem Garðyrkjuskóli ríkisins
hefur sankað að sér í gegnum tíð-
ina eða frá því um 1939, auk þess
sem saga garðyrkju á Íslandi er
rakin.
„Við erum í raun að sýna þró-
unina sem hefur orðið á verk-
færakosti og má þarna til dæmis
finna ýmis konar sláttuvélar en
þar erum við með nánast alla flór-
una,“ útskýrir Elfa Dögg Þórðar-
dóttir, sýningarstjóri Blóma í bæ
og umhverfisfulltrúi Hveragerðis-
bæjar. „Þarna er eitthvað á þriðja
tug hluta en við tínum úr það
skemmtilegasta. Þetta er allt frá
stórum sáningarvélum og þöku-
skerum niður í skóflur og hrífur.
Að sögusýningunni standa Land-
búnaðarháskóli ríkisins og Blóm í
bæ. Sýningin er opin alla helgina
og er aðgangur ókeypis.“ - hs
Saga íslenskrar
garðyrkju rakin
Ýmis verkfærakostur er til sýnis á sögu-
sýningu íslenskrar garðyrkju.
„Aðaláherslan í matvælatjaldinu
er innlend framleiðsla og helst úr
innlendu hráefni,“ segir Lilja Jóna
Halldórsdóttir hjá umhverfisdeild
Hveragerðisbæjar. „Þetta er ís-
lensk sýning með íslensku græn-
meti og íslenskum blómum.“
Hollusta úr hafinu verður með
sýningarbás í matvælatjaldinu og
segir Eyjólfur Friðgeirsson, stofn-
andi þess, að ýmislegt verði á boð-
stólum. „Við erum með mjög fjöl-
breytta vöru meðal annars sjáv-
arplöntur, þara og söl, fjallagrös,
jurtate og íslenska osta. Þetta eru
alíslenskar vörur.“
Dorothee Lubecki frá Rabarbíu
segir þau einnig verða með bás.
„Við verðum með rabarbarakara-
mellur, sultur og fíflasýróp. Það
er skondin saga á bak við kara-
mellurnar. Þetta er sprottið upp
úr samstarfsverkefni með Lista-
háskólanum sem heitir stefnu-
mót Listaháskólans við bændur. Í
fyrra var okkur boðin þátttaka og
þegar nemendurnir komu var rætt
um hvað væri hægt að gera. Hug-
myndin að karamellunni kviknaði
þá.“ - mmf
Þari og rabar-
barakaramellur
Rabarbía verður með bás í matvæla-
tjaldinu þar sem meðal annars verða
rabarbarakaramellur á boðstólum.
NORDICPHOTOS/GETTY
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/E
.Ó
L
Félag blómaskreyta ætlar að setja
Íslandsmet í lengstu blómaskreyt-
ingunni. „Skreytingin er unnin
mestmegnis úr trjám sem búið er
að fella í bænum,“ segir Berglind
Erlingsdóttir, formaður Félags
blómaskreyta. „Við erum líka að
nota afskorin blóm sem við fáum
frá garðyrkjubændum, íslenskar
jurtir sem standa vel og annað sem
til fellur. Við setjum þetta upp sem
eins konar blómaorm.“
Berglind segir að upphaflega
hugmyndin hafi verið að búa til
lengstu skreytingu heims. „Við ætl-
uðum að skrá hana í heimsmetabók
Guinnes. Svo komumst við að því
að það er mikill kostnaður í tengsl-
um við það þannig að við ákváðum
að gera lengstu skreytingu Íslands.
Ég hugsa að skreytingin verði ein-
hverjir tvö hundruð metrar.“
Berglind segir að Félag blóma-
skreyta vinni að mörgum verkefn-
um í tengslum við Blóm í bæ alveg
frá hringtorginu og inn í skrúð-
garðinn þar sem lengsta blóma-
skreyting landsins verður stað-
sett og ráðgert er að standi í allt
sumar. - mmf
Búa til lengstu skreytingu Íslandssögunnar
Undirbúningshópur blómaskreyta sem vinnur að lengstu blómaskreytingu Íslands.
M
YN
D
/Ú
R
EI
N
K
A
SA
FN
I