Fréttablaðið - 23.07.2009, Page 8
8 23. júlí 2009 FIMMTUDAGUR
- Lifið heil
www.lyfja.is
Lyfja lækkar verðið
20% afsláttur af öllum Scholl vörum í verslunum Lyfju í júlí.
NÝJAR
HANDHÆGARUMBÚÐIR
BANDARÍKIN Barack Obama hefur
nú í vikunni mætt harðri andstöðu
á Bandaríkjaþingi gegn frumvarpi
sínu um víðtækar umbætur í heil-
brigðismálum. Stórum hluta þing-
manna, einkum repúblikönum en
einnig mörgum demókrötum, vex
í augum sá kostnaður sem frum-
varpið er talið hafa í för með sér
fyrir ríkissjóð.
Frumvarpið þykir einnig það
flókið, að þingmenn vilja gjarn-
an fá meiri tíma til að grandskoða
það. Fátt bendir því til þess að
atkvæðagreiðsla um frumvarpið
fari fram í ágúst, eins og Obama
hafði stefnt að.
Aðalmarkmið frumvarpsins er
að allir Bandaríkjamenn njóti heil-
brigðistryggingar. Nærri fimmtíu
milljónir Bandaríkjamanna, einn
af hverjum sex, eru nú án heil-
brigðistryggingar.
Obama segir þó mikla vinnu
hafa verið lagða í að draga úr
kostnaðinum. Þingið hafi auk þess
árum saman verið að leita leiða til
að bæta heilbrigðistryggingakerf-
ið og ætti því að hafa góða þekk-
ingu á málinu.
„Við höfum ekki efni á pólitík
tafa og ósigurs þegar að heilbrigð-
ismálum kemur,“ sagði Obama nú í
vikunni og leggur allt kapp á að fá
málið í gegn sem fyrst.
Hann vitnaði í repúblikana á
þingi sem hafi sagt að takist þeim
að fella þetta mál þá verði það for-
setanum að falli.
„Hugsið ykkur,“ sagði hann svo.
„Þetta snýst ekki um mig, þetta
snýst ekki um pólitík. Þetta snýst
um heilbrigðiskerfi sem er að sliga
bandarískar fjölskyldur, bandarísk
fyrirtæki og bandarískt efnahags-
líf.“
Meðal þeirra sem styðja Obama
af heilum hug í þessu máli er rep-
úblikaninn Arnold Schwarzenegg-
er, ríkisstjóri í Kaliforníu, sem
sjálfur hefur reynt að koma á víð-
tækum heilbrigðisumbótum í ríki
sínu, en strandaði á ofurafli hags-
munahópa sem stöðvuðu frum-
varpið.
„Okkur tókst það næstum því,“
sagði Schwarzenegger í viðtali á
sjónvarpsstöðinni ABC. „Við höfð-
um fengið málið samþykkt í neðri
deildinni, en þegar það fór til öld-
ungadeildarinnar þá var það fellt
vegna sérhagsmunaaðila sem voru
of valdamiklir.“
Heilbrigðismálin eru reyndar
aðeins annað af tveimur stórum
frumvörpum, sem Obama hefur
undanfarna mánuði reynt að fá
þingið til að samþykkja. Hitt
snýst um loftslagsmálin og geng-
ur út á það að bandarísk fyrirtæki
og almenningur dragi verulega úr
útblæstri gróðurhúsalofttegunda,
og fái til þess vænan stuðning úr
ríkissjóði.
gudsteinn@frettabladid.is
Heilbrigðismálin
gætu þurft að bíða
Barack Obama leggur þessa dagana allt kapp á að koma frumvarpi sínu um
heilbrigðismál í gegnum þingið. Voldugir hagsmunahópar berjast af hörku
gegn málinu og andstæðingar forsetans vona að það verði honum að falli.
BARACK OBAMA Bandaríkjaforseti brá sér á þriðjudag út í garðinn við Hvíta húsið að ræða við fjölmiðla um heilbrigðisfrumvarp
sitt. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DÓMSMÁL Karlmaður var dæmdur
í tólf mánaða fangelsi fyrir ýmis
kynferðisbrot gegn dóttur sinni í
Héraðsdómi Suðurlands í fyrradag.
Neitaði hann allri sök í málinu.
Var hann sakfelldur fyrir að
hafa, nokkrum sinnum á árunum
2005 til 2008, káfað á kynfærum
dóttur sinnar og í eitt skipti fyrir
að fróa sér fyrir framan hana.
Fyrstu brotin áttu að hafa átt sér
stað þegar hún var níu ára. Þótti
framburður dótturinnar sannfær-
andi og voru henni dæmdar 600
þúsund krónur í miskabætur.
Maðurinn var hins vegar sýkn-
aður af öllum ákærum vegna brota
gegn stjúpdóttur sinni. Ákæran
laut að nokkrum brotum á árun-
um 2001 til 2005 þar sem hann átti
meðal annars að hafa káfað á kyn-
færum hennar. Nýjasta brotið var
ósk mannsins um að hafa samfarir
við hana þegar hún næði tvítugs-
aldri. Kynferðisbrotin hófust við
tíu ára aldur.
Gegn eindreginni neitun ákærða
taldi dómurinn að ekki væri komin
fram nægileg sönnun, sem ekki
yrði vefengd með skynsamlegum
rökum, fyrir því að ákærði væri
sekur um þá háttsemi sem honum
var gefin að sök. Var hann einnig
sýknaður af miskabótakröfu stjúp-
dóttur sinnar. - vsp
Karlmaður dæmdur til fangavistar fyrir að níðast á barnungri dóttur sinni:
Árs fangelsi fyrir kynferðisbrot
DÓMSALUR Maðurinn var ekki dæmdur
fyrir meint kynferðisbrot gegn stjúpdótt-
ur sinni. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
VIÐSKIPTI „Við bindum miklar
vonir við þetta óbeina eignarhald
erlendra fjármálafyrirtækja á
bankanum,“ segir Finnur Svein-
björnsson, bankastjóri Nýja Kaup-
þings. Hann segir að tengingin
muni væntanlega gagnast bankan-
um ákaflega vel við að byggja upp
eðlileg bankasambönd á ný. „Þau
viðbrögð sem bankinn hefur feng-
ið vegna aðkomu erlendra aðila að
bankanum hafa verið jákvæð.“
Finnur segir að nýir eigendur
bankans hafi vald yfir bankanum
frá þeim tímapunkti sem þeir taka
hann yfir auk þess sem þeir muni
hafa fjóra af fimm stjórnarmönn-
um. „Hugsanlegt er þó að kveðið
verði á um það í hluthafasam-
komulagi að það verði einhverjar
takmarkanir á því hvað hinir nýju
eigendur bankans geti tekið sér
fyrir hendur. Til dæmis verði ekki
hægt að umturna starfsemi bank-
ans á skömmum tíma eftir yfir-
töku þeirra,“ segir Finnur.
Hann segir að kröfuhafar gamla
bankans séu ekki einvörðungu
erlendir og trúlegt að einhverj-
ir lífeyrissjóðir og aðrir íslensk-
ir aðilar séu þar á meðal. Því mun
87 prósenta hlutur sem kröfuhafar
gamla Kaupþings geti eignast ekki
vera einvörðungu í eigu erlendra
aðila. Óljóst er þó hve stór hluti
mun vera í eigu Íslendinga. - bþa
Finnur Sveinbjörnsson segir að hann hafi fengið jákvæð viðbrögð erlendis frá:
Aðkoma erlendra aðila gagnleg
BANKASTJÓRI NÝJA KAUPÞINGS Finnur
Sveinbjörnsson segir hugsanlegt að
einhverjar takmarkanir verði á því hvað
nýir eigendur bankans geti tekið sér
fyrir hendur og ekki hægt að umturna
starfsemi bankans á einni nóttu.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VINNUMARKAÐUR Laun hækkuðu
um 0,2 prósent á milli mánaða
samkvæmt launavísitölu Hag-
stofu Íslands fyrir júní sem birt
var í gær. Síðastliðna tólf mánuði
hefur launavísitalan hækkað um
þrjú prósent.
Í Morgunkorni Íslandsbanka
segir að þetta sé mun minni
hækkun en á sama tíma fyrir ári
þegar laun hækkuðu um 1,2 pró-
sent milli mánaða. Laun hafa þó
hækkað um 1,3 prósent frá hruni
í október. Helstu ástæður þess
séu samningsbundnar hækkan-
ir sem samið var um fyrir hrun
en hafa komið til framkvæmda á
tímabilinu. - bþa
Laun hafa hækkað frá hruni:
Laun hækka lít-
ið milli mánaða
DÓMSMÁL Hinir ákærðu í brennu-
málinu svokallaða, þegar þrír
menn tóku sig til og reyndu að
brenna mann inni á Kleppsvegi
í júní, voru allir ákærðir fyrir
meiriháttar brennubrot. Verði
þeir fundnir sekir eiga þeir yfir
höfði sér minnst tveggja ára
fangelsi og allt að ævilöngu fang-
elsi. Málið var þingfest á þriðju-
dag.
Einn ákærða í málinu, Jón
Kristinn Ásgeirsson, er sá sami
og keyrði yfir mann á Hummer-
bíl á Laugaveginum í Reykjavík
fyrr á árinu. Þingfesting í því
máli er á mánudag.
Hinir tveir eru einnig ákærð-
ir fyrir fleiri brot. Annar fyrir
fjársvikabrot og hinn fyrir að
hafa ekið undir áhrifum áfengis-
og fíkniefna og ekið yfir á rauðu
ljósi. - vsp
Þingfesting í brennumáli:
Eiga yfir höfði
sér minnst 2 ár
FÉLAGSMÁL Landssamband eldri
borgara sendi félags- og trygg-
ingamálaráðherra bréf í gær þar
sem óskað er eftir því að hann
„leiðrétti lífeyri ellilífeyrisþega
til samræmis við kauphækkun
ASÍ og BSRB“. Jafnframt var
óskað eftir því að sú skerðing
sem varð á lífeyri 1. júlí verði
leiðrétt.
Frá 1. júlí hafði lífeyrir verið
skertur. Til dæmis hafði frítekju-
mark lífeyrisþega lækkað og sú
breyting gerð að lífeyrissjóðs-
tekjur skerði grunnlífeyri. Í bréf-
inu segir að það hafi verið við-
tekin venja að lífeyrir aldraðra
hækkaði í samræmi við hækkun
lágmarkslauna. „Eldri borgarar
hafa tapað miklum fjármunum
á hruni bankanna og máttu sæta
mikilli skerðingu á lífeyri sínum
um síðustu áramót.“ - vsp
Eldri borgarar vilja hærri lífeyri:
Hækki eins og
lágmarkslaun
1. Í hversu mörgum Evrópu-
sambandslöndum eru hægri
sinnaðar ríkisstjórnir?
2. Hvenær fékk Namibía
sjálfstæði?
3. Hverjir ætla að keyra
hringinn á bíl knúnum íslensku
metani?
SJÁ SVÖR Á SÍÐU 34
VEISTU SVARIÐ?