Fréttablaðið - 23.07.2009, Page 48

Fréttablaðið - 23.07.2009, Page 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Dr. Gunna Fyrst eftir að blekkingin um góðærið varð lýðnum ljós var uppi sterkt ákall um alveg glænýtt Ísland. Þetta var frjótt tímabil, á yfirborðinu alla vega. Það var sjokk að sjá að allt það versta sem hald- ið hafði verið fram um ömurlegt ástand undirstaðanna var sannleik- ur þrátt fyrir að alls konar lið hefði haldið því blákalt fram að ekkert væri að. Framtíðin var óljós og óör- ugg, allt upp í loft, og það var bæði ógnvekjandi og spennandi. GAMLA módelið var komið í klessu og alls konar gáfufólk var að pæla í nýjum ferskum möguleikum. Gamla fúla samtryggingin og spill- ingin átti sko aldrei að fá að vaða uppi á ný og sveitt gróðahyggja grillmeistaranna skyldi víkja fyrir samfélagslegri ábyrgð. SVO varð jákvæður vilji til upp- byggingar að reiðibylgju sem gaus upp eftir jól. Allt koðnaði þetta þó niður um leið og ný settleg ríkis- stjórn tók við og ný stjórnarand- staða hóf gjammandi upp sitt inni- stæðulausa raus. Þá var sem búið væri að troða hugsunum fólks og væntingum í ný hólf. Við viljum hólf. Steingrímur og Jóhanna gátu séð um þetta hér eftir. SÍÐAN hefur stemningin verið eins og allir séu sokknir í risapott af storknandi karamellu. Þar er engin hreyfing af því enginn kemst neitt. Það er endalaust tuðað um Icesave í algjöru andleysi og yfir- þyrmandi húmorsleysi. Karamell- an er svo seig að allar undankomu- leiðir eru jafn vonlausar. Annað hvort borgum við ekki og verð- um vinalaus úrhrök eða við borg- um og skríðum mót framtíðinni með hræðilega skuldabagga og allt niðrum okkur eins og aumingjar. Og allt þetta bara af því að nokkr- ir bankabjánar ætluðu að græða svo rosalega. Hvar er sanngirnin? Arrggghhhh!!! HVAR sem tveir koma saman er byrjað að fjasa um þetta helvít- is klúður. Ekki líður á löngu áður en allir eru orðnir brjálaðir í skap- inu því þetta er svo yfirgengilega ósanngjarnt. Voru þetta ekki einka- fyrirtæki? Hvernig í andskotanum geta nokkrir klúðrarar dregið heilt þjóðfélag á botninn en sloppið sjálf- ir? Voru þessir menn ekki á þess- um rosalaunum af því þeir báru svo ægilega mikla ábyrgð? Af hverju eru þeir ekki ryksugaðir? Hvað varð um ábyrgðina? SVONA umlykur karamellan sam- félagið sumarið 2009. Og Icesave er bara toppur skuldaísjakans. Afsak- ið á meðan ég lem mig í hausinn með hamri. Karamellu- sumar Í dag er fimmtudagurinn 23. júlí 2009, 204. dagur ársins. 4.06 13.34 23.00 3.28 13.19 23.07 A ug lý si ng as ím i – Mest lesið Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18-49 ára. Könnun Capacent í febrúar 2009 – apríl 2009. Hvar er þín auglýsing? 34% 74%

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.