Samvinnan - 01.12.1956, Page 18
Fyrrum var aðeins hægt að flytja
úr skógunum að vetrarlagi, er jörð
var frosin og akfæri gott. Það var þá
alla jafna flutt út á árnar, einu flutn-
ingaleiðirnar gegnum skógarþykknið,
er völ var á í þá daga. Þegar vorar
og ísa tekur að Ieysa, hefst fleytingin,
og meirihlutinn af viðnum fer með
mestu flóðunum. Fleytingin er ekki
hættulaus vinna, því að stundum
þarf að fara út á flotana til að lag-
færa þá eða greiða úr stíflum við
flúðir, þar sem bolir hafa hrannazt
saman. Sums staðar eru flotgirðingar
í ánni til að beina flotunum fram hjá
víkum eða öðrum farartálmum, er
tefur þá á leið til ákvörðunarstaðar,
og bátar eru notaðir til að draga víð-
áttumikla flota yfir stöðuvötn.
Margir skógareigendur nota sömu
vatnsföllin til fleytingar, og eru því
allir bolir merktir. A sérstökum stöð-
um eru svo flotarnir stöðvaðir og
bolimir dregnir í sundur eftir mörk-
unum. Þar em „skilaréttir“ timburs-
ins. Þar liggja flotbrýr yfir vötnin
eða langt út á þau, og það er því
líkast sem gengið sé á vatninu, er
þær em farnar.
AÐBÚNAÐUR FYRR OG NÚ
Mikill er nú munurinn á aðbúnaði
fólksins, sem vinnur í skógunum frá
því sem var í fyrri daga. Þá vom
engar slysa- eða örorkubætur, þótt
slysahættan væri alltaf mikil. Þá
vom engin ellilaun fyrir háaldraða
og útslitna skógarhöggsmenn og kon-
ur þeirra. Þá bjuggu þeir í lélegum
bjálkakofum úti í eyðiskógunum í
vetrarhörkunum, og komu ef til vill
ekki heim allan veturinn, ef þeir
unnu fjarri heimilum sínum. Nú em
skálar skógarhöggsmanna bjartir og
hlýir, auk þess sem þeir eru fluttir
heiman og heim langar leiðir kvölds
og morgna. Launin vom áður lítil og
vinnudagurinn langur, en nú em
launin há og vinnutíminn stuttur, og
þar að auki hefur tæknin og betra
skipulag við vinnuna minnkað erfiðið
og slysahættuna og aukið afköstin.
NÝTING TIMBURSINS
Niður árnar er timbrið á leið til
sögunarmylnanna og verksmiðjanna,
sem framleiða úr því tréni, gerviull
(Framh. A bls. 39)
meira heillandi. Þannig er Helsingja-
land allt, þar sem mannshöndin hefur
ekki verið að verki, og enn hefur hún
ekki verið sérlega aðgangshörð vestan
til í Helsingjalandi. Skógurinn er líka
mesti auður Helsingjalands og skóg-
arnytjarnar beztu landsnytjarnar, en
Ljusnan og hliðarár hennar eru flutn-
ingaleiðirnar fyrir timbrið. Hún hjálp-
ar til við að nytja skógana.
VINNAN í SKÓGINUM
Áður en skógarhöggsmennirnir
ganga í skóginn til að fella trén, er
búið að setja rnerki á þau tré, er
fella ber. Oft er eitt og eitt látið
standa eftir á strjálingi um reitinn.
Trén eru nú felld með vélsög, því að
tæknin hefur leyst hin frumstæðari
vinnubrögð af hólmi í skógarhögginu
eins og annars staðar. Ber að saga
tréð eins nálægt rót og hægt er. Síð-
an er timbrið flutt á brott, annaðhvort
til árinnar eða með bifreiðum til
geymslu eða vinnslustaðar. Miklar
vegalagningar eru nú um skógana.
Em vegirnir tvenns konar: fullkomn-
ir akvegir og svo slóðir fyrir hesta
að draga timburækin að aðalvegi eða
ánni. Reynt hefur verið að nota
draga í stað hesta til að færa timbrið,
en hestarnir gefast mun betur til
þeirra verka.
Myndin gefur glögga hugmynd um landslag í
Helsingjalandi. Ár og vötn á milli fremur lágra
hreða og skógurinn teigir sig út á hvert nes.
18