Samvinnan - 01.12.1956, Qupperneq 45
íþrótt í Kaupmannahöfn og gerðist
brautiyðjandi hennar hér fyrir um
23 árum. Hefur þessi íþrótt verið iðk-
uð hér síðan en ekki náð verðskuld-
uðum vinsældum hinna yngri sök-
um þess að nokkuð kostnaðarsamt er
að æfa hana í samanburði við aðra
innanhúss íþróttaleiki, svo sem hand-
knattleik og körfuknattleik. Tel ég þó
að Badminton taki flestum innanhúss
íþróttaleikjum fram, vegna þess
hversu drengilegur hann er og úti-
lokar keppendur frá því að hafa rangt
við og hagnast á því, einsog því mið-
ur á sér stað með suma aðra leiki.
Þessi leikur hefur upp á að bjóða
mikla þjálfun alls líkamans.
Badminton hefur raunverulega
þrennskonar fyrirkomulag leikja, það
er: Einliðaleikur, það er að einn
Ieikmaður leikur á hvorum vallar-
helmingi, svo tvíliðaleikur, þar leika
tveir menn á hvorum vallarhelmingi
og þá tvenndarleikur, þar leikur karl
og kona á hvo.am vallarhelmingi.
Þessi þrjú form leikja útheimta mis-
munandi þjálfun í sambandi við stað-
setningu leikmanna og boltameðferð.
(Það skal tekið fram, að einliðaleikur
og tvíliðaleikur er leikinn hvort sem
er af körlum eða konum). Þessari
íþrótt geta allir tekið þátt í og leikið
sér til skemmtunar og hressingar á
hvaða aldri sem er, ef þeir velja sér
jafningja, annars útheimtir badmin-
ton mikið þrek þar sem mætast vel
þjálfaðir og fullfrískir leikmenn. —
Leikurinn er skemmtilegur og drengi-
Iegur í eðli sínu og nýtur mikilla vin-
sælda víða um heim. Þær þjóðir, sem
standa fremst í þessari íþrótt, eru
Malajar, Bandaríkjamenn og hér í
álfu Danir, og má segja að það sé
þeirra þjóðaríþrótt og svo Breta.
Hér á landi er Badminton iðkað í
Reykjavík, Akranesi, Borgarnesi,
Stykkishólmi, (og má segja að það
sé staðaríþrótt í Stykkishólmi, enda
hefur hún átt skilningi að mæta af
kennurum staðarins og velvilja yfir-
ráðamanna íþróttahússins) ísafirði,
Akureyri, Húsavík, Hafnarfirði, Sel-
fossi og fleiri stöðum, ef til vill í Hér-
aðsskólunum. Þeir staðir, sem staðið
hafa í fylkingarbrjósti á undanförn-
um árum á landsmótum eru Stykkis-
hólmur og Reykjavík.
Fyrsta landsmótið fór fram 1949,
hér í Reykjavík og tóku þátt í því
Stykkishólmarar og Reykvíkingar.
Var keppt í tveimur greinum. I ein-
liðaleik karla varð fyrsti íslands-
meistari Einar Jónsson, Reykjavík. í
tvíliðaleik karla urðu fyrstu íslands-
meistarar þeir Friðrik Sigurbjörns-
son og Guðjón Einarsson úr Reykja-
vík. — Síðan hefur verið háð
íslandsmót á hverju ári og hafa
Stykkishólmarar æ látið meira til sín
taka, enda hafa þeir átt einliðaleiks-
meistara karla í tvö næstu ár 1950 og
1951 og svo aftur í ár 1956, var það
Ágúst Bjartmars, er vann þessi þrjú
ár. 1952—53—54—55 vann Wagner
Walbom frá Reykjavík, hafði hann
iðkað badminton í Danmörku frá
unglingsárum, en fluttist til Reykja-
víkur í stríðslokin síðustu og öðlað-
ist ríkisborgararétt hér 1952. Er ó-
hætt að segja að Wagner hefur borið
af öllum badmintonleikurum hér,
enda hefur hann hlotið miklar vin-
sældir og margir lagt sig fram til þess
að útfæra eftir getu það sem hann
hefur sýnt í leik sínum og hefur Bad-
mintoníþróttin notið þess. Stykkis-
hólmarar áttu einnig einliðaleiks-
meistara kvenna frá 1950, en þá var
fyrst keppt í þeirri grein. Meistari
varð Halla Árnadóttir frá Stykkis-
hólmi 1950 og 1951, þá tók við Ebba
Lárusdóttir 1952—53—54—55—56.
Tvíliðaleiksmeistarar og tvenndar-
meistarar hafa oftast verið frá
Reykjavík.
Meistarar árið 1956 urðu þessir:
I einliðaleik karla, Ágúst Bjartmars,
Stykkishólmi.
I einliðaleik kvenna, Ebba Lárus-
dóttir, Stykkishólmi.
I tvíliðaleik karla, Einar Jónsson og
Wagner Walbom, Reykjavík.
I tvíliðaleik kvenna, Júlíana Ise-
barn og Ellen Mogensen, Reykjavík.
Tvenndarmeistarar, Wagner Wal-
bom og Ellen Mogensen, Reykjavík.
Þau íþróttafélög, sem sent hafa
keppendur á íslandsmót eru Ung-
mennafélagið Snæfell, Stykkishólmi,
Tennis- og Badmintonfél. Reykjavík-
ur (TBR), Ármann og ÍR. Akureyr-
ingar sendu tvo keppendur 1950 og
Selfoss sendi svo karla og tvær konur
1955.
í Reykjavík hefur TBR (Tennis og
Badmintonfélag Reykjavíkur) hald-
ið uppi blómlegu æfingastarfi á und-
anförnum árum, hefur þó mjög háð
starfseminni húsnæðisskortur. í öðr-
um íþróttafélögum eru æfingar í þess-
ari íþróttagrein hverfandi litlar og
naumast á æfingaskrá þeirra.
Á þeim stöðum úti á landi, sem
skilyrði eru til húsnæðis og áhugi er
fyrir hendi að kynnast þessari íþrótt
geta einstaklingar og félög áreiðan-
lega fengið leikreglur og annað þar
að lútandi hjá Í.S.Í. Væri vel þess
vert að gefa þessu gaum, má benda
á að víða eru reist félagsheimili og
mundu þau víða geta leyst húsnæðis-
vandræðin.
Kaupfélag Steingrímsfjarðar
óskar viðskiptavinum sínum
gleðilegra jóla og gæfuríks
komandi órs.
★ ÞÖKKUM VIÐSKIPTIN ★
Q
sendir öllum viðskiptavinum sínum
beztu jóla- og nýjárskveðjur með
þökk fyrir viðskiptin á liðna árinu.
45