Samvinnan - 01.07.1976, Side 12
Slúfkiriar í annaé sinn
Skólaslit framhaldsdeildar Samvinnuskólans í
Reykjavík fóru fram 14. maí síðastliðinn. Nú voru
í annað sinn útskrifaðir stúdentar frá deildinni,
og voru þeir sjö talsins. Þar sem frumvarp til
laga um viðskiptamenntun á framhaldsskóla-
stigi hafði ekki verið afgreitt frá Alþingi á þess-
um tíma, og skólinn því ekki öðlazt formlegan
rétt til að útskrifa stúdenta, var hafður sami hátt-
ur á og síðastliðið ár, að prófdómarar frá Mennta-
skólanum við Hamrahlíð mátu prófin. Við skóla-
slitin mætti Guðmundur Arnlaugsson rektor, og
afhenti hann nýstúdentum prófskírteini sín.
Stúdentarnir sjö, sem útskrifuðust í ár úr Samvinnuskólanum, eru
þessir (taliö frá vinstri): Þórólfur Gíslason, Reyðarfirði, Methúsa-
lem Þórisson, Reykjavík, Jón Leifsson, Reykjavík, Magnús Ólafsson,
Norður-Múlasýslu, Guðríður Magnúsdóttir Akranesi, Gunnþóra
Jónsdóttir, Norður-Þingeyjarsýsiu, Sigmar Arnórsson, Reykjavík. —
Á myndinni til vinstri flytur Haukur Ingibergsson skólastjóri ræðu
við skólaslitin.
12