Samvinnan - 01.07.1976, Blaðsíða 20
með Guðmundi og félaga hans.
Einu sinni þegar við lágum
i Kaupmannahöfn svarf til
stáls milli Sigga Tömmer og
kyndara frammi í lúkarsgangi.
Þaðan bárust eitt kvöldið óg-
urleg hljóð, brak og brestir.
Eins og títt er um menn sem
ekki vita afl sitt skirrast þeir
við að slá til manna, það kynni
að verða banahögg — og þvi
vilja átök þeirra taka á sig
kynduga mynd. Átökin voru út
af kvenmanni. Siggi Tömmer
naut þvilikrar kvenhylli að
með ólikindum var, kvenfólk
elti hann á röndum hvar sem
hann fór. Hann var friðsemd-
armaður, en lét ekki hlut sinn
fyrir neinum og það heyrði til
algerra undantekninga að
hann þyrfti að beita handafli
rétti sínum til áréttingar. Nán-
ari tildrög átakanna i lúkars-
ganginu skýrðust aldrei —
nema út af kvenmanni voru
þau. Kyndari hafði gerst fjöl-
þreifinn við kvenmann sem
Siggi átti i hvert bein. Og þeg-
ar menn dreif fram í lúkars-
ganginn var Siggi Tömmer að
tyggja eyrnasnepilinn á kynd-
aranum. Hann stóð bara þarna
með manninn i járngreipum
sínum — og var byrjaður að
éta hann, og kyndarinn kunni
þessu afar illa svo ekki sé meira
sagt.
Faðir þinn — eða Jón
Matthíasson, alltaf kallaður
Jón Matt, svo ég nafngreini
hann vegna lesandans — sagði
mér þessa sögu eins og raunar
fleiri sem hér verða látnar
flakka, og aðrir i flotanum
gerðu hvorki að matreiða þær
betur né segja, þannig að þær
fengju vængi. Jón var svo
glöggur á það sérstæða í fari
manna, að þegar hann hafði
kynnst þeim hafði hann þá
einhvern veginn í pússi sínu
uppfrá því og gat brugðið þeim
upp alveg ljóslifandi þegar
honum sýndist — og sumir
voru ekki öfundsverðir af slík-
um sýningum, ekki þeir sem
farið höfðu að ráði í taugarnar
á Jóni.
Enn er ónefnt eitt ofurmenn-
ið íslenskt sem aldrei líður mér
úr minni, það er Pétur Hoff-
mann, Selsvararkappinn sem
siðar varðist hálfri herdeild í
Selsvörinni með exi eina að
vopni, kappátið sem hann háði
um borð í Gullfossi og eins
dagurinn þegar hann hlóð
„tuttugu og átta“ dönum í
stóra slagnum í Nýhöfninni —
eða þegar hann fór í kvik-
myndahúsið í Leith. En Pétur
kemur ekki við sögu fyrr en ég
var á Gullfossi í siðara sinnið,
þá orðinn stýrimaður. ♦
Andíit á
aóalfundí
Árlega safnast saman rúmlega hundrað fu^
trúar kaupfélaganna hvaðanæva af landi11
á aðalfund Sambandsins til að ræða xnálef1
samvinnuhreyfingarinnar og stöðu hen113'
í þjóðfélaginu hverju sinni. Fundurinn í8
hófst að venju á ítarlegu yfirlitserindi
lendar Einarssonar forstjóra um starfse1^
Sambandsins, en aðalefni fundarins var
vinnulýðræði. Svipmyndirnar á þessari sí^
tók Kristján Pétur Guðnason.
Gunnar Guðbjartsson, form. Stéttarsambands
bænda, og Daníel Kristjánsson, Hreðavatni.
Þrír fulltrúar starfsmanna: Reynir Ingibjarts
son, framkvæmdastjóri LÍS, Jóhann Sigurðsson,
formaður Starfsmannafélags verksmiðjanna á
Akureyri og Sigurður Þórhailsson, formaður LÍS.
ao