Samvinnan - 01.07.1976, Blaðsíða 40
SU MAR-
LEYFI
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA AKUREYRI
AÐALSKRIFSTOFA: HAFNARSTRÆTI 91-93 - SÍMI (96)21400 (SAMBAND VIÐ ALLAR DEILDIR)
Sumarleyfi eru hverjum manni nauðsynleg tilbreyting frá
önn og áhyggjum. Það er því mikilvægt, að þau verði fólki
til sem mestrar ánægju og hressingar. Landið okkar býr
yfir endurnýjandi krafti á víðáttum tiginna öræfa og í fögr-
um, blómlegum byggðum.
Fá héruð eru veðursælli en Eyjafjörður. Frjósöm mold
hans stendur undir blómlegum búskap og góðum efna-
hag. Reisuleg bændabýli vekja ferðamanninum nýja trú
á glæsta framtíð íslands.
Akureyri er hin sjálfkjörna bækistöð gesta héraðsins, og
hefur upp á flest það að bjóða, sem hugurinn girnist.
Kjósið þér útilíf eru tjaldstæðin tilbúin. Sundlaug, íþrótta-
svæði og gönguleiðir til allra átta, hvort sem er með sjó
fram eða til fjalla. Söfnin í bænum bjóða gestinum margs
konar fróðleik og nána snertingu við fortíðina, t. d. Minja-
safnið og hús skáldanna Daviðs, Matthíasar og Nonna.
Þeir, sem hneigjast að verklegum framkvæmdum, geta
hér kynnzt nútíma iðnaði hjá verksmiðjum samvinnuhreyf-
ingarinnar, en hún á hér öruggt vígi.
Kaupfélag Eyfirðinga býður upp á alhliða þjónustu. Það
er því ekki nauðsynlegt að iþyngja sér með of miklum
farangri í sumarleyfisferð til Akureyrar. Hinar ýmsu við-
skiptadeildir KEA sjá yður jöfnum höndum fyrir öllu, sem
viðkemur ferðalögum, hvort sem um er að ræða útivist
og tjaldbúðalíf, eða húsnæði og fæði í bænum. í öllum
bæjarhverfum finnið þér kjörbúðir vorar, sem fúslega
aðstoða yður við val lystugra og nærandi matvæla í nest-
ið. Og mörgum þykir handhægt og gott að fá sér heitan
mat á Matstofu KEA og nýlagaðan kaffisopa. Þeir, sem
hærri kröfur gera, kjósa að búa á Hótel KEA og neyta
þar veizlumatar að eigin vali.
Kaupfélag Eyfirðinga óskar yður góðs og endurnærandi
sumarleyfis og vill með þjónustu sinni stuðla að því, að
svo megi verða.