Samvinnan - 01.07.1976, Blaðsíða 37
ryrstu reglurnar
Framh. af bls. 19.
i heild, en umbótamenn um
miðja síðustu öld virðast hafa
gert sér litlar vonir um svo
öra þróun lýðræðisins, að
hægt væri að treysta lausn
vandamála hins vinnandi
fóiks á þeim vettvangi. Höfðu
þeir hvað eftir annað orðið
fyrir miklum vonbrigðum af
enska þinginu, eins og það
var þá skipað. Nú telja flestir,
að atvinnuleysi og allt það
böl, sem þvi fylgir, sé vanda-
mál, sem rikisvaldið verður
að leysa. Samvinnumenn
hafa einnig horfið frá hug-
rnyndum um sérstakar sam-
vinnubyggðir (nema i ísrael)
og telja að baráttu fyrir ýms-
um málum, sem frumherjar
hreyfingarinnar tóku sér fyr-
ir hendur, verði nú að heyja
á vettvangi stjórnmála og
með samningum milli vinnu-
kaupenda og vinnuseljenda.
Stefnuskrá þeirra, sem þeg-
ar hefur verið lýst, gaf til
kynna vonir þeirra um fram-
tíð samtakanna. En þeir settu
sér einnig starfsreglur, og eru
þær merkasti arfur þessa fé-
lags til samvinnuhreyfingar-
innar i heild. Þeir völdu
nokkur meginatriði, sem
höfðu verið reynd eitt og eitt
með misjöfnum árangri,
gerðu úr þeim heilsteyptan
grundvöll, sem reynzt hefur
svo traustur, að hann má enn
i dag kalla kjarna samvinnu-
hugsjónarinnar um heim all-
an.
Höfuðreglur Rochdale fé-
lagsins voru þessar:
1) Lýðræðisleg stjórn. Hver
félagsmaður skyldi hafa
eitt atkvæði án tillits til
viðskipta.
2) Félagið sé opið öllum.
3) Fastir, lágir vextir af fjár-
framlögum til félagsins.
4) Ágóði skiptist í árslok
milli félagsmanna i hlut-
falli við viðskipti þeirra.
5) Staðgreiðsla.
6) Góðar, ósviknar vörur, rétt
mál og vog.
7) Fræðslustarf.
8) Fullkomið hlutleysi um
stjórnmál og trúmál.
Samvinnumenn hafa mikið
rætt og ritað um þessar regl-
ur, og vilja sumir bæta við
Þær, en aðrir fella nokkrar
þeirra niður. Þó eru allir
sammála um fjórar fyrstu
reglurnar, enda eru þær höf-
uðeinkenni allra samvinnu-
íélaga og ekki hæ'jt að kalla
hað samvinnufélag, er ekki
fylgir þeim öllum. Þessi fjög-
ur einkenni skapa reginmun
á samvinnufélögum og öðrum
ramtökum í efnahagslífi.
___
Ný þjónustumiðstöð
KASK
SKAFTAFELLI
{ versluninni:
Allar nauösynlegar matvörur,
búsáhöld og vefnaóarvara
miöuö vió þarfir feróamanna.
í veitingastofunni:
Heitur matur og grillréttir.
Opiö frá kl. 9 til 23 alla daga.
Þjónustumiöstöö.
Kaupfélag Austur-Skaftfellinga
Þjóögaröinum SKAFTAFELLI
(Kaflar úr „íslenzkt sam-
vinnustarf“ eftir Benedikt
Gröndal)