Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1975, Blaðsíða 17

Samvinnan - 01.12.1975, Blaðsíða 17
Sigurður Normann, er þjer minnist á, er hjer í bænum og er verzlunarmaður. Biður hann kærlega að heilsa yður og bíður yður velkominn til sín, ef þjer vilduð heimsækja okkur landa yðar hjer. Væri það okkur mik- il ánægja. íslands myndir þær eptir B. Gröndal0) með hept- um, er þjer höfðuð fengið hon- um til sölu, gat hann ekki selt. Hann fór með þær og bauð þeim, er liklegastir voru til þess að kaupa þær, en flestir þóttust ekki skilja þær. Höfðu þær komið of seint; þvi að mesta „begejstringen" var þá þegar um garð gengin. Magnús Ei- riksson var hjer nokkru seinna, og bað hann hann að veita þeim móttöku, en þá var ekki pláss fyrir þær í koffortum hans. Fór Sigurður svo með þær til Kammermeyers, stærsta bóksala hjer í bænum, og bað hann að selja þær. Tók hann við þeim og auglýsti þær strax i hinni næstu vikulegu skýrslu yfir það, er hann hafði til sölu. Hvert hann hefur selt nokkuð af þeim, fær Sigurður að vita við Nýárs „opgjöret“. Segist Sigurður hafa skrifað yður og spurt, hvert ætti að auglýsa þær, en ekkert svar fengið. Vill hann að þjer ráðstafið þeim á einhvern hátt Vitið þjer hvar Jón Ásgeirs- son er, sonur Ásgeirs gamla á Þingeyrum10) og hvernig hon- um líður? Væri Sigurði kært, ef þjer gætuð upplýst hann um það, þvi Jón þessi skuldar hon- um nokkur hundruð krónur. Hvað mikið er inntökugjaldið í bókmentafjelagið eða árstil- lagið og hvaða bækur hafa komið út i ár? Hvað kostar Jónas Hallgrímsson og er hann fáanlegur í Höfn? Þjer verðið að fyrirgefa mjer þessar spurn- ingar og að jeg skrifa yður eins og við værum gamalkunn- ugir. Jeg óska yður til lukku og íslandi með tengdason yðar Hannes Hafstein.11) Það er gleðilegt að sjá hvað í honum býr og vonandi að það verði ættjörðinni til frama. Hann þekki jeg ekkert nje anda stefnu hans að jeg get gjört mjer nokkra verulega meiningu þar um. Þau fáu kvæði eptir hann, sem jeg hef sjeð, bera vott um mikla krapta. Og það er hírgandi og lyptandi að sjá þá ólmast í þessu sterka ólg- andi æskufjöri, þegar því fylgir vonarstyrkleiki, „trú á ið góða“ og alvara. Það er heldur ekki nein ástæða, að minnsta kosti fyrir mig, að álíta andhita Hannesar annað en alvöru og að hann hafi fundið verulega til þess sannleika, að „átumein er andans leti“, er hann sjálfur segir; jafnvel þó jeg viti að andhiti okkar unglinganna sje opt ekki nema augnabliks hrifning, er bráðum kólnar og missir alla alvöru. Mjer liggur við að segja, að þetta sje sár- grætilega eðlilegt; því það þarf sterkan vilja, sterka von og sterka sannfæringu til þess að geta staðist þær inar mörgu „skuffelser“, er kæfa margan neista, áður en hann nær fullu lífs fjöri. Jeg vil óska þess, að Hannes eigi hugrekki og þrek Skarphjeðins, sem er sá af fornhetjunum, er hann virðist að hafa fundið „gjenklang“ hjá — og fjör Math. Jochums- sonar og hans „trú á það góða“ — en ekki síst trúar alvöru og trúar andhita Hallgríms Pjet- urssonar. Hann gæti þá lypt ís- landi upp úr doðanum á jafn- stigi — relativt talað — við aðrar þjóðir. Jeg hef þá von að ísl. fæðist maður, er setjast megi jafnhliða „dýrðlingum" annara þjóða. Að tengdasonur yðar Hannes Hafstein sje sá, segir sig sjálft að jeg viti ekki um; enda myndi eðlilegast að taka það fyrir smjaður, ef jeg færi að láta þess háttar í ljós við yður. Jeg tel sjálfsagt, að þjer sje- uð orðinn leiður á rausinu úr mjer og verðið þvi fegnir að jeg hætti. Jeg bið yður að fyrir- gefa tímatöfina og þakka yður fyrir þolinmæðina með óskum beztu á nýja árinu. Yðar einlægur NSThorlaksson. Fr. Bergmann biður að heilsa yður.“ Nú segir ekki meira af þeim félögum, Steingrimi og Friðrik Bergmann í Kristjaníu, eða Tryggva kaupstjóra og alþing- ismanni í Kaupmannahöfn, frá áramótum og til vors 1884. En þá hefur Tryggvi að vanda haldið til íslands. Nú var ekki þingsumar, og hefur hann því farið rakleitt til verzlunarstaða Gránufélags, Oddeyrar, Siglu- fjarðar, Vestdalseyrar og Rauf- arhafnar. Hitt er þó frásagnar- verðara, að prestlingarnir Steingrímur og Friðrik hafa ráðizt í íslandsferðina, sem þeir höfðu verið að gera gælur við. Hafa þeir þá fundið Tryggva að máli, auk fjölda vina, ætt- ingja og nýrra málvina og kunningja, sem þeir hafa ugg- laust eignazt í ferðinni. Er eng- inn efi á, eins og málum var þá háttað, að þeir hafa vitandi vits og óafvitandi komið fram sem talsmenn vesturferða af íslandi meðan þeir stóðu þar við. En af öllu þessu segir lítillega í bréfi Steingrims til Tryggva: „Arindals Gaden 12 Kristjania 13. novbr. 1884 Hr. verzlunarstjóri Tr. Gunnarsson Góði málvinur, Jeg þakka yður síðast, og samkvæmt ummælum vil jeg senda yður nokkrar linur. Þó kem jeg öðruvísi en jeg hefði viljað; þvi gestir, er koma með kvabb, eru fæstum velkomnir. Svo er, að sem stendur er jeg í peningaklipu. Jeg hef vonast eptir brjefi og peningum að heiman; en það dregst. Neyð- ist jeg þvi til að biðja yður að lána mjer og senda um 100 kr. upp á það, að jeg sendi yður aptur, það fyrsta jeg fæ pen- inga að heiman. En bezt þætti mjer, ef þjer hefðu peninga, er ættu að fara vestur til einhvers í grend við Harald, ef þjer vilduð þá víxla þeim í gegnum mig og Harald. Jeg stæði yður auðvitað í ábirgð fyrir þeim. Jeg hefði nú ekki þorað að álíta, að þjer gætuð borið það traust til mín, sem þetta kref- ur — sem ekki var von — hefðuð þjer ekki sagt við Frið- rik fjelaga minn, að þjer skyld- uð lána okkur, ef við þyrftum þess við á íslandi. Ferð okkar gekk dável. Tók nokkuð langan tíma. Hefur lið- ið vel, síðan við komum, og les- ið í ákefð. Höfum ekki sjeð ís- lenzk blöð. Blaðamenn á ísl. er (sic) þvílíkir trassar með að senda blöð sín, að það er hörm- ung. Jeg hafði brjef frá ísl. til Valgerðar fósturdóttur yðar. Það Ijet jeg i póstkassa í Höfn. Hefur það komið til skila? Var frá frú Valgerði.12) Væri gam- an að heyra seinustu frjettir frá ísl. Jeg ætlaði mjer að tala við yður prívat, áður en jeg fór frá ísl. En þegar jeg frjetti, að þjer væruð í svo miklu annríki, ljet jeg það vera. Það var nfl. um Gránufélagið og yðar „popularitet“.1:l Jeg grennslað- ist eptir því, hvar sem jeg fór, hvaða álit fjelagið hefði og í sambandi við það forstjóri þess. Fann jeg að það var al- ment kur í mönnum og ó- ánægja bæði við fjelag og for- stjóra. Þjer segið kanske, að ekki megi kippa sjer upp við þess- háttar, þvi það sje svo algengt. En varasamt er að treysta því eingöngu. Jeg álít að óánægjan sje ekki ástæðulaus. Sá urmull af verkamönnum og þjónum, sem Gránuverzlun hefur, er jeta upp ágóða verzlunarinnar, er óþarfur og illur. Hinar aðr- Framh. á bls. 48 „Jeg óska yður til lukku og íslandi með Hannes Haf- stein.. „Sá urmull af verkamönnum og þjónum, sem Gránuverzl- un hefur, er jeta upp ágóða verzlunarinn- ar, er óþarfur og illur ...“ 23
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.