Samvinnan - 01.12.1975, Blaðsíða 63
FLOKKUR 1
Tal og lítil hljómgæði
Sé ætlunin að hlusta einungis á tal, svo
sem tungumálanámskeið, nægja einföld-
ustu og ódýrustu tækin. Tal hefur þröngt
tónsvið og gerir ekki miklar kröfur til
tóngæða. Fyrir yngstu kynslóðina, sem
vill e. t. v. spila sjálf uppáhalds lög sin,
verða tækin að vera einföld og traust.
Hljóðmagnið skiptir þá oft mestu máli.
Sumir vilja líka hlusta á tónlist þegar þeir
vinna og krefjast þá ekki mikilla tón-
gæða.
FLOKKUR2
Meðal hljómgæði
Áhugafólk um tónlist verður þó að
krefjast meiri tóngæða. Það er hægt að
ná nokkuð langt með sambyggðum út-
varpsfón (plötuspilari, magnari, útvarp
og hátalarar), eða plötuspilara með inn-
byggðum magnara og lausum hátölurum.
Dýrari tækin í þessum flokki hafa venju-
lega þokkaleg tóngæði, þó innbyggðir há-
talarar séu litlir. Rafhlöðudrifin segul-
bandstæki og plötuspilarar eru yfirleitt
dýrari en tæki í sama gæðaflokki fyrir
220 V ~ A.C. spennu.
FLOKKUR3
Góður hljómflutningur
Þeir sem gera miklar kröfur til hljóm-
gæða reyna að verða sér úti um tæki í
Hi-Fi gæðaflokki. Hi-Fi er stytting á
High Fidelity, sem þýðir nánast: mikill
áreiðanleiki. Það er erfitt að draga
markalínu fyrir Hi-Fi. Það er hægt að
segja, að ef allir tónar, sem maður með
eðlilega heyrn skynjar, hljóma rétt með
tilliti til yfirtóna og innbyrðis styrks, þá
sé Hi-Fi-markinu náð. Þýzki gæðastaðall-
inn DIN 45500 er sérstaklega ætlaður
fyrir heimilistæki og ef hljómtækjasam-
stæða nær þessum staðli má ætla að
kröfurnar um heimilistæki með Hi-Fi-
gæðum séu uppfylltar. Hi-Fi samstæða
er venjulega samsett úr mörgum hlutum.
Það er varla til algerlega sambyggt tæki
með Hi-Fi tóngæðum; hins vegar fást
hlutarnir hver um sig, þ. e. a. s. plötu-
spilari, magnari, útvarpstæki (Tuner) og
hátalarar, sem hæfa hvert öðru. Þá er
hægt að velja hlutina eftir eigin höfði,
sinn úr hverri áttinni, ef þess er gætt að
hlutirnir hæfi hver öðrum. Hér gildir l'ka
sú regla, að yfirleitt fylgjast að verð og
gæði. Hugsið ávallt um að herbergis-
stærð og innbú verka á hljómgæði. Lítið
herbergi þarf venjulega minni hljóðstyrk
en stórt og þar af leiðandi ódýrara tæki.
Það er ekki víst að neinn hljómmunur
heyrist i dýrari tækjum og verðmuninum
sé kastað á glæ.
Hafa skal í huga þegar keypt er:
• í hvaða tilgangi á að nota tækin.
Hér á eftir fara nokkur skrif um hljóm-
tæki í hinum þrem grófskiptu flokkum
og af hinum misjöfnu gæðum.
Munið að kaupa ekki óþarflega dýr
tæki, ef ódýrari tæki fullnægja þörfum
ykkar.
• Hve mikið mega tækin kosta?
Sé ákveðin fjárupphæð höfð í huga er
hægt að útiloka margar hljómtækjasam-
stæður, sem yrðu of dýrar. Þá er e. t. v.
einnig hægt að útiloka annan hóp af
einfaldari og ódýrari tækjum. Þannig er
hægt að auðvelda sér valið með því að
útiloka ákveðna hópa.
3