Samvinnan - 01.12.1975, Blaðsíða 36
í góðu yfirlæti
hjá
Centrosoyus
Á samyrkjubúimi
voru 2500 íbúar, þar
af 1200 vinnandi,
meðtalið sérhæft fólk,
sem var um 50.
Svipmynd frá Moskvu.
í fjallshlíð og er upplýst. Stytt-
an af móður Georgíu er mjög
stór og áberandi, gnæfir yfir
borgina. Hún heldur á sverði í
hægri hendi og skál með víni í
þeirri vinstri. Hún vitnar um
frelsisást og gestrisni Georgiu-
manna og segir „Velkomin til
Sovét Georgiu, velkomin til
Tbilisi.“ Að síðustu þetta kvöld,
var farið upp á hátt fjall Mount
Mtatsminda. Þaðan er stór-
kostlegt útsýni yfir borgina
sem við nutum vel. Þarna uppi
er gott veitingahús. Þar feng-
um við kvöldverð sem var vel
útilátinn bæði að magni og
fjölbreytni í mat og drykk.
Þessum fagnaði stjórnaði einn
af varaforsetum samvinnusam-
bands Georgíu (skammstafað
Tsekavzhizi) hr. Bukhzedze K.
A., en hann hafði tekið á móti
okkur á flugvellinum og var
fararstjóri fyrir öllu ferðalagi
okkar um Georgíu. Honum til
aðstoðar voru að jafnaði tveir
eða fleiri aðstoðarmenn.
Sunnudagsmorgun 24. nóv.
var lagt timanlega af stað.
Fremst ók lögreglubíllinn, sem
alltaf var i fararbroddi og
greiddi götu okkar. Þar næst
ók bifreið fararstjórans og að
síðustu kom stór fólksflutn-
ingavagn með allt annað fylgd-
arlið og gesti. Bifreiðin var góð
og vel úr garði gerð. Jafnan
var í bilnum kunnugur maður
sem skýrði það sem fyrir augu
bar gegnum hátalarakerfi, en
túlkarnir þýddu jafnharðan
hver á sitt mál.
Ekið var út úr borginni. Veð-
ur var gott, sólskin og hlýtt.
Leið okkar lá um fagrar byggð-
ir. Víða virtist húsakostur vera
góður, annars staðar gamall og
lélegur. Eftir alllanga ferð í
austurátt var numið staðar á
veitingastað í fögru umhverfi
þar sem heitir við Rakheti.
Veitingahúsið er í eigu sam-
vinnufélags. Boðið var úr vín-
kjallara veitingahússins vin,
sem ausið var upp í leirkrúsir.
Margar víntegundir var um að
velja. Síðan var setzt að borð-
um, þar sem margs konar krás-
ir voru á boðstólum. Forstöðu-
maður samvinnufélagsins var
þarna mættur. Sagði hann
nokkur orð um starfsemi fé-
lagsins og svaraði fyrirspurn-
um.
• SAMYRKJUBÚ SKOÐAÐ
í Tellavi skoðuðum við sam-
yrkjubú. Bústjórinn svaraði
fyrirspurnum í fundarsal bús-
ins. Þar komu m. a. þessar upp-
lýsingar fram:
Ræktað land búsins eru 2000
ha. þar af er notað fyrir vín-
rækt 900 ha. og 500 fyrir fram-
leiðslu á svínafóðri. Á búinu eru
900 svín (gyltur) og 262 kýr.
Varðandi framleiðslu í ár
(1974) voru eftirfarandi tölur
upp gefnar, þ. e. sala, notkun
afurða fyrir heimafólk ekki
meðtalin: Ávextir 4300 tonn,
rósaolía 35 tonn, hveiti 700
tonn, maís 600 tonn, mjólk 240
tonn, kjöt 84 tonn.
Hagnaður af rekstri búsins
varð árið 1973 160.000 rúblur en
100.000 rúblur árið 1974 (ca.).
Af hagnaðinum er 60% varið til
launauppbóta en 40% til end-
urnýjunar. Til frekari upplýs-
inga er rétt að geta þess að i
dag svarar ein rúbla til 160 ísl.
kr.
íbúar þessa samyrkjubús eru
um 2.500, þar af 1200 vinnandi,
meðtalið sérþjálfað fólk, sem
er 50. Búið ræður yfir 120 vél-
um, þar af 40 traktorum. Sam-
yrkjubúið starfrækir barna-
heimili fyrir 120 börn.
Koma okkar þessara erlendu
gesta, sem vorum harla ólíkir
að sjá, enda frá tólf þjóðlönd-
um í þremur heimsálfum, vakti
talsverða athygli íbúanna, sem
hópuðust saman til að fylgjast
með okkur. Framkoma fólksins
var undantekningalaust vin-
gjarnleg.
Undir kvöldið skoðuðum við
stóran og fagran garð, þar sem
gróður var ennþá að verulegu
leyti í fullum skrúða, þó komið
væri fram undir nóvemberlok.
Þá var einnig skoðað merkt
sögu- og listasafn.
Frá kl. 18 til kl. 20 sátum við
síðan kvöldverðarboð hjá sam-
vinnusambandinu í Tellaví hér-
aði. Veitingar voru frábærar,
margar ræður voru haldnar,
heimamenn sungu Grúsiska
söngva, vinsemd og glaðværð
ríkti, sem Georgíumenn eru
frægir fyrir.
• SKÓLI SEM ENDURHÆFIR
STARFSMENN
Mánudaginn 25. nóv. var
komin rigning og orðið fremur
kalt í veðri, svipað veður og á
íslandi stundum á haustin. Að
loknum morgunverði var ennþá
haldið af stað. Nú skoðuðum við
stóran skóla í Tbilisi sem sam-
vinnumenn reka. Rektor skól-
ans gekk með okkur um skóla-
stofur og sýndi margvísleg
kennslutæki og skýrði fyrir
okkur kennsluaðferðir. Þarna
virðast vera kenndar fjölmarg-
ar námsgreinar svo sem efna-
fræði o. m. fl. sem snertir frem-
ur iðnrekstur heldur en verzl-
un. Mikið virðist vera lagt upp
úr vörufræði. Komið var inn í
nokkrar skólastofur þar sem
kennsla stóð yfir. Þeir nem-
endur sem við sáum voru flest-
ir starfsmenn einhverra sam-
vinnufélaga. Þeir voru í skól-
anum til endurhæfingar og til
að kynnast nýjungum varðandi
starfið. Var okkur sagt að tals-
vert væri um slíkt i Georgíu.
Þessi endurhæfingarnámskeið
eru misjafnlega löng eftir því
um hvaða starfsgrein er að
ræða. í öllum tilfellum er fólk
á fullum launum meðan það
sækir námskeiðin, og á að
sjálfsögðu rétt á sínu fyrra
starfi að námskeiði loknu.
Þennan dag komum við í
skóla, sem var bæði fyrir börn
og unglinga. Þessi skóli er fyrir
utan hina almennu skóla-
skyldu. Nemendur mæta þarna
yfirleitt tvo daga í viku eða
hluta úr tveimur dögum. Þarna
virtist okkur að hinir verðandi
leiðtogar fengju sína upp-
fræðslu í ýmsum greinum. Að-
búð virtist góð. Þarna eru m. a.
málefni kommúnistaflokksins
kennd. Ennfremur tungumál og
fjöldamargt annað. Við hittum
kennara sem töluðu ensku
reiprennandi og unga nem-
endur sem kunnu einnig dálítið
í ensku. Þá virtist okkur að
ballett og þjóðdansar væru í
hávegum hafðir. En í lok heim-
sóknar okkar í skólann fengum
við að sjá ljómandi skemmti-
lega söngva-, dans- og ballett-
sýningu sem var útfærð af litl-
um börnum og allt upp í stálp-
aða unglinga. Greinilega voru
þarna mörg listamannsefni á
ferðinni.
• UM ÞRIÐJUNGUR ÍBÚA
FÉLAGSMENN
Seinnipart dags komum við í
aðalstöð samvinnusambands
42