Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1975, Blaðsíða 28

Samvinnan - 01.12.1975, Blaðsíða 28
Dauðinn var hámark lífsins sjálfan þig.“ Líkt Indverjum, finnst þér ekki? Seinna fórum við til Giza. Seinasta spölinn upp að pýra- mídanum mikla var okkur sagt að við ættum að fara ríðandi á úlfalda. Ég snarast uppá einn úlf- aldann sem liggur við vegkant- inn og rígheld mér i klakkinn á hnakknefinu, en skepnan brölt- ir rymjandi á fætur, einstak- lega geðvonskuleg skepna. — Ertu Breti? spyr úlfalda- rekinn sem teymir undir mér. — Nei, ég er íslendingur, segi ég. Þá verður hann harla glaður: — Guð blessi þig. Þá ertu frá Ameríku. Ég neita, en hann vill ekki hlusta á neina landafræði og byrjar formálalaust að þrefa um hvað ég ætli að gefa hon- um þegar kemur að pýramíd- anum. Nú hef ég misst sjónar á vini mínum trúboðanum sem er kyrrlátari og viturlegri maður en allir túristar samanlagðir á þessum slóðum, en sem ég stend við rætur þessa volduga fjalls sem gert er af manna höndum veit ég þá ekki fyrren við hlið mína stendur kona, af- skaplega feit og brosir niðrá bringu og uppí hársrætur. — Góðan dag, sör. — Góðan dag, maddam. — Frá hvaða landi? — íslandi. — Frá Ameriku. -— Nei, frá íslandi. — Ætlarðu að fara uppi konungsherbergið ? — Já, ef ég má, og drottning- arherbergið líka. — Það er lokað vegna við- gerða. En konungsherbergið er opið. — Ert þú leiðsögumaður hér? — Nei. Hún hikar og fer útí aðra sálma. Þetta er skrýtinn kvenmað- ur. Ég sé á stundinni að hún er ekki arabi. Það er einsog hún lesi hugsanir mínar. — Ég ... ég er kopti, kristin, þú skilur. Ert þú ekki kristinn? Við ræðumst við dálitla stund, og ég furða mig á hve margt hún hefur að segja um pýramídann. Mér dettur strax í hug að hún sé njósnari fyrir stjórnina. Sagt er að þótt Eg- yptar séu allra þjóða vingjarn- legastir og liðlegastir við ferða- menn vilji þeir vita hvað fram fari í þeirra hópi... Ýmsar kenningar eru um hvernig pýramídinn mikli var reistur ásamt hinum tveimur stóru pýramídunum i Giza, og það hef ég fyrir satt að með öllum tólum og tækni nútím- ans væri gerð hans allt annað en auðvelt verk. Mestallt efnið var flutt óraveg, mörg hundr- Stemningsmynd frá Egyptalandi: Bátar sigla við strönd dauðans, meöan sólin hnígur eldrauð til viðar. uð mílur, ofan frá Aswan i Efra-Egyptalandi, en kalk- steinninn sem notaður var til að klæða hann utan úr námum í hæðunum hinumegin við Níl. Sum björgin ofanfrá Aswan eru tugir tonna á þyngd. Almennt eru pýramídar tald- ir grafhýsi, og pýramídinn mikli á að vera gröf Cheops faraó sem uppi var fyrir nær- fellt 6000 árum og talinn til fjórðu konungsættar, aðrir segja hann þó mun seinna í timanum. En þegar hann var opnaður á seinustu öld fannst þar engin múmía, konungsher- bergið var autt, ekkert inni nema skörðótt kista úr dökku graníti, loklaus og tóm. — Hvernig fóru þeir að því að byggja pýramidann? •— Getur ekki verið að þeir hafi þekkt einhverja tækni sem þið þekkið ekki í Ameríku? segir konan. — Ertu að meina að þeir hafi kannski ráðið við þyngdaraflið og farið með þessi björg einsog fis? Annars er ég ekki frá Am- eríku, frú. — Ég kann ekkert í eðlis- fræði, segir konan. — Hvaða tækni heldurðu að þeir hafi kunnað? — Ég veit ekkert um þetta, en farðu uppi konungsherberg- ið. Ég sé þig á eftir. Ég klöngrast upp stórgrýtið og skýt mér framhjá bullsveitt- um ítala sem er að þurrka sér í framan i þröngum dyrunum. Sumir fá yfir höfuðið og snúa við. Fyrst þarf að ganga nokkurn spöl um göng sem rofin höfðu verið á hlið pýramidans. Síðan tekur við þröngur gangur sem liggur skáhallt uppávið. Þaðan liggur annar gangur skáhallt niður í lítinn klefa í berginu undir pýramídanum. Hann er lokaður fyrir ferðamönnum. Ég feta mig varlega uppeftir ganginum, og svo er allt i einu sem hækki til loftsins. Ég sé litið sem ekkert, en leiðsögu- maður sem þarna er með beinir kyndli sínum upp, og nú sé ég að við erum þarsem hið svo- kallaða stóra gallarí byrjar. Sá gangur er víðari og geysihátt til lofts. Ég veitti því athygli að meðfram tröppunum eru flatir eggsléttir steinkantar, að því er mér virtist, slitnir af einhvers- konar nuddi. Frá þeim stað sem stóra gallariið byrjar liggur annar gangur þvert inní miðbik pýramidans til drottningarher- bergisins sem er lokað. En stóra gallariið liggur uppí forsal konungsherbergisins. Þar uppi var eyðilegt um að litast, allt konunglega hljótt og tómt, einsog uppá fjöllum. Eng- an stað hef ég komið á sem er ólíkari grafhýsi. Hér ríkir hátignarleg ró. Mér líður vel. Nú sé ég leiðsögumanninn, áður hafði ég bara tekið eftir ljósinu hans, háan tágrannan araba með gráan skegghýjung á hökunni. Röddin er hás en hljómmikil og ótrúlega áhrifa- mikil. Það er sem hann hvísli af djúpri tilfinningu. — Þetta er kista Cheops faraó. Hér var ekkert inni þeg- ar pýramidinn var opnaður. — Er þetta ekki fullstutt kista fyrir virðulegan konung- mann? spyr ég. Hann lítur á mig: augun hvöss, en ekki óvingjarnleg: — Það var hér ekkert þegar pýramidinn var opnaður. Og þetta er kista konungs. Hann lyftir kyndlinum: — Sjáiði, herrar mínir, þetta herbergi er eitt af dásemdum jarðarinnar, unnið af snilld. Menn grunar að björgin séu geirnegld saman inní veggnum, og eitt þeirra, þetta hérna, er talið nítján tonn að þyngd. — Ertu með hníf ? spyr hann og snýr sér að mér. Ég rétti honum hníf með litlu, hvössu blaði. — Reyndu sjálfur að draga hnifsblaðið eftir samskeytun- um og þú finnur hvergi smugu. — Sjáiði, herrar mínir, held- ur hann áfram. Veggirnir eru sléttir einsog hefluð fjöl. Pýramídarnir eru alls níu í Giza, þrír stórir, en sex litlir. Framundan þeim sem er í mið- ið er sfinxinn, mannshöfuð á ljónsbúk, um aldaraðir ímynd hins leyndardómsfulla í hugum manna. Hann er allur einn klettur, og hefur orðið að þola marga raun. Hann stóð einn uppúr meðan allar musteris- rústirnar í kring voru huldar foksandi margra alda, enda veðri og vindum sorfin. Nap- oleon mikli skaut af honum nefið. Feita konan kom til mín aft- ur þegar ég var að virða fyrir mér sfinxinn. — Veistu hversvegna Nap- oleon hætti að skjóta? — Nei, kannski hefur hann átt lítið af púðri? — O-nei, vinur. Bergið er rauðleitt í sárið þegar það er nýbrotið og hermennirnir héldu að það blæddi ! Hún brosir, dökk augun verða ákaflega heit. — Til hvers var þessi stein- 34
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.