Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1975, Qupperneq 29

Samvinnan - 01.12.1975, Qupperneq 29
Í4.jfe tMlZ Mlm iSW ’tvrmr* 9» +***"*»*•» »*“ ;i - ■ «?«iv - ■,* v:. '^rWW^my 'ÆM mm, • y' -i!M í 1 icr, >; ■r. / rMti .^r,':;'-r--;M~;-'cA;>,'s;ri7^:i ! ■ l:;-.!" J\. ;:L- !:;.L’'r !';/ !.!J; 7-h! 7-'" 'MÍnmBM •«vj Sfinxinn: Napoleon skaut af hon- um nefið, en hermenn hans héldu að það blæddi úr sárinu, af því að nýbrotið bergið varð rautt. mynd, spyr ég bara til að vita hvað hún segi. — Þú sérð þarna hellulagða braut sem liggur að öðrum stóra pýramidanum. Álitið er að þá hafi þarna verið yfir- byggður vegur eða gangur úr múmiugerðinni hérna við hlið- ina. — Ég sé það, svara ég, en gat þetta ekki eins verið mað- ur með ljónshaus? Hún kippist við og horfir á mig, en fer svo að tala um eitt- hvað annað. Svo billega vil ég þó ekki láta hana sleppa. — Frú, segi ég. í Evrópu hafa gengið miklar sagnir um myst- eríur Egyptalands. Hún ætlar að grípa framí fyrir mér. — Afsakaðu frú, má ég halda áfram? Mér er sagt að síðustu mysteriunum hafi verið lokað um 520 e. K., og næstu aldirnar þar á undan hafi sú dularfulla starfsemi sem því nafni er nefnd stöðugt verið að dragast saman og þeim stöðum að fækka þarsem þeim var haldið uppi. Sum salarkynni sem við mysteríur voru notuð eru talin hafa verið neðanjarðar að nokkru eða öllu leyti, og þeim hafi verið lokað rammbyggi- lega þegar hætt var. Konan horfir á mig, ég tek eftir að hún er miklu likari andlitum fornra mynda en ar- öbunum sem öllu ráða nú. Hún var líka kopti. Og einhvern áhuga hefur hún á þessu efni eða er hún kannski bara hæ- verskur áheyrandi? — Prestarnir eru sagðir hafa kunnað að láta stóreflisbjörg renna á sliskjum fyrir dyrnar innanfrá, og utanfrá var eftir það ekkert að sjá nema heilan vegg, held ég áfram. — Ætli einhverjir hafi þá ekki kosið að verða eftir inni? segir hún og lítur beint framaní mig. Þú minntist á Ijónmann- inn — hann var víst ekki sama og sfinxinn. — Tákna ekki báðir þann sem vigir? svara ég. — Jú, en þó fremur ljónmað- urinn. Annars veit ég ekkert um hvað gert var hér til forna í þessu efni. Það veit enginn fyrir víst. Það er sennilega misskilningur að Evrópumenn hafi ráðið allt táknmál eg- ypskra trúarbragða, (hún not- aði ekki orðið „religion“ held- ur hikaði dálitla stund, og það var ég sem skaut því orði inní fyrir hana). Það hefur ýmsum dottið í hug að sfinxinn leyndi innganginum að miklu neðan- jarðar musteri. Hún lítur aftur beint fram- aní mig: — Þú ert mystíker. Nú er mitt hlutskipti að hika: — Ja, ég grúska í svonalög- uðu. Hún horfir úti bláinn og heldur áfram: — Það er sagt að kjarni þess sem fram fór leynilega í menntastofnunum Forn-Egypta hafi verið að kenna mönnum þá list að deyja. Það er í sjálfu sér áhugaverð stúdia, því öll deyjum við einhverntíma. — Já, svara ég. Fannst þeim ekki að dauðinn væri hámark lífsins? — Það er fræðslan um Kha. Þekkirðu hana? — Lítið. — Að geta verið til þótt mað- ur deyi. Að fara lifandi í gegn- um dauðann.... Rétt i þessum svifum kemur trúboðinn vinur minn og ind- verski presturinn fylgir honum einsog tryggur hundur. — Kannski Mr. Hjálmarsson vilji borða með okkur í veit- ingahúsinu hérna skammt frá? Konan feitlagna er allt í einu á bak og burt. Ég sé henni að- eins bregða fyrir inní hópi ít- ölsku túristanna, og nú veiti ég þvi athygli að hún er á græn- um kjól. Ég slæst í för með guðsmönn- unum. — Þú ert hugsi, Mr. Hjálm- arsson, segir trúboðinn. En þú átt áreiðanlega eftir að koma hér aftur. Þú ert blaðamaður. En þetta er voldugur staður, Mr. Hjálmarsson. Já, voldugur staður, sannar- lega voldugur staður! Ritað upp eftir ferða- punktum frá 1964. Reykjavík, 9.11.1975. Q 35
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.