Samvinnan - 01.12.1975, Page 62
Texti þessa bæklings er að stofni til
úr sænskum flokki þjónusturita, sem
KF - sænska samvinnusambandið -
gefur út undir heitinu
Tjána pá att veta.
Hannes Jóhannsson útvarpsvirki
þýddi og endursagði
Fylgirit Samvinnunnar
Desember 1975
Veiztu þetta um
heimilishljómtæki?
Úrvalið af hljómflutningstækjum er
mikið. Verðmismunur er einnig mikill, og
liggur hann bæði í tæknilegum gæðum
og útliti. Valið reynist oft erfitt og ekki
er gott að henda reiður á þeim tæknilegu
upplýsingum, sem framleiðendur veita,
nema þá helzt fyrir fagmann. Það er ekki
hægt að segja hvað er bezt og hvað er
verst af tækjum þessum, t. d. getum við
valið milli tveggja plötuspilara, þar sem
annar hefur betri eiginleika á einu sviði
en hinn, og öfugt. Þá verða menn sjálfir
að meta þessa eiginleika og velja það sem
þeir halda að henti þeim bezt. Til þess að
auðvelda nokkuð valið getum við reynt
að skipta hljómflutningstækjunum gróf-
lega í þrjá flokka, með tilliti til þeirra
gæða, sem vænta má.
• Fyrir tal og lítil hljómgæði Fl. 1
• Fyrir meðalhljómgæði Fl. 2
• Fyrir góðan hljómflutning Fl. 3
Ef menn vita hin tæknilegu skil þess-
ara þriggja flokka er hægt að færa sér í
nyt upplýsingarnar og sjá hvaða flokk
viðkomandi tæki tilheyrir. Þetta auðveld-
ar síðan valið innan hvers hóps.