Samvinnan - 01.12.1975, Blaðsíða 64
Plötuspilarar og grammofónar
Grammofónn er tæki sem samanstend-
ur af plötuspilara, magnara og hátalara
(hátölurum). Plötuspilari er hins vegar
tæki án magnara og hátalara. Plötuspil-
ari verður að tengjast við magnara, sem
siðan tengist við hátalara og er þá einn
hlekkur í Hi-Fi keðjunni. Margir plötu-
spilarar og grammofónar eru sjálfvirkir
þ. e. a. s. að aðeins þarf að styðja á takka
og tónarmurinn fer sjálfur inn á plötuna,
og þegar hún er búin slekkur hann á sér
sjálfur. Á suma grammofóna og plötu-
spilara er meira að segja hægt að hlaða
heilum bunka af plötum og spila þeir þá
sjálfvirkt allar plöturnar. Þetta verður að
teljast slæm meðferð á plötunum. Þessir
plötuspilarar, sem margir eru litlir og
auðveldir í notkun, eru mjög við hæfi
barna, vegna þess að minni hætta er á
að nál og pickup skemmist þegar sjálf-
virkni stýrir arminum heldur en óstyrk
eða harkaleg hönd. Þvi ódýrari sem plötu-
spilarar, pickup og tónarmar eru, þvi við-
kvæmari eru þeir fyrir hnjaski. Bezt er
að plötuspilarinn standi á stöðugum og
traustum stað, þar sem titrings frá há-
tölurum eða dansi verður minnst vart.
Æskilegt er að á grammofóni sé fyrir
utan styrkstilli, tónstillir — eitt eða tvö
stig — til þess að stilla tónblæ miðað við
styrk.
Þungur plötudiskur
Til þess að ná miklum tóngæðum, þarf
plötudiskurinn að snúast með jöfnum og
réttum hraða. Til þess að ná þessu eru
góðir plötudiskar oft hafðir nokkuð þung-
ir 2—4 kg., þeir þurfa þá líka að hafa
kraftmikla mótora. Því fleiri póla sem
mótorinn hefur, því auðveldara er að ná
jafnari gangi, sem þýðir að plötudiskur-
inn má vera léttari og mótorinn veikari.
Síðasta nýjung í þessum efnum er sú, að
plötudiskurinn er samfastur mótoranker-
inu og mótorinn hefur mjög marga póla
og er hæggengur 33 y3 s./m.
Þessir plötuspilarar eru mjög góðir en
dýrir. Æskilegt er að plötuspilarar hafi
tvo hraða þ. e. 331/3 og 45 s/m. Á sum-
um plötuspilurum eru líka 78 s/m. og
16% s/m hraðar. 78 s/m fyrir gömlu 10“
plöturnar, þær þurfa líka aðra nál í pick-
upið (eða henni er snúið í sumum til-
fellum). 16% s/m hraði er sérstaklega
ætlaður fyrir tungumálanám. Til eru raf-
hlöðudrifnir plötuspilarar, sem venjulega
eru frekar ódýrir, litlir og léttir. Tóngæð-
in eru líka að sama skapi lítil og oft eng-
in. Þetta stafar aðallega af þvi að straum-
notkun verður að vera lítil og þ. a. 1. mjög
veikur mótor, sem nær ekki að halda
jöfnum gangi.
Gangtruflanir (wow and flutter, rumble)
Hinum fullkomna, jafna og hreina
gangi er erfitt að ná. Eru þar verstu
óvinirnir þrír, wow, flutter og rumble.
Þetta eru ensk orð og reynt skal að út-
skýra þau nokkuð hér. Ef við hugsum
okkur að við höfum á grammófónplötu
upptekinn stöðugan tón og styddum ein-
um fingri laust á plötuna einu sinni á
sek., þá myndi tónninn lækka og hækka í
takt og tónninn hljóma falskt. Þetta kall-
ast wow og gæti átt sér stað vegna tregðu
í gangverki. Ef við hugsum okkur að við
gætum stutt fingrinum nokkrum tugum
sinnum á sek. á plötuna, þá myndi tónn-
inn hljóma skjálfandi (flökta) en ekki
falskt, það væri flutter. Sem sagt: Hægar
hraðabreytingar = wow; hraðar hraða-
breytingar = flutter. Flutter gæti átt sér
stað vegna slitinna eða ónákvæmra milli-
hjóla. Rumble kallast þungur niður, sem
stafar frá plötuspilaramótorum, sem eru
þá ekki nógu vel mekaniskt einangraðir
frá plötudiskunum. Wow og flutter er
skráð í prósentum, rumble er skráð í nei-
4