Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1922, Blaðsíða 31
25
Timarit ísleiiskra samvinnufélaga.
nokkur grein fyrir síðari liðnum, af því að þar er um
nýja aðferð að ræða í kenslu hér á landi.
Islendingar hafa átt tvö glæsileg tímabil í bókmentum.
Fornöldina, þegar eddurnar, íslendingasögurnar Ileims-
kringla og Sturlunga eru ritaðar, og nýju bókmentirnar,
sem í raun réttri endurvakna með Hallgrími Péturssyni
og síðar með Bjnrna og Jóiiasi Hallgrímssyni. Skilningur
og þekking á innlendum bókmentum hefir verndað ís-
lenskuna á liðnum öldum, frá glötun og þroskað fegurðar-
smekk alþýðu á Islandi. Vegna hinna innlendu bókmenta
á þjóðin nú hægra með að vinna ný lönd í heimi listanna.
En á síðari tímum hefir þekkingu landsmanna á þeirra
eigin bókmentum hnignað. Skólarnir hafa ekki getað
hamlað upp á móti þessari hnignuu. Allur þorri Islend-
inga les lítið bæði hin fornu og nýju gullaldarrit.
I annari deild Samvinnuskólans verður næsta haust
byrjað á nýrri kensluaðferð til að bæta úr þessu. Þar
verður kent um íslenskar bókmentir í tvennu lagi og af
tveim mönnum. Pyrst verða haldnir nokkrir yfirlitsfyrir-
lestrar um hinar fornu og nýju bókmentir. Gert hið sama
fyrir nemendur, eins og þegar kunnugur maður sýnir
ferðamanni aðaleinkenni á óþektu landi fram undaii, ofan
af háu fjalli. Síðan taka nemendur að lesa fornsögurnar,
Heimskringiu og Sturlungu, og úrvalsrit og kvæði nýju
bókmentanna, eins og lestrarfúsir menn lesa hrífandi skáld-
sögu. Einn les í dag þetta, annar hitt. En á vetrinum er
farið yfir alt hið helsta í íslenskum bókmentum. Síðan
hafa kennararnir samtalstíma og samlestur um efnið. Til-
gangurinn sá, að auka með þessari kenslu vald yfir mál-
inu, en þó einkum smekk fyrir fegurð og snild í listum.
Kensla i almennri listasögu er áframhald í sömu átt.
Tilraun hefir verið gerð i smáum stíl, með þessa
kenslu í vetur, og gefist vel. Verði reyndin hin sama
framvegis, getur varla farið hjá því, að þessi kensluað-
ferð verði tekin upp í héraðsskólunum, og ef til vill fieiri
skólum hér á landi.