Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.08.1922, Blaðsíða 28
74 Tímarit íslenskra samviimufélaga.
Um þessar mundir fór Louis Zöllner að versla við
ísland og .Tón Vidalín varð verslunarfélagi lians. Buðu
þeir bændum, sem stofnuðu kaupfélög að verða verslunar-
erindrekar þeirra erlendis.
Alt varð þetta til að íta undir stofnun kaupfélaga.
Haustið 1888 deyr hinn óþreytandi og ógleymanlegi
leiðtogi bænda hér um slóðir, Erlendur í Tungunesi, föður-
bróðir Þorleifs Jónssonar og afl Sigurðar skólameistara
GTuðmundssonar, sem var forseti Vörupöntunarfélagsins frá
byrjun og lífið og sálin í þvi.
Þótti þá ýmsum Skagfirðingum tími til að stofna yfir-
gripsmeira kaupfélag, svo að merkasti bóndinn í Skaga-
firði þá, Olafur Briem alþm., sem verið hafði í stjórn
Vörupöntunarfélagsins, boðaði fulltrúa þess og ýmsa fleiri
á fund á Sauðárkróki 23. apríl 1889 og var Vörupöntunar-
félaginu slitið, en í þess stað stofnað nýtt félag: Kaupfé-
lag Skagfirðinga [K. S.] er skyldi hafa aðalviðskiftin við
Zöllner og Vídalin.
Húnvetningar, sem verið höfðu í hinu fyrra félagi,
voru nokkuð tvíbentir i fyrstu um, hvernig þeir skyldu
snúast við þessu nýja félagi. Þeim höfðu líkað ágætlega
viðskiftin við Coghill og vildu ógjarnan hætta þeim. Niður-
staðan varð því sú, að aðeins næsta sveitin við Skaga-
fjörð, Bólstaðarhlíðarhreppur, gekk í K. S. við stofnun
þess undir deildarstjórn Guðmundar Gíslasonar á Bolla-
stöðum, sem var forvígismaður sveitar sinnar um flest á
þeim árum, enda vitur maður og góður drengur.
Svínvetningar og margir einstakir menn úr sveitun-
um í kring, skiftu aftur á móti áfram við Coghill 2—3
næstu árin og mun Brynjólfur Gíslason í Litladal mest
hafa annast viðskiftin af þeirra hálfu. Reyndar var það
Búnaðarfélag Svínavatnshrepps sem altaf stóð fyrir við-
skiftunum við Coghill, en þáverandi forseti þess Jón Guð-
mundsson á Guðlaugsstöðum mun hafa kosið að fá Bryn-
jólf, sem var ágætlega gefinn og nokkuð vanur verslun,