Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.08.1922, Blaðsíða 24
70 Tímarit íslenskra samvinnufélaga.
— hófust í raun og' veru með föstu skipulagi 1884. Þau
samtök voru nefnd:
V örupöntunarfélag
Húnvetninga og Skagfirðinga.
Á fundi er lialdinn var á Sauðarkrók 15. ágúst, af
nokkrum mönnum úr Húnavatns og Skagafjarðarsýslum,
var ákveðið að koma upp húsi á Sauðarkróki til þess að
geyma í vörur er pantaðar yrðu úr þessum sýslufélögum.
Fé til þess skyldi safna með 25 kr. lilutum. Pétur Kristó-
fersson á Stóruborg tók að sér að útvega húsið á næsta
sumri í júní eða júií. — Hrossamarkaðir skyldu settir í
réttri röð frá Hrútafirði norður á Akureyri á samsvarandi
tíma, sem Coghill léti auglýsa með nægum fyrirvara. P.
Kr. hét einnig að panta vörur gegn fé frá Coghill eftir-
leiðis, eftir skýrslum frá þessum sýslum; hann lofaði einn-
ig að gera það sem hann gæti til þess að húsið yrði flutt
hingað upp kostnaðarlaust. — Fundarmenn lofuðu að leita
samskota eða hluta, liver í sínum hreppi.
A fundi að Fjalli 1. sept. s. á., var Erlendur Pálma-
son í Tungunesi kosinn forseti; var hann upp frá því
endurkosinn formaður félagsins til dauðadags — 28. okt.
1888. Á þeim i'undi var ákveðið að vörugeymsluhúsið
skyldi vera 12X18 álnir, sperrureist, með grunnmúr og
lofti. Ennfremur var ákveðið — eftir uppástungu forseta
— að semja lög fyrir félagið. — Var það gert að Bóls-
staðahlíð 26. nóv. s. á. af þeim Erlendi Pálmasyni, Olafi
Briem og séra Stetáni M. Jónssyni, sem til þess liöfðu ver-
ið kosnir. Frumvarp þeirra var samþykt óbreytt að rnestu
á almennum fulltrúafundi á Sauðarkróki 22. júní 1885.
Grundvallarreglurnar sem lögin eru bygð á, eru þessar:
Fyrirkomulagi félagsins er þannig liagað, að það skift-
ist í deildir eftir lireppum. I hverri deild sé kosinn 1 eða
2 íulltrúar, er sernji árlega skýrslur um vörur þær er
menn vilja panta og standa í ábyrgð fyrir borgun þeirra.
Aðalstjórn félagsins er falin 3 manna nefnd, sem árlega
sé kosin á almennum fulltrúafundi. Ætlunarverk þeirrar