Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.08.1922, Blaðsíða 48
94 Tímarit íslenskra samvinnufélaga
koma af stað hreyfingu til stofnunar sláturfélagsskapar
hér í sýslunni, sem síðar verður að vikið.
I ársbyrjun 1907 urðu formannaskifti. Brynjólfur
Glslason, sem verið hafði formaður félagsins í 7 ár, flutt-
ist búferlum suður í Viðey. Hafði honum heppnast vel
stjórn félagsins, jafnan haldið því skuldlausu við umboðs-
mann erlendis og skuldir höfðu engar safnast hjá félags-
mönnum.
Þegar Brynjólfur lét af formannsstörfum fyrir félagið
tók við þeim störfum Jónatan J. Líndal á Holtastöðum.
Það ár var lögum l'élagsins breytt, og við hlið pöntunar-
deildarinnar var stofnuð söludeild, en í mjög smáum stíl
var það í fyrstu. Sölustjóri var ráðinn Halldór Halldórs-
son, og var kaup hans 5°/0 af seldurn vörum. Ekkert var
lánað við söludeildina. Alls seldi söludeildin þetta ár vörur
fyrir kr. 7542.51 að innkaupsverði og viðbættum útlögð-
um kostnaði. Að svona lítið seldist af vörum söludeildar-
innar stafaði einkum af því, að rnegnið af vörunum kom
ekki fyrri en mjög seint á árinu. Af þessurn seldu vörum
varð hagnaður 10°/0, sem félagsmönnum var útborgað að
hálfu leyti, en hinn helmingur ágóðans var færður í
stofnsjóð, sem eign hvers einstaks félagsmanns. En stofn-
sjóður var samkvæmt áður umgetnum breytingum á lög-
um félagsins fyrst myndaður þetta ár, og var hann í árs-
lokin kr. 987.10, og var hann þannig myndaður, að auk
áðurgetins hálfs ágóða at' söludeildarverslun lögðu félags-
menn í hann 2°/0 at' pantaðri vöru, og auk þess lögðu
nokkrir menn í hann 6—10 krónur hver og örfáir menn
nokkuð meira, og varð það, sem félagsmenn á þennan
hátt lögðu í stofnsjóð þetta ár kr. 536.00, og hafa félags-
menn jafnan síðan stofnsjóður var myndaður, fengið ár-
lega 5"/0 vexti af inneign sinni, sem að mestu hefir verið
bætt við höfuðstólinn.
Þetta ár hætti Vindhælishreppsdeild viðskiftum við
félagið, svo að það voru aðeins 4 hreppar, sem pöntuðu,
enda varð sú pöntun aðeins um 19.000 kr. að innkaups-