Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.08.1922, Blaðsíða 39
Tímarit íslenskra samvinnufélaga. 85
var kr. 51,79. Sauðir: Meðalverð kr. 11.46. Léttasta kind
105 p. d. kr. 9.61. Þyngst kind 152 p. d. kr. 16.66.
Þrátt fyrir það þó verðið væri ekki hærra en þetta,
þá lifnaði þó tölvert yfir félaginu 3ja árið. Þá bættist
líka við ein deild Þorkelshólshreppsdeild, og hafði hún
mikil viðskifti það ár. Alls fékk félagið þá útlendar vör-
ur fyrir rúmlega 16000 krónur, og í peningum fengu fé-
lagsmenn aðrar 16000 krónur.
Af íslenskum vörum lét félagið þetta ár: 101 hross.
Meðalverð- þeirra varð kr. 55.48, og var það hærra en
árið áður. 2272 sauðkindur. Meðalverð kr. 12.10. Léttust
kind 103 p. d. kr 9.72. Þyngst kind 158 p. d. kr. 19.32.
Á aðalfundi félagsins 1898 liafði formaður sett á dag-
skrá fundarins húsbyggingarmálið, en þegar á fundinn
kom, álitu flestir fundarmenn það fjarstæðu að ráðast í
slíkt stórræði eins og verslunarhorfur væru þá, svo að
formaður strikaði það út af dagskránni, án þess að það
væri formlega borið upp á fundimn, því hann mun ó-
gjarnan hafa viljað láta fella það, en sem fyrirsjáanlegt
var að mundi verða gjört, ef það væri borið undir at-
kvæði á þeim fundi.
Á deildarfundi í Svínavatnshreppi, eftir að kunn urðu
afdrif þessa máls á aðalfundinum, kom til tals hvort ekki
væri gjörlegt fyrir þá deild eina að ráðast í húsbyggingu
á Blönduósi, til þess að geta látið inn vörur sínar, þar
sem margir pöntuðu svo mikið, að þeir gátu ekki flutt það
í einni ferð. Bauðst þá Jón Gfuðmundsson á Guðlaugsstöð-
um, til þess að lána deildinni veð fyrir peningaláni, ef
hún vildi ráðast í að koma upp húsi í þessu augnamiði,
og var því tekið þakksamlega, og ákveðið að byggja
húsið. Var svo Jóni á Guðlaugsstöðum og formanni fé-
lagsins Þorleifi Jónssyni falið að sjá um að hús þetta
kæmist upp. Keyptu þeir svo timbur og annað byggingar-
efni norður á Sauðárkróki og víðar, og létu svo byggja
12+10 álna timburhús, og var byrjað á því 9. maí, og
því lokið 15. júní 1898. Kom hús þetta í góðar þarflr