Andvari - 01.01.1922, Page 64
60
Um ísaldarmenjar.
[Andvari.
skifta sjávarraálinu eigi jafngreinilega í llokka eins
og á Vestfjörðum, þó virðist útkoman verða nokkurn-
veginn hin sama. Efstu sjávarmál eru í 62m hæð og
ber einkanlega á þeim úti á útnesjum svo sem Vatnsnesi,
Skaga, Tjörnesi og við Loðmundarfjörð. Pá eru sjávar-
mál í 31—47m hæð, og svarar það lil sjávarmálsins
í Akureyrarbrekkunni; en eins og við er að búast,
eru hæðarmælingar á þessu sjávarmáli nokkuð breyti-
legar, því að sjórinn liefir verið að smáhækka utn
þær mundir, er það myndaðist, og fer það eftir
staðháltum og seinni líðar breytingu, hvað sjávar-
málið reynist hátt við mælingu.
Ennfremur hefir Þ. Thoroddsen mælt lægri sjávar-
mál og reyndist liæð þeirra 16—20m, og mun þetta
svara til sjávarmálsins í Skjaldarvík.
Á Suðvesturlandi við Faxaflóa og kringum Snæ-
fellsnes talar Þ. Thoroddsen að eins um eitt sjávar-
mál í 31—41m hæð. Svo er að sjá sem liann telji
þetta sjávarmái í 37m hæð í Reykjavík, en eftir
mælingum herforingjaráðsins danska er það í 40—
45m hæð. Sjávarmál þetta er mjög glöggt, en við
Elliðaárnar sjer móta einnig fyrir öðru í 20m hæð
og ef til vill hinu þriðja í 70m hæð, en þó er það
mjög vafasamt, hvort það er gamalt sjávarmál.
Fornum sjávarmálum við Suðurlandsundirlendi
sleppi jeg í þessum samanburði. Þau virðast vera
nokkru hærri eflir mælingunum, en búast má við,
að þar hafi orðið meira landrask en annarstaðar
og mælingarnar þar heldur eigi jafnnákvæmar og
annarstaðar, vegna þess að sjávarmálin liggja all-
fjarri sjó.
f*á hefir Guðmundur G. Bárðarson mælt sjávarmál
forn við Húnaílóa að veslan (Mærker eftir Klima