Spegillinn - 01.12.1956, Page 5
12. TÖLUBLAÐ DESEMBER 1956 31. ÁRGANGUR
FRAMLEIÐSLURÁÐ
landbúnaðarins tilkynnti fyrir nokkru, að
verð á sviðum niætti liækka lítið eitt og
þótti mörgúin sviðaætum súrt í broti og
höfðu orð á því, að lítið gerðist nú gagn-
ið af verðbindingu stjórnarinnar. Vér höf-
um frétt hjá ráðinu, að þetta sé vegna
þess, að nú eru sviðin fryst, en við það
verða þau verri til átu og liljóta þá að
liækka í verði, sainkvæmt alþekktum ís-
lenzkum verzlunarvenjum. Hins vegar er
fordæmið dálítið hættulegt, svo að nú þarf
enginn að verða hissa þótt verð hækki
hráðlega á fleiri sviðum.
FÆREYINGABÚÐ
á nú að fara að rísa í höfuðstaðnum, á
horni Frakkastígs og Skúlagötu, á grunni
hinna alþekktu sviðaskúra, sem um langan
aldur hafa sett svip á bæinn og munu nú
setja svip sinn á úthverfin, utan þeir, sem
þegar er lniið að brjóta í eldinn. Eigi
Iiefur oss tekizt að fregna livort þarna eigi
að selja Færeyinga eða selja Færeyingum
vörúr, sé það síðarnefnda í bígerð, finn-
um vér ástæðu til að votta Ellingsen sam-
úð vora.
1 DÖLUM VESTUR
hafa menn sem kunnugt er, orðið livað
allra mest fyrir barðinti á mæðiveikinni,
og mátt horfa upp á hvern niðurskurð-
inn á fætur öðrum. Hefur af þessu tilefni
komið fram þingsályktunartillaga um
aukna atvinnu í sýslunni, og er þar einna
helzt hallazt að leiriðnaði, en þarna eru
leirnámur miklar, sem þegar hafa verið
gerðir úr ýmsir gripir, og þeir góðir, að
minnsta kosti hvað efnið snertir. Er trú-
legt, að tillaga þessi nái fram að ganga
og er þá næst fyrir að finna eitthvert
Dalaskáld til að standa fyrir iðnaðinum.
SIR ANTHONY EDEN
lagðist í ofþreytu í sl. mánuði og tók þá
einn andstæðinga hans í þinginu orðið
og lauk máli sínu með því að biðja vara-
mann hans skila kveðju til forsætisráð-
herrans, með ósk um skjótau bata. Þegar
farið var að skamma þenna háttvirta
þingmann fyrir þessa bölvaða liræsni, svar-
aði hann bara, að auðvitað vildi hann fá
Sir Anthony sem fyrst á fætur aftur, til
þess að geta haldið áfram að skamma
liann.
v STJÓRN CEYLONS
liefur nú, að sögn áfengisvarnarnefndar —
sem virðist vera útsmogin hjá öllum rík-
isstjórnuin um allan lieim — skipað ráð-
herrum sínum að steinhætta að veita
pálmatoddý og aðra görótta drykki í veizl-
um þeim, er þeir efna til. Tókst þetta
með þeim ágætum, að síðan mætir enginn
í veizlum þessum. Sumir telja |)ó að þetta
sé hara gert til þess að taka mesta stuðið
af aunarri ráðstöfun, sem meiru varðar,
en hún er sú, að jafnframt hefur verið
híinnað að liafa nokkrar vínveitingar þar
sem þingmenn eru einhvers staðar nærri.
Virðast Jiingmenn vera liver öðrum líkir,
hvar í heimi sem er.
I ÞJÓÐLEIKHÚSINU
varð það slys á einni sýningu á Tehúsi
Ágústmánans, að vehiefnt tehús hrundi
til grunna, þar eð timburmenn hússins
höfðu vanmetið dramatiska þróttinn lijá
leikendum og notað spírur í grindina, þar
sem þeir hefðu betur notað júfertur. Þess
skal getið, að vér höfum þegar verið beðn-
ir velvirðingar á þessu, og er ekki nema
sjálfsagt að verða við þeirri beiðni, og það
því fremur sem slysið skeði rétt undir
leikslok, svo að ekkert te fór niður.
RlKISST J ÓRNIN
hefur orðið fyrir liinu og þessu aðkasti,
sitt stutta æviskeið, og þá auðvitað helzt
af hendi hinnar hörðu stjórnarandstöðu,
en í seinni tíð bregður svo við að fleiri
taka þátt í þessu, svo sem Áki, sem geng-
ur fyrir skjöldu fram og lieimtar, að
kommarnir fari þegar úr stjórninni og
hótar reiði sinni ella. Þjóðviljinn tekur
þetta illa upp að vonum og segir, að Áki
sé genginn í lið með ílialdinu og geti feng-
ið hjá því kjördæmi livenær sem hann
vilji. Já, kommar sælir, þið ættuð ekki
að sleppa ykkar mönnum til kratanna, þá
eru þeir orðuir svartasta íhald, áður en
þið getið litið við.
TÍMINN
er eitthvað argur lit í Bjarna Ben. fyrir
önugheit hans við andstæðingana, og færir
sem dæmi, að Bjarni liafi í ræðu líkt
Hallíbali við „rófuna á Ijótu dýri“. Oss
finnst ekki nema sjálfsagt, að bændablaðið
taki svari dýranna, og sérstaklega finnst
oss þetta drengilegt, þegar dýrið er þar
á ofan Ijótt.