Spegillinn - 01.12.1956, Síða 6
270
ÍDÆGURLAGAHÖFUNDAR
hafa, eins og margir aðrir, orðið snortnir
af frelsishreyfingum þeim, sem nú eru
uppi á álfunni og velt Freymóði úr valda-
stólnum, en það er sagt gert til þess, að
hann sé ekki framvegis bæði keppandi
og dómari, þegar samkeppni er liáð í fé-
laginu. Má því vænta margra dægurlaga
af hendi Freymóðs á næstunni og er vel
farið. Jafnframt hefur lieyrzt, að Her-
mann verði bráðum heiðursfélagi vegna
fyrirtaks afkasta í dægurlagagerð, þ. e.
bráðabirgðalaga.
1 HELLI EINUM
langt austur í Tékkóslóvakíu hefur ný-
skeð fundizt falsmyntaraverkstæði eitt,
sem eftir framleiðslunni að dæma, er frá
15. öld. Herma fornar ritningar, að ein-
mitt á þessum slóðum hafi á þeim tíma
verið tveir fátækir bændur, sem urðu
snögglega forríkir, og eru ættfræðingar nii
önnum kafnir að finna afkomendur þeirra,
svo að hægt sé að koma lögum yfir þá.
Því má bæta við, svona rétt til gamans,
að myntirnar, sem þarna fundust, voru
mjög frumstæðar og vesældarlegar —
einna líkastar núverandi íslenzkri krónu.
MOLOTOFF
sem undanfarið hefur látið lítið á sér bera,
meðan þeir Búlganín og Krúséff hafa
stundað vodkadrykkjuna með fulltrúum
annarra þjóða, er nú kominn upp á yfir-
borðið aftur og það sem yfirráðherra, en
sá skal sjá um, að liinir ráðherrarnir
svindli ekki á ráðherradómi sínum, held-
ur fylgi fram ákvörðunum æðsta ráðsins
og annarra öndvegismanna. Heyrzt liefur,
að stjórnin hér ætli að fara að koma þess-
ari skipun á, og langi Hanníbal ósköp til
að verða yfirráðherra.
1 NOREGI
hafa bændur komizt að þeirri niðurstöðu,
með hjálp búfræðinga sinna, að búmanns-
klukka dragi stórum úr nythæð kúa og
heimta nú klukku þá afnumda með öllu.
Þegar búmannsklukka var innleidd í Dan-
mörk fyrir 40 árum, voru bændur þar í
landi það hreinskilnari, að þeir sögðu eins
og satt var, að þeir yrðu að fara nógu
s
ni
mn
sneinma á fætur til að gefa kúnum, og væri
ekki við bætandi.
1 RITDÓMI
um nýja bók Vilhjálms Finsens í Tíman-
um fyrir nokkru segir, að höfundur liafi
með bók þessari „goldið tarfalögin“. Oss
finnst, að þegar lagabálkar eru nefndir op-
inberlega, eigi að geta númers þeirra og
ártals í löggjöf þjóðarinnar. Alltaf er þetta
gert í útvarpinu, þegar jafn gamalþekkt
fyrirbæri og skömmtunarseðlarnir er
auglýst, og væri ríkissjóði þó vafalaust
hollara að eiga fimmkallinn, sem orðið
kostar í þeirri lesningu.
1 BÚLGARlU
liandtók lögreglan fyrir nokkru menn, fyr-
ir að tala um ástandið í Ungverjalandi í
kaffiliúsi, en síðar var þeim sleppt, þó
eftir að hafa útstaðið harðar áminningar
fyrir þetta framferði sitt. Ekki hefði oss
í fljótu bragði dottið í hug, að Búlgaría
væri svona mikið menningarland. I öllum
menningarlöndum eru kaffihúsapólitíkus-
ar lands- og lýða plága, en þetta er í
fyrsta sinn sem vér liöfum lieyrt um
nokkra tilburði til að blaka við þeim.
í ÁSTRALÍU
skeði það um svipað leyti og Ólympíu-
leikarnir hófust þar, að rússneskur kven-
maður að nafni Nína týndist af skipi, sem
lá í höfninni í Melbourne. Var 6amstundis
safnað leitarliði og gekk fljótt, því að allir
héldu, að þarna væri Hattá-Nína týnd og
fýsti að sjá kvenmanninn. Loksins fannst
Nína (sem var bara skipsjómfrú) og var
berhausuð. Þóttust Ástralíumenn þá gabb-
aðir og fóru að skrifa vinnureikninga fvrir
þátttöku sína í leitinni.
FR AMLEIÐSLUS J ÓÐ
vantar 60 milljónir, lesum vér í blöðunum
og það með, að stjómin okkar sé nú alveg
í vasagati með að skaffa þetta fé. Hingað
til hefur oss alveg sézt yfir þennan sjóð
innan um alla hina, sem ríkið hefur stofn-
að, síðustu árin (og allir eiga það sam-
eiginlegt að vera skítblánkir), en nú sést,
að þetta hlýtur að vera nokkuð merkileg-
ur sjóður, úr því að hann vantar svona
mikið. Ætti að nota þá fáu aura, sem í
lionum kunna enn að vera, þrátt fyrir allt,
til þess að framleiða seðla sem uppliæðinni
svarar.
ALÞtDUBLAÐIÐ
er eitthvað kampakátt yfir því, að sigur-
hátíð, sem kommarnir í MÍR liöfðu boðað
til, 7. nóvember, og puntað með Laxnessi
og fleiri glæsinúmerum, hafi farizt fyrir.
Oss finnst blaðið ætti að geyma lilakk sitt,
þar sem það getur varla nein bréf fyrir
því liaft, að hátíðin hafi ekki farið fram
í kyrrþei.
BÍLAR GÖRINGS
voru. fyrir nokkru seldir á uppboði, en
eigi er getið um verð, enda trogin gömul,
þótt ef til vill liafi þau verið með skot-
gler í rúðum og fleiri öryggistæki. Meðal
bíla þessara var einn, sem einhver vitlaus
safnari keypti og reyndist við nánari at-
hugun vera módel 1950.
ÞJÓÐFÁNA SOVÉTTSINS
var stolið skömrnu fyrir byltingarliátíðina
7. nóvember og er látið illa yfir þessu af
öllum flokkum. Oss finnst nú frekar upp-
sláttur fyrir Sovéttið, ef fáninn gerir svo
mikla lukku, að menn stela honum heldur
en eiga hann ekki.
KRUSTSHOFF
hinn gerzki hélt í síðastliðnum mánuði svo
magnaðar ræður í vodkapartíum ráðstjórn-
arinnar, að sendiherrar vesturveldanna,
sem þarna voru staddir, höfðu ekki við
að ganga út. Reyndu þó félagar Krúsa
að þagga niður í honum ofsann, en fengu
eigi rönd reisl við honum og vodkunni.
Það síðarnefnda fengu áðurnefndir sendi-
herrar lieldur ekki, því að jafnskjótt sem
Krúsi hafði lokið máli sínu, flýttu þeir
sér inn aftur og fengu sér einn í viðbót.