Spegillinn - 01.12.1956, Side 22
286
^pecjilli
mn
Háskaleg prentvilla
Mér blöskrar hve mikinn usla
prentvillur geta gert og bví miður
tókst einni skaðlegri að laumast
inn í ritgerð mína um Hinn Gró-
andi Kraft í síðasta hefti Spegils-
ins og hafa þar hausavíxl á því,
sem sízt skyldi. Valtýr sagði ekki
og hefur víst aldrei dottið í hug
að segja, að Guðmundur væri gró-
andi kraftur, heldur var það Guð-
munda, enda er hún abstrakt og
verður umsögnin þá skiljanleg. Að
vísu er erfitt að neita því, að Guð-
mundur sé kraftur og hefur nú
verið listamaður í 40 ár, svosem
lesa mátti í Vísi og skapað mörg
listmenningarverðmæti og eru þau
máske bezt, sem hann hefur enn
ekki fengið pöntun uppá, því þegar
hann ætlaði að skreyta háskólalóð-
ina ætluðu ónáttúrupostularnir að
verða vitlausir og því var honum
ekki leyft það. Svona er ónáttúran
alltaf söm við sig og enn er lóð
þessi óskreytt fyrir bragðið. Svo
vil ég um leið nota tækifærið og
andmæla Þorsteini í Stefni (tíma-
riti um menningarmál) varðandi
mynd Guðmundar nr. 7, að hún
sé alls ótæk fyrir ofan miðju. Mér
finnst jafn gróandi kraftur fyrir
ofan miðju sem neðan, þótt með
öðrum hætti sé og hvaða listræn
rök hníga að því, að hornin skuli
ganga alla leið út í jaðra? „Komp-
ositionin situr á myndfletinum"
segir Valtýr og undanskilur ekki
nr. 7 og ég tek undir það, svo ekki
þarf framar vitnanna við. Þá finnst
mér dálítið óviðeigandi af Þorsteini
að segja, að Valtýr sjálfur beiti
happa- og glappaaðferð í listsköp-
un sinni. Ég hef nú aldrei komið
auga á annað en happaaðferðina.
Þetta er allt gróandi kraftur, Þor-
steinn minn, og við skulum ekki
reka hornin í jaðrana á honum.
Tónatöfrar
Mikil eru tíðindin og gleðileg úr
músikheiminúm um þessar mund-
ir. Sinfónían setur „nýjan og meiri
svip“ á bæjarlífið og þá er ekki
minna um vert, að hún er tekin
að ferðast til að setja einnig nýjan
og meiri svip á dreyfbýlislífið. Þá
gefa söngvarar vorir ekki sitt eftir,
eins og bezt heyrist í hinni ágætu
óperu II Trovatore, en þar voru
sumir „sem endurfæddir í list
sinni“, en aðrir „betri en þeir hafa
áður verið beztir“. Haldi svo áfram
sem horfir má mikilla afreka af
þeim vænta, enda eru nú uppi
sterkar raddir um það, að stofna
fasta óperu og óperuskóla, þar sem
kennt verður að syngja í óperu.
AJþýðuíiokfc'
Ur'.nn fangi í sínu eigin húsi,
tangi Hermanns Jónassonar og
stjórna rsamvinnunnar,
ITlÞYDÚT i 0 KV< vKÍN^y