Spegillinn - 01.12.1956, Page 23
^neaiiíinn
Vonandi verður ekki langt þangað
til íslenzka óperan getur hafið
glæsilega landkynningu. En bæði
frá hagrænu og menningarlegu
sjónarmiði eru ferðir Þjóðleikhúss
vors . og Sinfóníu útá landsbyggð-
ina talandi vottur um gróandi kraft
með þjóð vorri. Mér finnst semsé
að ekki muni einhlítt að skapa
Jafnvægi í Byggð Landsins með
togfiski einum saman. Fyrst þarf
að skapa Jafnvægi í Menningu
Landsins, því menningin hér á
Suðurnesjum mun eiga gróflegan
þátt í að draga til sín mannfólkið
úr fjarlægari byggðarlögum. Þenn-
an kjarna málsins ætti Alþingi vort
að taka til athugunar og úrlausnar
með aukinni aðstoð við listræna
menningu. Þó fer sumt verr en
vera ætti. Þannig barst sú frétt
fyrir skömmu, að Freymóður hafi
vikið úr forsæti í Dægurlagatón-
skáldafélaginu og er því sennilegt
að nú horfi báglega með hag þess
og framtíð. Ég er þó að vona að
Freymóður sé ekki alveg genginn
úr vistinni hjá drottningu listanna,
því góðir voru Akranesskórnir, en
ætli sér bara stærra hlutverk á
öðrum og veigameiri vettvangi og
fer þá allt vel, þótt sárt svíði í bili.
Aftur á móti ber að fagna því, að
þýðing þjóðlaga vorra hefur nú
verið vísindalega sönnuð fyrir okk-
ur, þessara góðu gömlu menningar-
verðmæta, sem urðu til í árdaga
tónrænnar meðvitundar, en saman-
stendur oftlega af 3 langlínum og
2 skammlínum með stígandi frumi.
Þessi hljómandi tjáning syngjandi
sálar er í fullu gildi enn í dag og
vænleg til tónrænnar nýsköpunar.
Þessi menningargeymd hefur litl-
um breytingum tekið um aldaröð
og mætti það vera oss til lærdóms,
svo breytingagjarnir sem við erum
orðnir og óstöðugir í menningunni,
en án slíkrar hneigðar hefðum við
þó aldrei orðið svo konkretir, sem
raun ber vitni um og góða raun
hefur gefið. Hefur þá flest til síns
ágætis nokkuð.
Jólabókin
Svo las ég í ágætu blaði nýlega,
að út væri komin í Stokkhólmi á-
gæt bók og merkileg, ekki sízt frá
okkar landkynningarsjónarmiði.
Bók þessi er 180 bls. og fjallar um
myndlist, þ. e. a. s. konkret mynd-
list og verður okkar hlutur því
mikill og glæsilegur, þar sem okk-
ar menn eru allra manna konkret-
astir og mun á það bent í bókinni,
að í þessu séum við öðrúm til fyr-
irmyndar. Má því búast við, að
málararnir á hinum Norðurlönd-
unum fái hér eftir hugmyndir sín-
ar frá París via Reykjavík og fari
þar með að líta upp til okkar, sem
að vísu er ekki vonum fyrr. Bók-
in er prýdd fjölda mynda og eru
vitanlega margar þeirra íslenzkar
og hápunkturinn glæsileg litmynd
eftir Valtý, er þannig skipar það
virðulega sæti í þessum hópi
snjallra konkretmanna, er honum
ber. Sá gróandi kraftur, sem nú er
svo áberandi í menningarlífi voru,
bæði andlegu og líkamlegu, fær
ekki lengur dulist umheiminum.
Vonandi verður nefnd bók sam-
norræna jólabókin í ár.
287
Bráðum koma jólin
Engan dóm skal ég leggja á hin
ensku orð Gröndals, að ,,the Con-
servative party (is) run by the
businessmen“, þar sem pólitíkin
er ekki mín sérgrein og ég finn
eitthvað gott hjá hverri stjórn, en
hitt þykist ég vita, að þeir séu
fúsir til að selja okkur margvís-
legar jólagjafir á þessum tíma árs.
En til þess að minna okkur á, að
nú sé tíminn kominn gera þeir
sitt til að setja menningarbrag á
bæinn og lífga gráar göturnar með
laufskrúði og ljósadýrð. Að þessu
sinni höfðu þeir fyrra fallið á, en
stundvíslega í byrjun desember
vildi svo illa til, að sjóblautt vest-
anrok gekk yfir og truflaði skreyt-
inguna eitthvað. En af öllu þessu
má okkur vera ljóst, að jólin koma
bráðum og að jólakveðjurnar þurfa
að berast í tæka tíð. Ég dreg því
ekki lengur að óska öllum lesend-
um pistla minna gleðilegra jóla,
einkum ykkur, sem lagt hafið
menningu okkar og landkynningu
lið. Ég er sýknt og heilagt ykkar
einlægur aðdáandi og samherji
Kibbi
EG FEREkFET A 5V0NA 5AHK0MU
Þingi Alþýðusambándsins
lauk þannig, áð hvorki Lúð-
vík Jósefsson né Hermann
Jónasson töldu ástæðu til að
skýra þingheimi frá óstand-
inu I efnahagsmáhmum.