Spegillinn - 01.12.1956, Page 26
290
Anita ísjaki.
Þið vitið kannske, að Aníta litla
varð fyrst þekkt, sem Miss Svíþjóð,
módel 1951, en ekki fyrir neiná
andlega hæfileika. Þetta er ein af
raunasögunum, sem fegurðarsam-
keppnir geta haft í för með sér.
Það er varla ofsagt, að Aníta litla
sé orðin alræmd fyrir hroka sinn
og geðvonzku. Að minnsta kosti
er brezkt blað frá 5. nóvember s. 1.
fegið, að hún skuli vera farin vest-
ur um haf. Undanfarið hefir Aníta
verið á 25000 punda samningi við
svokallað Warwick Films, og ætl-
aði þar sannast að segja, allt að
drepa. Aníta er stór og ketmikil,
og þessvegna eru sérstaklega litlir
menn og magrir afskaplega skotn-
ir í henni. En þegar fólk glápir á
hana og ljósmyndarar vilja smella
á hana, kvartar hún yfir því, að
fólk athugi ekkert í henni sálina,
en fæstir hafa hingað til haft nenn-
ingu í sér til að leggja út í það.
Svo er maðurinn hennar, sem áð-
ur var ósköp venjuleg og nafnlítil
frikadella, orðinn álíka stór upp á
sig og hræmontinn. Það er því ekki
furða þó að flestir séu fegnir að
eftirláta Kananum þessa tvo upp-
blásnu hrokagikki og þykir það
eitthvert bezta „svar til Hollí-
vúdd“,, sem enn hefur verið fund-
ið.
V ísdómstennur.
Haldið þið ekki, að Debbí hafi
verið lögð inn á spítala, til þess að
láta taka úr sér vísdómstennur.
Þykir unnendum Debbíar þetta að
vonum afarmikill uppsláttur, því
að svona mikinn vísdóm hafa
menn aldrei vitað saman kominn
í einum kvikmyndaleikara fyrr. Nú
er tannlæknirinn, sem aðgerðina
framdi, að hugsa um að titla sig
framvegis vísdómstannlækni og
býst við mikilli aðsókn heimsk-
ingja.
Rokkí Marsjanó.
Rokkí var heimsfrægur boxari,
eins og menn rekur kannske minni
til, en þó var hann næstum ennþá
frægari fyrir það, hvað honum var
laus höndin í daglegu lífi hans.
Hann ólst upp í fátækrahverfi í
Nefjork og náttúrlega bætti það
ekki hegðunina. Gerðist fljótt erf-
iður í skapi og barði alla, sem
honum líkaði ekki við. Þá benti
mamma hans honum á það, að úr
því hann endilega vildi vera að
slást þetta, skyldi hann reyna að
hafa eitthvað upp úr því annað en
sektirnar (sem hann varð alltaf að
brúmma af, fyrir fátæktar sakir).
Fylgdi Rokkí þessum móðurlegu
ráðum og hlaut heimsfrægð fyrir.
Af þessu má sjá, að það borgar
sig að gegna henni mömmu sinni,
meðan maður er lítill.
Svo þegar tími kom til, fór
Rokkí í herinn og vann sér það
helzt til frægðar þar að berja höf-
uðsmann einn til óbóta og hlaut
að launum fangelsi og síðan burt-
rekstur úr hernum. Fleira hefur
Rokkí unnið sér til frægðar, þótt
Speqidlinn
ekki sé hér talið, enda er hann
fyrirmynd ungra og framgjarnra
manna, og meira að segja hafa ver-
ið stofnaðir Rokkí-klúbbar víða
um lönd.
Það hefur valdið mestum örðug-
leikum í sambandi við þessa kvik-
mynd, að illa hefur gengið að fá
nokkurn til að leika höfuðsmann-
inn, sem Rokkí kjullaði, enda hafði
ekki verið sjón að sjá hann á eftir.
Gróðinn af kvikmyndunum.
Allir hafa heyrt um þær óskap-
legu upphæðir, sem Hollívúdd-
stjörnunum eru borgaðar fyrir að
sýna sig, en samt er það nú svo,
að þær þykjast hlunnfarnar af
kvikmyndajöfrunum, en þá taka
þær oft upp á því að stofna eigin
félag, til þess að halda ábatanum
í familíunni. Þetta gengur oft hálf-
böngulega, eins og nærri má geta,
og félögin fara venjulega á hausinn,
að stjarnan verður að leita til gamla
húsbóndans, en hann snýr þá oftast
upp á sig, og vísar þeim til hins
neðsta.
Eitt neyðarlegasta dæmið um
það, hve svikul þessi háu laun
geta reynzt, er sagan um hana
Elsabetu litlu Teilor, sem var búin
að undirrita samning um 190.000
dollara árskaup, en svo skömmu
síðar kom það í ljós, að hún var
bomm, og það hafði jöfurinn ekki
samið um, svo að hann gerði sér
lítið fyrir og riftaði samningnum
og sagðist í hæsta lagi borga henni
barnalífeyri.
En þó að stjörnurnar fari oft
hálfilla út úr því, er það bót í máli,
að eins dauði er annars líf. Til
dæmis eru læknar í Hollívúdd af-
skaplega dýrir og bera ekki við
að líta á neina stjörnu, þ. e. í
embættiserindum, fyrir minna en
50 dollara. Og svo er það önnur,
tiltölulega ný, stétt manna, sem
platar þær óskaplega og það eru
sálfræðingarnir, því að nú þykir
engin stjarna með stjörnum# sem
ekki hefur sinn fasta sálfræðing.