Spegillinn - 01.12.1956, Blaðsíða 44
308
Margföldunarvélar
Nei, þetta er ekki margföldunar-
vélin, sem sjá má á mörgum skrif-
stofum og notuð er til að margfalda
álagninguna, enda er ekkert merki-
legt við hana lengur. Hér er um að
ræða vélar, sem ekki margfalda töl-
ur, heldur margfalda þær sjálfar sig.
Þessar nýju afurðir hugvitsseminn-
ar eru ættaðar frá Kananum, en
auðvitað skulu þið ekki verða hissa,
þó að þið heyrið austan úr sovétti,
að þar hafi þær verið þekktar í
marga áratugi, en þá geta sovétting-
ar bara sjálfum sér um kennt að
vera ekki búnir að segja frá því
fyrr. Jæja, þessi vél, sem hér er um
að ræða, er fundin upp af einum
lim kjarnorkuráðsins í Ameríku, svo
segja má, að góður sé að henni naut-
urinn. Enn sem komið er, má telja
það galla á vélinni, að hún gerir
ekki annað en margfalda sjálfa sig
og þar sem hún gerir ekki annað, er
viðbúið, að markaðurinn verði fljót-
lega yfirfullur, og ef þetta er eilífð-
arvél, eins og sumir halda, getur
hún beinlínis verið hættuleg, því að
ef hún heldur áfram að margfalda
sig í það óendanlega, verður að lok-
um ekkert pláss í heiminum, hvorki
fyrir menn né skepnur, að ekki sé
talað um aðrar vélar. Þetta er því
meira til gamans, og jafnvel það
gaman getur farið af, eins og fyrr er
sagt.
Lifandi verksmiðja.
Öllu hagnýtari væri þá að minnsta
kosti „lifandi verksmiðjan", sem
svo er kölluð. Hún hagar sér eins og
jurtirnar að því leyti, að hún vinn-
ur þau efni, sem hún þarfnast, úr
jörðinni og auk þess úr hinum höf-
uðskepnunum, lofti, vatni og eldi.
Þessa vél er hægt að stilla upp á
það að soga til sín viss efni, hverju
sinni og svo fer framleiðslan auð-
vitað eftir því, hvaða efni eru sog-
uð. Líka má smíða sérhæfða verk-
smiðju fyrir hverja einstaka grein,
þannig getur ein framleitt eintómt
viskí, önnur skrúfur, þriðja víra
o. s. frv. Vitanlega verður viskíverk-
smiðjan að vera staðsett í Skot-
landi, til þess að koma ekki óorði
á framleiðsluna.
• Heimasjónvarp.
Allir kannast við stálþráðinn,
sem nú orðið má segja, að gangi
eins og rauður þráður gegn um dag-
legt líf manna. Því að það er ekki
einungis ríkisútvarpið, sem notar
hann, heldur hafa prívatpersónur
einnig notað hann með miklum á-
rangri, t. d. stillt hann á samtöl þau,
er fram fara í saumaklúbbum, með-
an húsmóðirin bregður sér út að
snerpa undir katlinum. En þetta
sem menn þekkja almennt núna, er
smáræði móti því, sem koma skal.
Nýi stálþráðurinn, sem þeir eru nú
sem óðast að finna upp, tekur jafn-
framt ljósmyndir — og það kvik-
myndir — af þeim, sem talar. Þá
geta konurnar ekki einungis heyrt
það, sem vinkonurnar hafa sagt um
þær á bak, heldur geta þær líka
séð á þeim svipinn og kunnugir
fullyrða, að það sé minnst tvöföld
ánægja móts við að heyra bara
talið.
V asapr en tsmið ja.
Það hefur lengi verið óskadraum-
ur bóka- og blaðaútgefanda að geta
haft prentsmiðjuna sína í vasan-
um, og svo virðist nú loks sem
nokkur drög hafa verið að því lögð,
að óskadraumur þessi geti rætzt.
Það er auðvitað hugvitsmaður
vestan hafs, sem hefur fundið upp
pretsmiðju, sem mundi komast fyr-
ir í venjulegum skókassa nr. 42,
engu að síður er hægt að setja
og prenta á hana 2500 línur á
mínútu — en ekki er þó getið um,
hversu langar línur þessar eru.
Leyndardómurinn liggur í því, að
fyrirmyndin — þ. e. handrit og
myndir — er gert segulmagnað,
hinsvegar er engin venjuleg sverta
notuð, heldur sér segulmagnið fyr-
ir öllu saman, en pappírinn er hit-
aður, og svo þegar hann er kældur
aftur, kemur letrið fram. Ef mönn-
um líkar ekki það, sem þeir lesa,
hita þeir bara pappírinn upp aftur
og hverfur þá letrið samstundis.
Fyrir 200 krónur
getið þér fengið síðustu sex
árgang.a SPEGILSINS (1950—
1955). Sumir þessara árganga fást
ekki einstakir. Utan Reykjavíkur
þarf greiðsla að fylgja pöntun; þá
eru blöðin send burðargjaldsfrítt.
Pósthólf 594 — Reykjavík.
Afgreiftsla SPEGlLSIISiS
Ritstjóri: Páll Skúlason — Teiknari: Halldór
Pétursson — Ritstjórn og afgreiðsla: Smára-
götu 14, Reykjavík — Sími 2702 — Árgangur-
inn er 12 blöð; um 220 bls., efni — Áskriftar-
verð kr. 85.00 — erlendig kr. 95.00; greiðist
fyrirfram — Áritun SPEGILLINN, Pósthólf
594, Reykjavík — Rlaðið er prentað í lsafoldar-
prentsmiðiu h.f.