Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 17.06.1945, Page 4

Stúdentablaðið - 17.06.1945, Page 4
4 STÚDENTABLAÐ GUNISAR THORODDSETS prófessor: 17. júní hugleiðingar Hildarleiknum í Norðurálfu er lokið, harmleikurinn á enda. Margar þjóðir, milljónir manna, gráta mannslíf og geigvœnlega glötun menningarverð- mæta. Við íslendingar horfum yfir þá atburði, er hent hafa okkar litlu þjóð á hinu hálfa sjötta ári, sein styrjöldin stóð. Þau hafa einnig fært okkur tár og blóð, einkum farmanna- og fiski- mannastéttinni. Þau sár munu seint gróa. En þessi ár hafa verið okkur ís- lendingum á marga lund líknsöm og miskunnarrík. Veraldleg gæði hafa þau fært þjóðinni í stærri stíl en áður þelckt- ist, aukna velmegun til handa flestum landsins börnum. En það, sem hæst ber í þjóðarsögu okkar á þessum árum, eru þeir áfangar og leiðarlok, sem náð hef- ur verið eftir hið langvinna og örðuga strit til fullrar sjálfstjórnar og umráða yfir öllum íslenzkum málum. Á því sviði hafa stórmerkir atburðir gerzt. 10. apríl 1940 ákvað Alþingi, að íslendingar tækju að svo stöddu, vegna hernáms Danmerkur, æðsta valdið, konungsvald- ið, í sínar hendur, utanríkismál og land- helgisgæzlu. 17. maí 1941 lýsti Alþingi yfir fullum rétti okkar til sambandsslita, ótvíræðum vilja til stofnunar lýðvcldis á sínum tíma og ákvað að kjósa ríkis- stjóra. 1942 var samþýkkt stjórnar- skrárbreyting, sem gerði mun auðveld- ara að koma fram sambandsslitum og lýðveldisstofnun. 1943 lýsti ríkisstjórn- in og þorri þingmanna yfh- þeirri á- kvörðun að stofna lýðveldi á næsta ári. 1944 samþykkti Alþingi einróma sam- bandsslit og stofnun lýðveldis, en þjóð- in sjálf rak smiðshöggið á það með hinu glæsilega þjóðaratkvæði, sem lengi mun í niinnum haft til sæmdar hinni íslenzku þjóð. Og 17. júní 1944 var lýðveldið stofnað á Þingvelli og kjörinn hinn fyrsti forseti íslands. Þessum áfanga er náð, og í dag, 17. júní 1945, fögnum við eins árs afmæli þessa sigurs. Á þeim degi verður okkur efst í huga, — samfara þökkuin til stjórnmálaleiðtoganna, sem leitt hafa þjóðina í heila öld til æ meira sjálfsfor- ræðis, —- hugsunin um það, hversu

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.