Stúdentablaðið - 17.06.1945, Side 7
STtJDENTABLAÐ
7
Finnbogi R. Þorvaldsson verkfr.:
Kennsla í verkfræði í
Háskóla íslands
Fyrstu kennsluárin 1940—'45.
I nóvember 1940 var hafin undirbúnings-
kennsla í verkfræði í Háskóla Islands. Var
það fyrst og fremst gert til þess að greiða
úr vanda þeirra stúdenta, sem höfðu ákveðið
að stunda vei’kfræðinám á Norðurlöndum
eða í Þýzkalandi, en gátu ekki sótt háskóla
í þessum löndum vegna heimsófriðarins.
Á þeim 5 árum, sem síðan eru liðin, hefir
kennslunni verið haldið áfram, enda hafa ís-
lenzkir stúdentar ekki getað sótt á þessum
tíma nám á Norðurlöndum eða í Þýzka-
landi, eins og kunnugt er.
Vorið 1943 luku fyrstu vex-kfræðinemarnir
fyrra hluta prófi. Var þá ákveðið að gefa
þeim kost á að ljúka námi í byggingaverk-
fræði við Háskóla Islands. Aðrar sérgreinar
vei'kfræðinnar er varla unnt að kenna hér
fyrst um sinn. Til þess skoi’tir meðal annars
nauðsynleg tæki og tilraunastofur.
Ríkisstjórnin studdi þá viðleitni að stofna
vei’kfræðideild við háskólann, og Alþingi veitti
styrk til kennslunnar, en öll þessi ár hefir
henni að mestu leyti verið haldið uppi með
stundakennslu nokkurra verkfræðinga, stærð-
fræðinga og náttúrufræðinga. Mun fátítt, eða
jafnvel einsdæmi, að svo víðtæk kennsla hafi
farið fram á þann hátt og þá við jafn erfið-
ar aðstæður að öðru leyti.
Kennararnir hafa átt við þá örðugleika
að etja að hef ja kennslu í námsgreinum, sem
ekki hafa verið kenndar áður hér á landi, og
þá án þess að geta notið sambands við hlið-
stæða skóla erlendis.
Nemendur hafa orðið að búa við þröngan
bókakost og lakari áhöld við úrlausnir verk-
efna en venjulega eru fáanleg, og vegna
styttri kennslutíma á ári hverju hefir orðið
að leggja meiri vinnu á nemendurna en hæfi-
legt þykir.
Þrátt fyrir þessa erfiðleika hefir verið mjög
mikil aðsókn að verkfræðikennslunni, og sú
reynsla, sem þegar er fengin, bendir til þess,
að af kennslunni megi vænta góðs árangurs.
Hefir fyrra hluta nám í verkfræði við Há-
skóla Islands þegar verið viðurkennt sem
undirbúningur framhaldsnáms við nokkra
tekniska háskóla í Ameríku. Tilhögun náms-
ins er þó sérstaklega miðuð við framhalds-
nám í háskólum á Norðurlöndum og í Þýzka-
landi, en ekki hefir verið unnt að fá vissu um
það, að fyrra hluta próf héðan verði tekið
gilt við háskóla í þessum löndum.
Þótt nú hafi verið hafin framhaldskennsla
í byggingaverkfræði og vænta megi að bygg-