Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 17.06.1945, Síða 13

Stúdentablaðið - 17.06.1945, Síða 13
STtJDENTABLAÐ 13 Dr. Sigurður Þórarinsson: Litið til landsuðu rs Eitt af því, sem mest hefur glatt mig, síðan ég kom heim í vetur, er það, hversu margir íslenzkir stúdentar virðast hafa hug á að stunda háskólanám í Skandínavíu næstu árin. Ég er ekki í tölu þeirra, sem harma hin auknu menningarsambönd við engilsaxnesku stór- veldin, og ég álít einnig, að við gætum haft gott af auknum menningaráhrifum frá lönd- um eins og Frakklandi og Sovétrússlandi. En það er þó sannfæring: mín, að bað sé okkar menningu hollast, að allmikill hluti þeirra ís- lenzku stúdenta, sem sækja þurfa sérþekk- ingu út fyrir landsteinana, sæki hana til hinna Norðurlandaþjóðanna. Mér þykir líklegt, að í einstöku greinum æðri sérmenntunar séu sumir háskólar stórveldanna girnilegri til fróðleiks en þeir skandínavísku, en í flestum fræðigreinum, teknískum sem húmanistísk- um, munu skandínavísku háskólaprófin vera trygging fyrir haldbeztri og okkur nothæf- astri þekkingu. Möguleikarnir til að mannast á heimsins hátt, án þess að bíða tjón á því frónska í sinni sál, eru þar stærri en annars staðar, því að þar eru stúdentarnir í nánust- um tengslum við sögu, tungu og menningu sinnar eigin þjóðar. Danir og Norðmenn hafa í baráttunni við böðulsveldi nazismans sýnt, hversu traust og djúptæk menning þeirra er. Það hefur minna reynt á þolrif Svíanna, en ég hef ekki ástæðu til að halda, að þeir hefðu staðið frændþjóðum sínum að baki, ef á hefði reynt. Ég veit, að ýmsum málsvörum nor- rænnar samvinnu hættir undarlega mikið til glamuryrða og fjálgs orðagjálfurs í ræðu og riti um þessi mál, en ég vona, að það verði ekki talið til glamuryrða, er ég held því fram, að færi svo, að við slitnuðum úr menningar- tengslum við hinar Norðurlandaþjóðirnar, þá mættum við segja með lítt breyttum orðum Fjallaskáldsins: Nú eru horfin Norðurlönd nú eigum við hvergi heima. Ég hef oft verið spurður að því, í hverju skandinavisku landanna teldi ég vænlegast að stunda háskólanám. Ég hef þá gefið það svar, að heildarlega séð sé jafnvænlegt að stunda nám í þeim öllum. Bæði teknísk og húmanistísk vísindi standa álíka hátt í þess- um þremur löndum. Þetta þýðir þó ekki, að ekki geti verið mismunur, þegar um einstak- ar fræðigreinar er að ræða. Það mun t. d. sem stendur áreiðanlega bezt að nema veð- urfræði í Noregi, jurtakynbætur mun væn- legast að nema í Svíþjóð og fram til þessa hefur verið álitlegast að lesa ,,atómfysik“ í Kaupmannahöfn. Þá er og, sem kunnugt er, náms- og próftilhögun með öðru og frjálsara sniði í Svíþjóð en í Noregi og Danmörku, og mun sumum geðjast betur að sænsku tiihög- uninni, en aðrir kjósa fremur þá dönsku og norsku.

x

Stúdentablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.